Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur lagt fram kæru vegna alræmda matarkjallarans í Sóltúni

Vy-þrif fékk frest til 14. nóvember til að afhenda heilbrigðis­eftirliti Reykja­víkur allar upplýsingar um dreifingu matvæla frá Sóltúni. Þessum upplýsingum var ekki skilað inn.

Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur hefur lagt fram kæru til lögreglu vegna matvæla­lagersins sem var á vegum þrifa­fyrir­tækisins Vy-þrifa ehf. í Sóltúni 20.  

Samkvæmt svari frá Reykja­víkurborg til Heimildarinnar er kæran undan­þegin upplýsinga­lögum þar sem hún er hluti af rannsókn sakamáls.

Vy-þrif fékk frest til 14. nóvember til að afhenda heilbrigðis­eftirliti Reykja­víkur allar upplýsingar um dreifingu matvæla frá Sóltúni. Þessum upplýsingum var ekki skilað inn.

Í tilkynningu frá heilbrigðis­eftirlitinu þann 10. október sagði að matvælin á lagernum í Sóltúni 20 væru „heilsu­spillandi og óhæf til neyslu og því var nauðsynlegt að leggja hald á þau og tryggja þar með matvæla­öryggi.“

Þá kom fram að rannsókn heilbrigðis­eftirlitsins beinist meðal annars að uppruna matvælanna og hvort þeim kunni að hafa verið dreift til matvæla­fyrirtækja. Mikið var af músum og rottum í kjallaranum, bæði lifandi og dauðum, og greinileg merki um að nagdýr hefðu nagað sig í gegn um umbúðir matvæla.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pho Vietnam-málið

FréttirPho Vietnam-málið

Starfsemi matvæla­fyrirtækja stöðvuð ef öryggi almennings er ógnað

Framkvæmda­stjóri heilbrigðis­eftirlits Reykja­víkur segir þau ekki bera skyldu til að upplýsa leigusala um niður­stöður eftirlits hjá leigutaka. Niður­stöðurnar eru hins vegar öllum aðgengilegar á vef eftirlitsins. Enginn veitinga­staður hefur kallað eftir kerfi þar sem merkingar um niður­stöðu eftirlitsins eiga að vera sýnilegar á staðnum sjálfum. Slíkt sé þó reglulega til skoðunar.
FréttirPho Vietnam-málið

Heilbrigðis­eftirlitið lét henda gömlum rækjum á WokOn - „Okkur blöskrar“

Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkur lét henda núðlum, hrís­grjónum og rækjum á veitinga­stað Wok On í Krónunni á Fiskislóð í desember. Staðurinn fékk fall­einkunn hjá eftirlitinu í byrjun desember og var starfsemin stöðvuð að hluta. „Við tökum þetta mjög alvarlega,“ segir framkvæmda­stjóri Krónunnar. Henni finnst að niður­stöður eftirlitsins ættu að vera aðgengilegri.
FréttirPho Vietnam-málið

Ákall um hjálp frá starfs­fólki Pho Vietnam - „Það er ekki komið fram við okkur eins og manneskjur“

Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, stéttar­félögum og fleiri aðilum barst hjálpar­beiðni fyrir tæpu ári þar sem því er lýst hvernig eigandi Pho Vietnam lætur starfs­fólk sitt endur­greiða sér hluta launanna í reiðufé. Starfs­fólk sé einnig látið vinna á öðrum stöðum en ráðningar­samningur þess segir til um. Dvalar­leyfi fólksins á Íslandi er í fjögur ár bundið samningi við vinnu­veitandann.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár