Svört skýrsla um spillingu

Um Eim­reið­ar­el­ít­una eftir Þorvald Logason

Svört skýrsla um spillingu
Eim­reið­ar­el­ítan eftir Þorvald Logason (464 bls.) er athygl­is­verður og slá­andi lestur fyrir margra hluta sakir.

Í fyrsta lagi hefur höf­und­ur­inn sankað að sér gögnum um langt skeið eða frá því fyrir banka­hrunið 2008. Hann fjall­aði síðar um efnið í meist­ara­rit­gerð sinni um þremur árum eftir Hrunið.  Nú tíu árum síðar er Þor­valdur búinn að melta og meitla efnið og slær tæran grunn­tón í verki sínu.

Í öðru lagi krefst hug­rekkis að fjalla á dýpt­ina, líkt og Þor­valdur gerir, um valda­mikið sam­tíð­ar­fólk á Íslandi sem kald­rifjað hefur leitt saman þræði stjórn­mála og við­skipta­lífs með nýfrjáls­hyggj­una að vopni síð­ustu ára­tug­ina. Ljóst er af lestr­inum að valda­el­ítan svífst einskis í valda­tafli sínu og sér­hags­muna­gæslu.

Í þriðja lagi hikar Þor­valdur ekki við að gagn­rýna með rökum ýmsa fræði­menn og aðra sem hann telur aug­ljós­lega hafa bognað undan elít­unni og sýnt henni auð­sveipni og gefið henni eftir dag­skrár­valdið.

Í fjórða lagi fjallar Þor­valdur um ýmsar áður óbirtar upp­lýs­ingar einkum um inn­an­hús­s­mál í Lands­bank­anum fyrir Hrun. Þar kemur vit­an­lega sér­stak­lega við sögu Kjartan Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ald­ar­fjórð­ung og hægri hönd Davíðs Odds­sonar nær alla tíð innan Eim­reið­ar­hóps­ins sem utan. Sá var ekki yfir­heyrður eftir hrun!

Í fimmta lagi end­ur­metur Þor­valdur marg­vís­leg gögn, meðal ann­ars nið­ur­stöður Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis (RnA) og kemst að því að aðdrag­and­inn að Hruninu hafi haf­ist mörgum árum fyrr en almennt er álitið. Fyrir þessu leggur hann fram gild rök sem snerta einkum einka­væð­ing­ar­áráttu sjálf­stæð­is­flokks­ins, að færa vild­ar­vinum almanna­eigur fyrir slikk.

Í sjötta lagi er að finna í bók­inni ýtar­leg­ustu sam­an­tekt­ina sem und­ir­rit­aður hefur séð á lang­vinnum og end­ur­teknum til­raunum Eim­reið­ar­el­ít­unnar og innsta valda­kjarna Sjálf­stæð­is­flokks­ins til þess að sveigja alla fjöl­miðlun í land­inu undir sig og hafa þannig tögl og hagldir í yfir­leitt allri umræðu og skil­gren­ing­ar­vald yfir sann­leik­anum meðal fámennrar þjóðar.

Í sjö­unda lagi má nefna athygl­is­verða rýni Þor­valdar í notkun hug­taka, meðal ann­ars í í skýrslu RnA. Hug­taka­notkun sem hann telur vill­andi og til þess fallna að afvega­leiða almenn­ing, ofast í þágu mik­il­vægra hags­muna elít­unnar. Það sem skýrt er til að mynda „veikt“fé föllnu bank­anna í skýrslu RnA vill Þor­valdur að sé kallað sínu rétta nafni: „fjár­svik“. 

Íslenskir stjórn­mála­menn, Seðla­bank­inn og stjórn­endur föllnu bank­anna höfðu fyrir löngu fyr­ir­gert trausti sínu meðal erlendra seðla­banka, stjórn­valda og eft­ir­lits­að­ila í nágranna­löndum þegar Bretar virkj­uðu lög til að vernda hags­muni breskra inn­stæðu­eig­enda í Lands­bank­anum (Icesave). Þetta voru kölluð „hryðju­verka­lög“ á Íslandi: Þjóð­rembl­arnir  og áróð­urs­gúrú Eim­reið­ar­hóps­ins, Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, gerðu þar með útlend­inga að óvinum rík­is­ins í þágu elít­unnar sem svo for­set­inn studdi einnig. Allt var þetta áróður að mati bók­ar­höf­undar í þágu elít­unnar sem bar lík­ast til mestu ábyrgð­ina á Hruninu.

Í síð­ari tíma hring­iðu og sam­slætti stjórn­mála og við­skipta­lífs undir merkjum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars á einka­væð­ing­ar­skeið­inu fyrir hrun bætt­ust ótal margir inn í þennan hóp og varð að elítu­neti. Má þar nefna bræð­urna Árna og Þór Sig­fús­syni, bræð­urna Karl og Stein­grím Wernerssyni, feðgana Björgólf Thor og Björgólf Guð­munds­son, Illluga Gunn­ars­son, Tryggva Þór Her­berts­son, Friðrik  Soph­us­son, Gunnlaug Sævar Gunn­laugs­son, Óli Björn Kárason, Óskar Magn­ús­son, Ari Edvald o.fl. o.fl. Hér mætti enda­laust telja áhan­gendur og aðra, t.d. innan útgerð­ar­valds­ins, sem valdar þetta kerfi og tekur virkan þátt í að brjóta undir sig inn­viði og fyr­ir­tæki í eigu almenn­ings.

Endurmat og gagnrýnin framsetning

Gunnar Helgi Krist­ins­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor, hefur talað fyrir því í bók sinni um Elítur og valda­kerfi á Íslandi að eftir því sem fram liðu stundir hafi helm­inga­skipta­kerfið orðið sam­sett­ara og ein­kennst meira af fjöl­ræði. M.ö.o. að elítu­kerfi helm­inga­skipta og Eim­reið­ar­hóps­ins hafi brotnað upp í fleiri ein­ingar. Enda hafi ýmsir kraftar verið þar að verki svo sem betri þjálfun og meiri fag­mennska í emb­ætt­is­manna­kerf­inu. Telur Gunnar Helgi að ára­tug­ina þrjá til fjóra fram að hruni hafi ríkt á Íslandi sam­keppn­isel­ít­ismi. Þor­valdur kaupir þetta ekki og segir að ein­kennin hafi verið sam­ráð­sel­ít­ismi. Þegar horft er á þéttriðið net sjálf­stæð­is­manna í nær ÖLLUM lyki­stöðum sam­fé­lags­ins (sjá hér að ofan) er ekki að undra að Þor­valdur haldi fram rökum um inn­múr­aðan elít­isma og sam­ráð og og blási á að það net hafi lið­ast í sundur á nokkurn hátt.

Gefum Þorvaldi orðið: „Aðal­skýr­ing Rann­sóknar Alþingis  á Hruninu er röng. Bank­arnir féllu ekki vegna þenslu. Þenslan var vand­lega hönnuð innan póli­tíska efna­hags­ins af ráð­andi valda­el­ítu á Íslandi til þess að skapa sjálfri sér aðstæður til að hagn­ast hratt.
Öfgafull þensla var búin til, bæði á sviði rík­is­valds­ins og sviði við­skipta­lífs­ins, leidd af ráð­andi þekk­ing­ar­valdi undir rök­vísi frjáls­hyggj­unnar.“  Þegar þarna er komið sögu er Þor­valdur  búinn að benda á tengsl tveggja af þremur sem skip­uðu Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis við Sjálf­stæð­is­flokk­inn: Pál Hreins­son (for­mann) og Tryggva Gunn­ars­son. Líklega hafi þeir tekið að sér að milda orða­lag m.a. til þess að sneiða hjá því að nota orðið „fjár­svik“ um gamla flokks­bræður. Þor­valdur er ekk­ert einn um að reyna að kalla fjár­svik sínu rétta nafni. Hættan er líka ávallt sú að reynt er að velta fjársvikum yfir á almenna skatt­greið­endur og láta þá borga brús­ann. Almenn skyn­semi og þekk­ing má sín lít­ils gagn­vart harð­snú­inni sér­hags­muna­gæslu, valdi og mis­beit­ingu þess. Rann­sóknir sýna að var­huga­vert er að treysta því að skyn­semi, kunn­átta og þekk­ing gegni ævin­lega lýkil­hlut­verki þegar teknar eru mik­il­vægar ákvarð­anir í þágu almanna­hags­muna. Þegar á reynir víkur þekk­ingin og skyn­semin fyrir vald­inu og sér­hags­muna­gæsl­unni.

Hver var mesti óreiðumaðurinn?

Fræg urðu orð Davíðs Odds­sonar (þá enn órek­inn seðla­banka­stjóri) dag­ana eftir Hrun um að við (íslenska þjóðin) „borgum ekki skuldir óreiðu­manna“. Þessi orð urðu eldi­viður í mál­flutn­ing Indefence hóps­ins og ann­arra sem höll­uð­ust að umsát­urs­kenn­ing­unni (vondir útlend­ingar o.þ.h.). Við lestur Eim­reið­ar­el­ít­unnar kemst maður að því að bank­arnir voru ósjálf­bærir þegar tveimur árum fyrir hrun og Davíð í stöðu seðla­banka­stjóra búinn að fara ýmsar, jafn­vel ólög­legar leiðir, til að rétta þeim fé til að halda þeim á floti (Var það í þágu almenn­ings eða vina og elítu­bræðra?). Með öðrum orðum var Davíð búinn að aðstoða óreiðu­menn um langa hríð og taka með því áhættu á kostnað almenn­ings, ekki í þágu hans. 

Hér í lokin er verð­ugt að Þor­valdur fái sjálfur orðið í sinni mik­il­vægu bók: „Spill­ingin orsak­aði Hrunið eins og raddir Bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar töldu alltaf. Ótvíræð nið­ur­staða er að Eim­reið­ar­el­ítan á mesta sök á þeirri spill­ingu sem var stærsti orsaka­valdur Hrunsins. Pólitísk stjórn­un­ar­svik Eim­reið­ar­el­ít­unnar voru und­an­fari þeirrar bylgju stjórn­un­ar­fjársvika banka­kef­is­ins sem rústaði efna­hags­lífi Íslands. Eim­reið­ar­el­ítan mis­not­aði vald sitt alla tíð og sáði í akur vina sinna. Sú valda­mis­notkun öll náði hámarki í aðdrag­anda Hrunsins, þegar elítan gaf bönk­unum leyfi til að sækja sér fjár­muni á hvern þann veg  sem þeir gátu og afhenti þeim jafn­framt alla þá fjár­muni sem elítan mögu­lega gat.

Á þeirri stundu var íslenskt lýð­ræði orðið að þjófræði.“

Kjósa
109
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigridur Hjaltadottir skrifaði
    Hvað getum við gert?
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Skemmtileg einföldun á kerfislægri spillingu að hengja hana á ákveðinn hóp eða stjórnmálamenn svo ekki sjáist hvað gerðist þegar þrifapésar taka við. Bretar virkjuðu ákvæði hryðjuverkalaganna sinna... við fundum orðið ekki upp.... og það var meira en Icesave í pottinum.. skemmtilegt að sjá hvað þið skautið öll hjá því sem menn vilja ekki sjá.

    Forvitnilegt að vita hvort Þorvaldur hafi yfirleitt talað við erlendu aðilana sem svo snögglega snéru við okkur baki og greinilega að hann hefur ekki horft á hversu rösklega þeim tókst að verja hagsmuni sína hérlendis... bæði í sjóðum og kröfum....miðað við hversu holir föllnu bankarnir áttu að vera... og hversu marga tugi milljarða og hundruðir afskrifuðu stjórnendur slitastjórnanna... ráðlegg Þorvald að grafa upp hið fræga Tower IV mál í Makao og spyrja heimamenn þar.... hvað virkilega gerðist.

    Spilling í stjórnkerfinu olli hruninu... ekki aðrir... og sú spilling hefur aldrei veriið hreinsuð.

    "Our man in Iceland" sagði einn stjórnandi Magma í emaili.... og átti við þann rauða sem sló skjaldborg um hagsmuni Deutsche Bank og annarra kröfuhafa.

    Allir vita Rannsóknarnefnd Alþingis var brandari... no news þar.
    -14
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      Það er alltaf bráð fyndið að lesa ummæli sófasérfræðinga sem allt þykjas vita ☻g það betur en fólk sem hefur rannsakað og grúskað í málefninu um langt ára bil.

      Í fyrsta lagi hefur höfundurinn sankað að sér gögnum um langt skeið eða frá því fyrir bankahrunið 2008. Hann fjallaði síðar um efnið í meistararitgerð sinni um þremur árum eftir Hrunið. Nú tíu árum síðar er Þorvaldur búinn að melta og meitla efnið og slær tæran grunntón í verki sínu.
      14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár