Spurningaþraut Illuga 10. nóvember 2023

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 10. nóv­em­ber.

Spurningaþraut Illuga 10. nóvember 2023
Mynd 1 Konan er Vil­hjálms­dóttir en hvað heitir hún að for­nafni?

1.  Hver af þessum evr­ópsku höf­uð­borgum er nyrst? Amster­dam, Berlín, London, Moskva, Varsjá.

2.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Búkarest?

3.  Hver er tal­inn höf­undur Ódysseifs­skviðu?

4.  Hvaða dýr eða kvik­indi er á fána Veils?

5.  Hvað heita þær ferjur sem lengst af hafa siglt um Breiða­fjörð?

6.  Margrét Ind­riða­dóttir varð fyrir rúmum 50 árum fyrst kvenna á Íslandi og raunar á Norð­ur­lönd­unum til að vera ráðin sem ... hvað?

7.  Ein af vin­sæl­ustu og yngstu söng­konum Íslands um þessar mundir átti egifskan móð­urafa sem flutt­ist hingað 1965. Hver er söng­konan?

8.  Hvað hét fyrri eig­in­kona Napól­e­ons Frakka­keis­ara?

9.  Hún hefur skrifað bækur um marg­vís­leg efni, ekki síst mat. Hún er nú búin að gefa út skáld­sögu sem nefn­ist Valskan. Hvað heitir hún?

10.  Hvað hét fyrsta konan sem sett­ist á Alþingi Íslend­inga?

11.  Zoe Saldaña lék fyrir ára­tug aðal­kven­rull­una í mjög vin­sælli kvik­mynd og senni­lega mun hún á end­anum leika í alls 5–6 fram­halds­myndum. Hvað heitir sú mynda­sería?

12.  Fátítt er að ráð­herrar á Íslandi þurfi að segja af sér vegna gagn­rýni sem þeir verða fyrir. Árið 1987 sagði einn ráð­herra þó nauð­ugur af sér. Hvað hét hann?

13.  1994 sagði annar ráð­herra nauð­ugur af sér en svo gerð­ist það ekki aftur í háa herr­ans tíð. Hver sagði af sér 1994?

14.  „Lóan er komin að kveða burt snjó­inn, / að kveða burt leið­indin ...“ Hvernig er svo fram­haldið?

15.  Hver orti þetta?

Mynd 2Hvað tákna þessir punktar?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Konan á fyrri mynd­inni heitir Tara Margrét en Tara dugar. Punkt­arnir á seinni mynd­inni tákna stjörnu­merkið Karlsvagn­inn (Big Dipper á ensku).
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Moskva.  —  2.  Rúmeníu.  —  3.  Hómer.  —  4.  Dreki.  —  5.  Baldur.  —  6.  Frétta­stjóri á rík­is­frétta­stofu.  —  7.  Bríet.  —  8.  Jósefína.  —  9.  Nanna Rögn­vald­ar­dóttir.  —  10.  Ingi­björg H. Bjarna­son.  —  11.  Avatar.  —  12.  Albert Guð­munds­son.  —  13.  Guð­mundur Árni.  —  14,  „... það getur hún.“  15.  Páll Ólafsson.
Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár