Sjö af hverjum tíu vilja að Bjarni hætti sem ráðherra

Alls telja 80 pró­sent aðspurðra í nýrri könnun að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Bjarna Bene­dikts­syni að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem svör­uðu könn­un­inni vilja að Bjarni hætti alfarið sem ráð­herra og taki ekki að sér annað ráðu­neyti.

Sjö af hverjum tíu vilja að Bjarni hætti sem ráðherra
Óráðin fram­tíð Bjarni Bene­dikts­son hefur ekk­ert gefið upp um hvað hann ætlar að gera í kjöl­far afsagnar sinnar á þriðju­dag. Það mun skýr­ast á blaða­manna­fundi klukkan 11 á morgun. Mynd: Golli

Alls segj­ast 71 pró­sent aðspurðra í nýrri könnun Maskínu að þeir vilji að Bjarni Bene­dikts­son hætti alfarið sem ráð­herra í kjöl­far afsagnar hans sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á þriðju­dag. Einungis 13 pró­sent telja að hann eigi að færa sig til innan stjórn­ar­ráðs­ins og taka við öðru ráðu­neyti. 

Það kemur lítil á óvart að stóla­skipti Bjarna njóta mest stuðn­ings á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en 43 pró­sent þeirra vilja sjá hann í öðru ráðu­neytin á meðan að tæpur fjórð­ungur, 24 pró­sent, telja að hann eigi að hætta alveg í rík­is­stjórn­inni. Einungis 12,7 pró­sent kjós­enda flokks­ins sem Bjarni hefur leitt frá árinu 2009 telja að hann eigi að draga afsögn sína til baka og halda áfram sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Kjós­endur ann­arra flokka eru að miklum meiri­hluta á sama máli: Bjarni á að hætta sem ráð­herra. 

Meirihluti flokksmanna segja rétt hjá Bjarna að segja af sér

Maskína spurði líka hvort fólk væri sam­mála ákvörðun Bjarna um að segja af sér emb­ætti í kjöl­far þess að umboðs­maður Alþingis komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði verið van­hæfur til að taka ákvörðun um að selja hlut rík­is­ins í Íslands­banka til félags í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar. 

Nið­ur­staðan þar var afger­andi, 80 pró­sent aðspurðra eru sam­mála ákvörðun Bjarna um að segja af sér. Einungis sex pró­sent sögð­ust vera ósam­mála henni en 14 pró­sent höfðu ekki skoðun á ákvörð­un­inni.

Meiri­hluti kjós­enda allra flokka, líka Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er á þeirri skoðun að rétt hafi verið hjá Bjarna að segja af sér. Ekki kemur mikið á óvart að and­staðan við þá ákvörðun var mest innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem 24 pró­sent sögð­ust ósam­mála því að Bjarni hefði átt að segja af sér. Stuðn­ingur við afsögn hans er afger­andi á meðal kjós­enda hinna stjórn­ar­flokk­anna, en 79 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks og 77 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna eru sam­mála því að Bjarni hafi átt að segja af sér.

Enginn stendur upp úr sem skýr arftaki

Mikið hefur verið skrafað um þann ráð­herrakapal sem gæti farið af stað eftir afsögn Bjarna og spáð í spilin um hver taki við því ráð­herra­emb­ætti sem hann hefur meira og minna gegnt í rúman ára­tug. Hvernig sá kap­all verður lagður verður vænt­an­lega kynnt á blaða­manna­fundi sem búið er að boða klukkan 11 á morgun, laug­ar­dag.

Í könnun Maskínu kemur fram að eng­inn núver­andi þing­manna stjórn­ar­flokk­anna nýtur afger­andi stuðn­ings til að taka við lyklunum að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Flestir, alls tólf pró­sent aðspurðra, nefndu Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem þann kandídat sem þeim hugn­ast best. Skammt á hæla hennar komu Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, sem voru bæði nefnd af níu pró­sent svar­enda. Einungis tvö pró­sent nefndu nafn Bjarna sem svar við þess­ari spurn­ingu. 

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu. Hún fór fram dag­anna 12. til 13. októ­ber og svar­endur voru alls 916 tals­ins.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    *************************************************************************
    Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra seldi föður sínum hlut
    í ríkisbanka.

    Í nágrannalöndunum væri stjórnmálaferli hans þess vegna lokið.

    Þar vilja stjórnmálaflokkarnir ekki hafa slíka menn í forsvari.

    "Ef þetta er fjármálaráðherrann þeirra, hvernig eru þá hinir ?"

    Bjarni Ben. hagar sér eins og óuppalinn dekurkrakki í nammibúð
    *************************************************************************
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár