Bjarni Benediktsson segir af sér sem fjármála- og efnahagsráðherra

Formaður Sjálfstæðis­flokksins hefur sagt af sér sem ráðherra. Ástæðan er álit umboðs­manns Alþingis um að honum hafi skort hæfi til að taka ákvörðun um að selja félagi í eigu föður síns hlut í Íslands­banka.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokks, hefur sagt af sér embætti fjármála- og efnahags­ráðherra. Það gerir hann eftir að umboðs­maður Alþingis komst að þeirri niður­stöðu að hann hafi verið vanhæfur til að að selja félagi í eigu föður síns, Benedikts Sveins­sonar, hlut í Íslands­banka í lokuðu útboði sem fram fór í mars í fyrra.

Á blaðamanna­fundi sem hann hélt fyrir skemmstu sagði Bjarni að Það bæri „að virða álitið og álítið er að mér hafi brostið hæfi í málinu. þessa niður­stöðu hyggst ég virða.“

Bjarni segir ekki gott að segja hvað þetta þýðir fyrir ríkis­stjórnar­samstarfið. Ekki liggur fyrir hvort hann taki við annarri ráðherra­stöðu enn sem komið er né hvort hann ætli að sitja áfram sem þingmaður. „Ég er knúinn til að láta af störfum hér.“ 

Hann segist ósammála þeim forsendum sem lögð eru til grund­vallar áliti Umboðs­manns en hann vill samt hlíta þeirri niður­stöðu sem fyrir liggur. Bjarni segir að betra hafi verið ef faðir hans hefði sleppt því að kaupa hlut í Íslands­banka.

Í áliti umboðs­manns Alþingis, sem var birt í morgun, sagði meðal annars að í ljósi þess að einka­hlutafélag föður fjármála- og efnahags­ráðherra var á meðal kaupenda að 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslands­banka sem seldur var í mars 2022 „brast hann hæfi þegar hann samþykkti tillögu Banka­sýslunnar um söluna.“ 

Þar segir ennfremur að það breyti engu um niður­stöðuna að Bjarni staðhæfi að hann hafi ekki vitað að meðal tilboða sem hann væri að samþykkja fyrir hönd ríkisins væri eitt frá föður hans. 

Félagið Hafsilfur ehf, sem er fjár­festinga­félag Benedikts, keypti 55 milljóna króna hlut í Íslands­banka í útboði sem fram fór 22. mars á síðasta ári. Hann var sá 118. stærsti meðal kaupenda í lotunni, sem fram fór í lokuðu útboði. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    LOKSINS, LOKSINS !!!!!!!

    *************************************************************************
    Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra seldi föður sínum hlut
    í ríkisbanka.

    Í nágrannalöndunum væri stjórnmálaferli hans þess vegna lokið.

    Þar vilja stjórnmálaflokkarnir ekki hafa slíka menn í forsvari.
    *************************************************************************
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og armslengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Benediktsson vanhæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæfingar Bjarna um „hreina samvisku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvittaði undir söluna.

10 mín. lestur

GreiningAfsögn Bjarna Ben

Armslengd frá stjórnar­kreppu

Afsögn Bjarna Benedikts­sonar hefur leitt af sér glundroða innan ríkis­stjórnar Íslands. Nú eru formennirnir í kappi við tímann við að finna einhverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veruleika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lágmarka skaðann fyrir ríkis­stjórnar­samstarfið og Sjálfstæðis­flokkinn.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár