„Þetta er sárt að horfa upp á“

Þegar kálfa­fullar lang­reyða­kýr eru veiddar er verið að veiða tvö dýr en ekki eitt, segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir hvala­sér­fræð­ingur. Fóstrið sem skorið var úr kú í hval­stöð­inni í gær átti lík­lega 1-2 mán­uði eftir í móð­ur­kviði.

„Þetta er sárt að horfa upp á“
Dreginn burt Starfs­menn Hvals hf. brugð­ust hratt við þegar fóstrið stóra rann út úr kviði móður sinnar. Þeir kræktu í það með mörgum krókum, líkt og sjá má á mynd­inni, og drógu það úr aug­sýn. Mynd: Arne Feuerhahn/Hard to Port

Þetta er sárt að horfa upp á og með veiðum á kálfa­fullum kúm eru tvö dýr veidd en ekki eitt,“ segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, sjávar- og atferl­is­vist­fræð­ingur, um kelfdu lang­reyð­ina sem áhöfnin á Hval 9 veiddi í fyrra­dag. Er gert var að henni í hval­stöð­inni í Hval­firði í gær­morgun og kviður hennar skor­inn upp „rann út úr móð­ur­inni“ stór kálfur, líkt og Arne Feu­er­hahn, fram­kvæmda­stjóri sjáv­ar­vernd­ar­sam­tak­anna Hard to Port, lýsti því fyrir blaða­manni Heim­ild­ar­innar.

Edda Elísabet, sem er helsti hvala­sér­fræð­ingur Íslend­inga, rýndi í myndir sem Arne tók á vett­vangi og segir kálfinn lík­lega hafa verið um 3,5-4 metra langan. „Hann er langt geng­inn en lík­lega ekki full­geng­inn,“ segir hún. „Miðað við stærð myndi ég halda að hann hafi átt um 1-2 mán­uði eftir í móð­ur­kviði.“ Lang­reyð­ar­kálfar eru yfir­leitt orðnir um 6 metrar á lengd þegar þeir fæð­ast og hafa mæður þeirra þá gengið með þá í 11-12 mán­uði.

„Þetta í sjálfu sér kemur ekki á óvart og í fyrra veidd­ist einnig hvalkýr sem var svipað langt gengin,“ segir Edda Elísabet. Hval­veiðar á þessum árs­tíma auki lík­urnar á að þær séu langt gengnar því yfir­leitt fæði þær kálfa sína í nóv­em­ber og því „nán­ast öruggt að kálfa­full kýr sé veidd“.

Arne, sem er nú annað sum­arið í röð að fylgj­ast grannt með veiðum Hvals hf. á lang­reyðum, var sleg­inn við að sjá fóstrið skorið úr kvið móð­ur­innar. Hann hefur áður orðið vitni að sam­bæri­legu en sagði við Heim­ild­ina í gær að þessi atburður hafi verið öðru­vísi á ein­hvern hátt. „Það var næstum eins og ... þegar kálf­ur­inn var skor­inn úr kviði hennar ... að hann væri enn á lífi. Ég er enn nokkuð sleg­inn eftir þetta atvik, í sann­leika sagt. Ég er eig­in­lega orð­laus.“

Hvala­sér­fræð­ingur ÍslandsEdda Elísabet Magn­ús­dóttir.

Spurð út í hversu langan tíma það tekur fyrir fóstur að deyja eftir að móðir er skotin segir Edda Elísabet erfitt að full­yrða nokkuð um það. „Kálf­ur­inn þarf auð­vitað súr­efn­is­ríkt blóð sem hann fær frá móð­ur­inni,“ svarar hún. „Ef stutt er frá því að móð­irin var veidd, þá eru alveg líkur á að fóstrið hafi haldið lífi.“

Kýrin hafði verið veidd dag­inn áður en gert var að henni, eftir því sem Heim­ildin kemst næst. Innan við sól­ar­hringur hafði því liðið frá því að móð­irin var drepin og þar til kviður hennar var skor­inn upp í hval­stöð­inni.

„Eftir að hjartað hættir að slá þá hættir nýtt blóð að ber­ast til kálfs­ins, en hversu lengi hann lifir á þeim súr­efn­is­forða þekki ég ekki,“ segir Edda Elísabet. „Það hljómar ósenni­legt að fóstrið hafi verið enn á lífi, en ég get þó ekki verið viss.“

Hvalur hf., eina fyr­ir­tækið á Íslandi sem stundar hval­veiðar, það eina í heim­inum sem veiðir lang­reyðar og eitt fárra fyr­ir­tækja í ver­öld­inni sem veiðir hvali, hefur eftir því sem næst verður kom­ist veitt 19 full­orðin dýr á yfir­stand­andi ver­tíð. Hversu mörg þeirra voru kelfdar kýr hefur Heim­ildin ekki upp­lýs­ingar um, fyrir utan þá sem skorin var í gær.

Í eft­ir­lits­skýrslu MAST um vel­ferð hvala við veiðar Hvals hf. síð­asta sumar kom fram að kven­dýr hefðu verið í meiri­hluta þeirra dýra sem veidd voru. Ástæðan er ekki þekkt og gæti verið til­viljun, sagði í skýrsl­unni. Samkvæmt gögnum Hvals hf.  var heildar hlut­fall kven­dýra 62%. „Ætla má að meiri líkur séu á að það veiðist kýr með fóstri eða kýr með kálfi, ef hlut­fall kven­dýra er hærra en karl­dýra meðal veiddra lang­reyða.“

Samkvæmt lögum og reglum um hval­veiðar er bannað að veiða hvalkálfa, hvali á spena og kven­kyns hvali sem kálfar eða hvalir á spena fylgja. Hins vegar er ekki bannað að veiða kelfdar hvalkýr sam­kvæmt núgild­andi lögum.

Edda Elísabet segir „ekki mögu­leika“ að velja á milli kynja eða ald­urs full­vax­inna dýra þegar veitt er.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hreinn viðbjóður!
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ein helsta ástæða þess að þetta dýraníð viðgengst við stendur Íslands er sú
    að Hvalur hf er einn helsti fjárhagslegur stuðningsaðili Sjálfstæðisflokksins.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár