Fiskeldi Austfjarða gaf Seyðisfirði 6 til 8 milljóna króna gjöf

Bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans í Múla­þingi hafa spurt spurn­inga um gjöf­ina frá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. Fiskeldi Aust­fjarða þarf að fá íbúa Múla­þings í lið með sér ef það á að verða af lax­eld­is­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins í Seyð­is­firði.

Fiskeldi Austfjarða gaf Seyðisfirði 6 til 8 milljóna króna gjöf
Gáfu 6 til 8 millj­ónir Fiskeldi Aust­fjarða gaf Múla­þingi 6 til 8 millj­ónir króna fyrr í sumar. Jens Garðar Helgason er fram­kvæmda­stjóri Fisk­eldis Aust­fjarða. Mynd: Laxar

Lax­eld­is­fyr­ir­tækið Fiskeldi Aust­fjarða, sem stundar lax­eldi á Aust­fjörðum og hyggur á stór­fellt lax­eldi í Seyð­is­firði, gaf 6 til 8 millj­ónir króna til sveit­ar­fé­lags­ins Múla­þings nýlega. Gjöfin var til að vinna að meng­un­ar­vörnum í Seyð­is­firði vegna olíu­leka frá skip­inu El Grilló. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð frá Umhverfis- og fram­kvæmda­nefnd Múla­þings frá því á mánu­dag­inn.

Ætla að fá íbúana í lið með sér

Fiskeldi Aust­fjarða hyggur nú á lax­eldi í Seyð­is­firði en fyrir stundar fyr­ir­tækið sjó­kvía­eldi í nokkrum öðrum fjörðum á Aust­ur­landi. Áform fyr­ir­tæk­is­ins hafa vakið hörð við­brögð hjá hluta íbúa og eru skiptar skoð­anir um eldið. Jens Garðar Helgason, fram­kvæmd­stjóri Laxeldis Aust­fjarða, hefur gefið það út að fyr­ir­tækið muni vinna í því að reyna að fá íbúa í Múla­þingi í lið með sér með kynn­ingar- og fræðslu­starfi um lax­eldið. 

Fyrr á árinu sagði Jens Garðar um þetta: „Ég lít á það þannig að nú er það í okkar höndum að upp­lýsa íbú­ana ennþá betur. Hluti af þessu er að það hefur skort á upp­lýs­inga­gjöf frá okkur í umræð­unni varð­andi ýmis álita­mál. Þetta er til dæmis um Farice-streng­inn, ofan­flóð, umhverf­is­mál og sigl­inga­leiðir.“

„Ábyrgð fylgj­andi því að gefa og þiggja“
Úr fund­ar­gerð í Múla­þingi

Efni, verkfæri og vinna frá laxeldisfyrirtækinu

Fram kemur í fund­ar­gerð­inni, undir liðnum „ábyrgð fylgj­andi því að gefa og þiggja“ að full­trúar minni­hlut­ans spyrji sig spurn­inga um gjöf­ina frá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. „Við, full­trúar V-lista og M-lista, köllum eftir því að settar verði skýrar reglur um gjafir til sveit­ar­fé­lags­ins í ljósi umræðna á fund­inum.“

Á fund­inum kom fram að eðli gjaf­ar­innar hafi verið efni, verk­færi og vinna við meng­un­ar­varnir í firð­inum. Í fund­ar­gerð­inni segir:  „Full­trúar V-lista og M-lista lögðu fram eft­ir­far­andi bókun:Á 92. fundi Umhverfis- og fram­kvæmda­ráðs 28.08. 2023 kom það fram undir umræðu við 1. dag­skrár­lið; Málefni hafna í Múla­þingi, að nýverið hefði höfnin á Seyð­is­firði (eign Múla­þings) þegið gjöf af Fiskeldi Aust­fjarða í formi efnis, verk­færa og vinnu tengt því mik­il­væga verk­efni að vinna gegn olíu­leka úr El Grilló. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem fram komu á fund­inum var verð­mæti umræddrar gjafar talið nema a.m.k. 6 - 8 millj­ónir króna.“

Ef af lax­eldi Fisk­eldis Aust­fjarða í Seyð­is­firði verður munu sigl­ingar skipa um fjörð­inn, meðal ann­ars Norrænu, geta skipt veru­legu máli fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tækið þar sem öldu­gangur og annað rask getur haft áhrif á rekstur sjó­kví­anna. Nokkru máli getur skipt fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tækið að tryggja sína hags­muni í góðu sam­starfi við sveit­ar­fé­lagið ef af eld­inu verður. Eitt atriði getur meðal ann­ars verið að stuðla að því að sigl­inga­hraði Norrænu um Seyð­is­fjörð verði lækk­aður. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    MÚTUR ?
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Að leyfa fiskeldi í Seyðisfirði er glæpur!
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Jens Garðar ætlar með ÖLLUM tiltækum ráðum að TROÐA fiskeldi ofaní kok á íbúum Seyðisfjarðar, hvar eru þingmenn í norð-austrinu ? Er búið að hóta þeim og fjölskyldum þeirra ? Er búið að færa þeim milljónir á bankareikninga eða afskrifa skuldir þeirra ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár