Nýtt rit: Löngu horfin spor, Carls saga Reichstein

Guðjón Jensson skrifar um Carl Reichstein, Þjóð­verja sem kenndi áhuga­sömum Íslend­ingum allt um svifflug, en var á sama tíma fyrsti SS-mað­ur­inn sem starf­aði á vegum sveit­ar­innar á Íslandi.

Nýtt rit: Löngu horfin spor, Carls saga Reichstein
Löngu horfin spor Í bók­inni er fjallað um örlög ungs Þjóð­verja, Carls Reichtsteins, sem kom til Íslands árið 1937 til að kenna Íslend­ingum svifflug.

Und­an­far­inn ára­tug hefi eg und­ir­rit­aður feng­ist við ritun skáld­verks sem kemur vænt­an­lega út nú undir lok sept­em­ber. Það fjallar um ungan Þjóð­verja, Carl Reichstein sem hingað er sendur síð­sum­ars 1937. Nafn hans bendir til að hann hafi verið Gyðingur en öll þessi -stein ætt­ar­nöfn eru gömul ætt­ar­nöfn fólks af gyð­ing­legum upp­runa.

Á ein­hverjum tíma­punkti hefur þessi ungi maður sem fæddur var 1909 í borg­inni Gelsenkirchen í Ruhrhér­að­inu tekið þá umdeildu ákvörðun um að ganga til liðs við SS-sveitir Nasista. Líklega hefur hann bundið þá ákvörðun ein­hverjum ókunnum for­sendum en lík­lega var þetta ekki rétt ákvörðun, kannski tekin í skyndi, kannski undir þrýst­ingi frá félögum. Með ferð sinni til Íslands eru gerðar miklar vænt­ingar til hans að afla mik­il­vægra upp­lýs­inga á Íslandi í þágu nas­ista en hann mun vera einn fyrsti SS-mað­ur­inn sem starf­aði á þeirra vegum á Íslandi. En hann var sendur hingað undir því yfir­skini að kenna áhuga­sömum ungum Íslend­ingum svifflug­í­þrótt­ina. Þann tíma sem hann starf­aði hér náði hann mjög góðum árangri á því sviði sem dag­blöðin frá þessum tíma stað­festa. En hvernig var þjóð­lífið í Reykja­vík á þessum tíma?

Reykja­vík var á þessum tíma rétt eins og flestir vax­andi bæir í Evrópu umvafin kola­reyk og óþrifum. Stundum sást ekki til Esjunnar fyrir þéttum kola­reyk sem umvafði vax­andi borg­ina nema í mjög góðu veðri. Á þessum árum var verið að taka í notkun nýja raf­stöð við Ljósa­foss sem varð til­efni reyk­vískra hús­mæðra að fá raf­magns­elda­vél í stað gaselda­véla sem mörgum stóð stuggur af. Þá voru áætl­anir um stór­felldar fram­kvæmdir að leggja hita­vatns­leiðslur úr Mos­fells­sveit til að hita upp húsin í Reykja­vík. Sund­höllin var nýlega tekin í notkun og þangað sóttu Reyk­vík­ingar böð og sund­kennslu sem áður hafði farið fram í Laug­ar­dal.

Mann­lífið var nokkuð öðru­vísi en nú, Reykja­vík var sem ofvaxið íslenskt sveita­þorp þar sem aðkomu­fólkið úr sveitum lands­ins höfðu með sér frá bernsku­stöðv­unum hug­myndir til betra lífs. Það hafði með sér þrá að finna sér betri fram­tíð á möl­inni en var til sveita. Þar hafði um aldir verið enda­laust strit, gríð­ar­leg vinna að baki allri verð­mæta­sköpun. Arður af vinnu fólks­ins þá var ein­ungis brot af því sem síðar varð með sívax­andi notkun véla og auk­innar þekk­ingar í þágu fram­fara.

Dregin er upp mynd af mann­líf­inu í Reykja­vík, við fylgj­umst með stétta­bar­átt­unni og fylgj­umst með verka­fólk­inu 1. maí 1938. Þjóð­ern­is­sinnar voru fyr­ir­ferð­ar­miklir á þessum árum og létu stöðugt meira til sín taka í íslensku sam­fé­lagi með fyr­ir­mynd­ina miklu í Þýska­landi í huga. En þeir voru alltaf fremur fámennir en eftir því háværir og uppi­vöðslu­samir.

Já þetta voru að mögu leyti sér­kenni­legir tímar.

Hvað gerð­ist á Íslandi sum­arið 1938? Þetta ár átti eftir að vera mjög við­burða­ríkt, margt gerð­ist, sumt gott en annað því miður. Fráfall svifflug­kenn­ar­ans frá Þýska­landi 8. júlí 1938 vakti ýmsar vanga­veltur einkum blaða­manns Þjóð­vilj­ans sem vék skrifum sínum oft að þeim æsinga­mönnum sem þá voru búsettir í Reykja­vík og tengd­ust þýskum nas­ist­unum. Sagt er frá þýsku vinnu­fylk­ing­unni, Deutsche Arbeits­front sem teygði umdeilda hramma sína alla leið til Íslands. Þessi blaða­maður hét Hendrik Ottósson ein­hver okkar besti rann­sókn­ar­blaða­maður á fyrri tímum.

Nas­ism­inn var skelfi­legt fyr­ir­bæri. Þetta tíma­bil þýskrar sögu er afar við­kvæmt og er það skilj­an­legt. Rann­sóknir mínar und­an­far­ins ára­tugar skilja eftir ýmsar spurn­ingar en einnig nokkrar áhuga­verðar nið­ur­stöður. Ein var sú að ein þýsk rík­is­stofnun sem nas­istum tókst seint að ná yfir­stjórn á, Das auswärtige Amt, en svo nefn­ist utan­rík­is­ráðu­neytið þýska meira að segja enn í dag. Innan þýsku utan­rík­is­þjón­ust­unnar störf­uðu víða um heim vel­mennt­aðir þýskir diplómatar sem margir hverjir von­uð­ust til að þýski nas­ism­inn væri ein­ungis tíma­bundið ástand og þýski her­inn eða aðrir aðilar gripu til við­eig­andi ráð­staf­ana og bol­uðu þessum skelfi­legu valda­mönnum frá. Þessir þýsku diplómatar voru vel með­vit­aðir um hversu mik­il­væg mann­rétt­indi eru sem og lýð­ræði í sam­fé­lag­inu. Þeir aðlög­uð­ust vel þeim aðstæðum í þeim löndum þar sem þeir störf­uðu. Þeir vildu vera bæði sér og þjóð sinni til sóma þar sem þeir störf­uðu á erlendri grund. 

Meðal þess­ara þýsku diplómata var þýski aðal­konsúll­inn í Reykja­vík á árunum 1934-1939, nátt­úru­fræð­ing­ur­inn Günter Timmer­mann sem var leystur af Werner Gerlach vorið 1939. Næsti yfir­maður hans var Cecil von Renthe-Fink þýski sendi­herr­ann í Kaup­manna­höfn sem bjó þannig um hnút­ana vorið 1940 að Danir yrðu fyrir sem minnstu óþæg­indum vegna her­náms þýska hers­ins. Þessi sendi­herra starf­aði í Danmörku fram undir jól 1942 og voru Danir ánægðir með störf hans. Meðan hans naut við fóru Danir mjög vel út úr her­nám­inu, meira að segja kóng­ur­inn þeirra fékk að fara óáreittur um götur Kaup­manna­hafnar á hesti sínum. En í árs­byrjun 1943 kom til Dan­merkur mjög skelleggur nas­isti Werner Best að nafni. Varð eitt fyrsta verk hans í Danmörku að skipa Gestapo að hand­taka allt lög­reglu­lið Kaup­manna­hafnar sem varð til­efni mik­illa umskipta. Danska and­spyrnu­hreyf­ingin fékk Breta að gera loft­árás á Shell húsið í Kaup­manna­höfn þar sem aðal­stöðvar Gestapo í Danmörku voru. 

Mjög áleitin spurn­ing er hvort Nasistar vildu afla upp­lýs­inga um þýska aðal­ræð­is­mann­inn til að öðl­ast til­efni að kalla hann sem fyrst heim og senda sinn mann í stað­inn? Það gerð­ist snemma vorið 1939 þá Werner Gerlach var sendur hingað. Hann varð fljót­lega mjög aðsóps­mik­ill á Íslandi, jók umsvif ræð­is­manns­ins mjög veru­lega og varð oft til­efni til grun­semda að ekki væri allt með felldu.

Skáld­verkið um Carl Reichstein er byggt á ítar­legri rann­sókn heim­ilda sem þó eru ekki að fullu rann­sak­aðar. Í þýska þjóð­skjala­safn­inu, Deutsche Bundes Arkiv er gríð­ar­legt magn af skjölum frá þessu tíma­bili sem seint verða að fullu rann­sökuð. Þess má geta að nas­istar héldu uppi ofur­ná­kvæmu bók­haldi um athafnir sínar og gjörðir. Var það allt varð­veitt í skjala­safni þeirra sem var í þeim borg­ar­hluta Berlínar sem síðar lenti á her­náms­svæði Rússa. Þeir afhendu eftir stríðið aust­ur­þýsku yfir­völd­unum í Berlín DDR þetta skjala­safn sem var stofn­inn að skjala­safni Stasi. Á þeim bæ voru upp­lýs­ingar úr þessu skjala­safni nas­ista gjör­nýttar, kannað hverjir væru enn lif­andi meðal SS-manna og þeir knúðir til sam­starfs við Stasi. Er þarna komin meg­in­skýr­ingin á því hvernig stóð á því hversu njósn­a­net Stasi í Vestur-Þýska­landi, BRD, var þéttriðið. Varla var sú ákvörðun sem tekin var af hærri sem lægra settum yfir­völdum innan Vestur-Þýska­lands sem semi ekki barst Stasi á ótrú­lega fljót­legan hátt. Var þetta lengi ekki vitað en grun­semdir voru alltaf fyrir hendi en varð ekki stað­fest en eftir fall komm­ún­ism­ans í Austur-Evrópu.

Þegar DDR leið undir lok þá reyndu starfs­menn Stasi vikum saman að eyða við­kvæmum skjölum í papp­írstæt­urum. Tugir þús­unda rusla­poka skildu Stasi menn eftir í geymskum skjala­safns­ins, troð­fullum af papp­írs­strimpl­unum eyði­lagðra skjala. Á síð­ustu árum hafa strimpl­arnir verið skann­aðir og tölvu­tæknin notuð til að raða öllu upp á nýtt. Þetta er sein­legt verk en í fram­tíð­inni má vænta þess að unnt verði að bregða upp betra ljósi um þetta skelfi­lega tíma­bil þýskrar sögu.

Þess má geta að mjög strangar reglur gilda hjá Bundes Arkiv um aðgang að skjölum og upp­lýs­ingum frá þessum umdeildu tímum enda er fyllsta ástæða til þess að ótt­ast að við­kvæmar upp­lýs­ingar kunni að lenda í höndum  óprútt­inna aðila sem vilja gera sér þessar við­kvæmu upp­lýs­ingar að féþúfu eða til fram­dráttar.

Meðan á ritun Carls sögu Rechstein stóð, veikt­ist höf­undur alvar­lega af krabba­meini sem hefur haft mikil áhrif. Hann ein­beitti sér að dreifa hug­anum frá þessum alvar­lega sjúk­dómi með því að ein­beita sér sem mest að þessu verki. Það tókst og eftir að bar­átt­unni gegn vágest­inum lauk þá var oft erfitt að taka upp þráð­inn að nýju. Verk­efnið minnti höf­und­inn á þessa miklu erf­ið­leika í lífi hans sem nú eru bless­un­ar­lega að baki.

En nú er þessu verki lokið með hvatn­ingu vina og vanda­manna. Er verkið nú lagt í dóm les­enda og gagn­rýnenda. Vonast höf­und­ur­inn til þess að tek­ist hafi þokka­lega til.


Höfundur er eldri borg­ari í Mos­fellsbæ, tóm­stunda­blaða­maður og leið­sögu­maður.
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson skrifaði
    Reichstein var ekki gyðingur. Þegar Mogginn skrifaði fyrst um þessa dellubökun Guðjóns Jenssonar árið 2018, skrifaði ég um firruskrif hans. Sjá: https://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/2221297/ Óska ég Guðjóni góðs bata, þó hann styðji einnig opinberlega morðsveitir Hamas.
    0
  • Orri Olafur Magnusson skrifaði
    Ég hlakka til að fá bókina til lestrar . Þessi ár voru merkilegri en svo að þau megi fyrnast í minni Íslendinga! Náðu góðum bata !
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár