Yfirvöld vita ekki hve mörg þeirra sem svipt voru þjónustu eru á landinu

Góðgerðar­samtök hafa síðustu vikur skotið skjóls­húsi yfir tugi einstaklinga sem annars hefðu endað á götunni eftir að hafa verið synjað um vernd og svipt allri þjónustu. Lögmaður segir að yfirvöld varpi ábyrgð yfir á félaga­samtök og einstaklinga. Þá geti bóta­skylda ríkisins gagnvart þessum hópi fallið niður eftir að þeim hafi verið komið í skjól.

Skorað á stjórnvöld að bæta stöðu fólks sem svipt hefur verið þjónustu
Skorað á stjórn­völd að bæta stöðu fólks sem svipt hefur verið þjón­ustu Á sam­ráðs­fundi 28 félaga­sam­taka vegna fólks sem hefur verið svipt opin­berri þjón­ustu var skorað á stjórn­völd að bæta stöðu þess, mik­il­vægt væri að bregð­ast hratt við því að þeim færi fjölg­andi á næstu vikum. Rúmur hálfur mán­uður er lið­inn frá því fund­ur­inn var hald­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Frá því að ný útlendingalög tóku gildi hafa 58 manneskjur fengið tilkynningu frá embætti ríkis­lögreglu­stjóra um að þjónusta sem þau hafa fengið frá yfir­völdum falli niður. Um er að ræða fólk sem hefur verið synjað um vernd hér á landi en samkvæmt lögunum fellur öll þjónusta niður 30 dögum eftir endanlega synjun „ef þeir sýna ekki samstarfs­vilja við brottför“, eins og segir í svari ríkis­lögreglu­stjóra við fyrir­spurn Heimildarinnar, en dómsmála­ráðuneytið vísaði „alfarið á stoðdeild ríkis­lögreglu­stjóra varðandi tölurnar“, þegar Heimildin leitaði þangað eftir þessum upplýsingum. 

Fimm manneskjur hafa því, samkvæmt svörum embættis ríkis­lögreglu­stjóra, bæst við þennan hóp frá því að fjöl­miðlar greindu fyrst frá því í byrjun ágúst að búið væri að svipta tugi einstaklinga grunn­þjónustu.

Þá var staðan sú í þessari viku, samkvæmt ríkis­lögreglu­stjóra, að tólf einstaklingar höfðu dvalið í þjónustu í þrjátíu daga „án þess að sýna samstarfs­vilja og misstu því þjónustu“.

…
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár