Þessi grein birtist fyrir rúmlega 9 mánuðum.

„Til í þennan vetur“ eftir að hafa íhugað stöðu sína í sumar

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra íhug­aði stöðu sína í sum­ar. Nið­ur­stað­an var að hún væri „mjög til í þenn­an vet­ur“. Skiln­ing­ur milli formanna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafi auk­ist, en út­lend­inga­mál­in séu erf­ið. Hún hafi ver­ið vör­uð við því að fara í póli­tík, því hún gæti missti frá sér vini. Það gerð­ist 2017. Katrín spyr á hverju vinátta bygg­ist ef póli­tík ráði för.

„Til í þennan vetur“ eftir að hafa íhugað stöðu sína í sumar

„Ég væri örugglega ekki enn þá í pólitík ef ég væri ekki fyrir löngu búin að taka þá afstöðu að ég horfi bara á árangurinn. Þetta snýst ekki um hvernig mér líður,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, þegar Heimildin settist niður með henni á dögunum til að fara yfir hið pólitíska svið, átakamálin í ríkisstjórninni, komandi þingvetur, áherslur hennar og Vinstri grænna, en hún hefur undanfarin ár oft verið sökuð um að gefa vænan afslátt af hugsjónum hreyfingarinnar í samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn. 

Stefið í stefnu VG hefur frá upphafi snúist um mannúð. Þau sem hafa gagnrýnt Katrínu hvað harðast síðustu ár segja hreyfinguna hafa farið út af sporinu á hennar vakt, mildin sé hverfandi, lagið sé falskt. Og að Vinstri græn hafi ítrekað beygt sig undir vilja Sjálfstæðisflokksins.

Stuðningsfólk Vinstri grænna og ríkisstjórnarinnar segir að með samstarfi ólíkra flokka hafi verið hönnuð brú milli …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Góð fyrirsögn, og nær eiginlega öllu sem máli skiptir. Erindið er ekki annað og meira en að sitja einn vetur til.
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Siggi Rey skrifaði
    26. ágúst 2023 14:03
    Mestu mistök lífs míns er að hafa einu sinni kosið VG. Katrín, þú hljómar fallega en bara á yfirborðinu. Við gerum okkur mörg grein fyrir að þú hefur selt sál þína og heiður fyrir stólræfil. Þú ert ekki hótinu betri en forveri þinn Jóhanna Sig. Almúginn skiptir ykkur ekki neinu máli svo framarlega sem þið trónir á toppnum. Frelsi, jafnrétti og bræðralag ekki til í ykkar orðaforði. Maður skammast sín fyrir að vera Íslendingur í spillingunni sem þið fórnið fólki fyrir og elskið!
    2
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Ofmetinn einstaklingur sem stendur ekki undir væntingum.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár