Skert ferðafrelsi og öryggisgæsla í „búsetuúrræði með takmörkunum“

Ferða­frelsi fólks sem hefur verið synjað um vernd hér og fer ekki úr landi verður takmarkað og öryggis­gæsla við íverustað þeirra gangi hugmyndir Guðrúnar Hafsteins­dóttur, dómsmála­ráðherra um „búsetu­úrræði með takmörkunum“ eftir. Hún segir að lagalegur misskiln­ingur sé á milli dómsmála- og félagsmála­ráðuneytis hvað varðar þjónustu við fólkið sem um ræði.

Talið er að á sjötta tug einstaklinga séu nú án allra réttinda hér á landi og fólkið fær ekki þjónustu eftir að hafa verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi.

Samkvæmt nýju útlendinga­lögunum er fólk svipt allri þjónustu þegar þrjátíu dagar eru liðnir frá synjun um vernd. Þetta er talið þýða að tugir einstaklinga séu nú þegar eða gætu endað á götunni. Guðrún Hafsteins­dóttir, dómsmála­ráðherra segir að ekki sé vitað hvar fólkið sé, „verkefnið er hjá stoðdeild ríkis­lögreglu­stjóra,“ segir hún í samtali við Heimildina.

„Einhverjar takmarkanir á ferðafrelsi fólks“

Hún segir að ábyrgðin liggi hjá fólkinu sjálfu því að búið sé að fara yfir umsóknir þeirra um vernd á tveimur stjórnsýslu­stigum og þar með sé málum þeirra lokið hér. „Þegar fólk ætlar ekki að lúta ákvörðun stjórn­valds er það í ólögmætri dvöl,“ segir Guðrún. 

Hún segir „meiri líkur en minni“ á að hún …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Nú geisar hræðilegt stríð í Úkraínu. Sem betur fer ákváðu íslensk stjórnvöld að taka á móti fjölda flóttamanna þaðan.

    Í Sýrlandi hefur geisað hræðilegt stríð árum saman. Þaðan hefur flúið mikill fjöldi manna undan stríðsógninni.

    Það er fróðlegt að bera saman viðbrögð íslenskra stjórnvalda þegar sá straumur flóttamanna stóð sem hæst 2015 og nú gagnvart flóttamönnunum frá Úkraínu.

    Er hugsanlegt að munurinn skýrist af því að flestir flóttamanna frá Sýrlandi voru múslimir en flestir frá Úkraínu kristnir ?
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það vekur furðu að þessi lög skuli vera afturvirk og beitt geng einstaklingum sem samfélagið hefur ekki getað tekið afstöðu til svo árum saman – líklega vegna lélegrar stjórnsýslu.
    Væri þá ekki athugandi að setja í snatri lög um réttindi og skyldur ráðamanna og láta þá lúta undir sömu lög og almennt gerist. Og með sama hætti, draga fyrir dómstóla, ráðamenn sem hundsað hafa athugasemdir um gjörðir sínar á liðnum árum.
    1
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Ríkisstjórn VG klikkar ekki á sínum hægri öfgum ? Munið að það er ekki sama hver stjórnar ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár