Losun fólgin í því að ganga öskrandi

Lísa Margrét Gunn­ars­dóttir forð­að­ist Druslu­göng­una þegar hún var ung­lingur. Henni fannst stuð­andi að vera umkringd umræðu um kyn­ferð­is­of­beldi, enda hafði hún ítrekað verið beitt slíku ofbeldi. En um helg­ina mun Lísa ganga hróp­andi og kallandi niður Skóla­vörðu­stíg­inn og Banka­strætið, umkringd fólki sem hefur einnig verið beitt ofbeldi, eða vill sýna þolendum stuðn­ing.

Losun fólgin í því að ganga öskrandi
Kraftur í göng­unni „Mér finnst mik­ill galdur fólg­inn í því að fá að vera svo­lítið reið en gleðj­ast líka yfir því að vera ekki ein,“ segir Lísa. Mynd: Anoop A Nair

Í rólegum hlið­ar­her­bergjum á bar í Banka­stræti opnar fólk sig um ofbeldi sem það hefur kannski aldrei talað um áður. Það mætir opnum eyrum ann­arra, eyrum sem skilja. Þetta er ekki endi­lega fólk sem þekk­ist nokkuð. En það á sær­indin sam­eig­in­leg og það skilur hvert annað. 

Það eru svona augna­blik sem verða til á pepp­kvöldum Druslu­göng­unnar árlega. Slíkt kvöld var haldið í gær og gangan sjálf fer fram á morgun. Hún hefst með varn­ings­sölu klukkan 13 við Hall­gríms­kirkju, og gengið er af stað klukkan 14. 

Lísa Margrét Gunn­ars­dóttir er ein af þeim sem koma að skipu­lagn­ingu Druslu­göng­unnar í ár. Eins og mörg önnur sem taka virkan þátt í að skipu­leggja göng­una hefur hún per­sónu­lega reynslu af ofbeldi. 

„Ég var mis­notuð sem barn, sem ung­lingur og ég hef upp­lifað ofbeldi í sam­bandi,“ segir Lísa. 

Á ung­lings­ár­unum forð­að­ist hún göng­una.

„Mér fannst vont að mæta …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár