Þróunarsamvinna Íslands: Hækka framlög með „bókhaldsbrellu“

Íslensk stjórn­völd hafa óspart nýtt sér glufu sem gerir þeim kleift að telja kostnað við flótta­fólk á Íslandi fram sem opin­bera þró­un­ar­að­stoð. Þegar stjórn­mála­menn hreykja sér af auknum fram­lögum hefur lítið verið aukið við hefð­bundna þró­un­ar­að­stoð. End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki segir bók­haldið ekki stand­ast lög um opin­ber fjár­mál og að töl­urnar séu ekki byggðar á raun­kostn­aði heldur með­al­tali og spám.

Þróunarsamvinna Íslands: Hækka framlög með „bókhaldsbrellu“
Utan­rík­is­ráð­herrar Ýmislegt hefur gerst síðan Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir tók við af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni. Eitt af því er úttekt sem KPMG var fengið til að gera á þró­un­ar­sam­vinnu­kostn­aði vegna umsækj­enda um vernd og kvótaflótta­fólks. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þá utan­rík­is­ráð­herra, botn­aði ekk­ert í því af hverju væri verið að „skamma hann“, eins og hann orð­aði það sjálfur í pontu Alþingis í mars­mán­uði 2019, fyrir það hvernig fjár­munum Íslands til þró­un­ar­að­stoðar væri varið. Þetta var í umræðu um fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda fyrir árin 2020 til 2024 en í henni var dregin upp mynd af því hversu metn­að­ar­full stjórn­völd ætl­uðu sér að vera næstu árin hvað varðar alþjóð­lega þró­un­ar­að­stoð og mark­mið um að verja 0,7 pró­sentum af þjóð­ar­fram­leiðslu til hennar, eins og Ísland og önnur iðn­ríki höfðu lofað Sam­ein­uðu þjóð­unum að gera og raunar sett í lög árið 1971. 

Íslensk stjórn­völd ætl­uðu sér þó ekki að vera neitt sér­stak­lega metn­að­ar­full, eins og Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, orð­aði það í sömu umræðu. Ísland, „ein rík­asta þjóð í heimi“, ætl­aði ein­göngu að ná hlut­fall­inu 0,35 pró­sent á tíma­bil­inu fyrir árið 2024. Stjórn­völd ætl­uðu með öðrum orðum að miða …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár