Þórhildur Sunna: Trúnaður ekki brotinn

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­formaður Pírata og fulltrúi í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd Alþingis, lítur ekki svo á að trúnaður hafi verið brotinn með því að birta skýrsluna um Lindar­hvol opinber­lega.

Braut ekki trúnað
Braut ekki trúnað Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata og full­trúi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, segir mik­il­vægt að fólk sem þekkir til hafi nú loks tæki­færi til að kynna sér mál­efni Lind­ar­hvols, nú þegar skýrslan er komin fyrir sjónir almenn­ings. Mynd: Pressphotos

„Nei, ég tel mig vera styrkum fótum að birta þetta þar sem liggja fyrir þrjú lögfræði­álit þar sem segir að skylt sé að birta þetta. Það eina sem hefur staðið í vegi fyrir að þetta sé birt er að forseti Alþingis er ekki til í að birta þetta,“ segir Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, þingmaður Pírata, í samtali við Heimildina. 

Nefndar­menn í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd fengu útprentað afrit af skýrslu Sigurðar Þórðar­sonar, fyrr­verandi setts ríkis­endur­skoðanda, um Lindar­hvol í pósthólf sín í morgun. Píratar birtu skýrsluna á vefsíðu sinni fyrr í dag en mikil leynd hefur hvílt yfir henni síðan árið 2018. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, telur að það hafi ekki þýtt að trúnaði yfir skýrslunni hafi verið aflétt.

„Ég fékk hana í hendur og fannst mikilvægt að þetta kæmi fyrir augu almennings. Það liggur fyrir að settur ríkis­endur­skoðandi hefur alltaf verið á þeirri skoðun að þetta …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    hvað er hún EU-snúlla að snúllast núna . . . hvað með „Project 110 ár“ ? . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár