Stöðugt streymi Hermaður kemur með hund í land. Daginn áður frétta­rit­ari Heim­ild­ar­innar kom til Kherson var um 200 hundum og köttum bjargað úr flóð­unum. Mynd: Óskar Hallgrímsson

„Eins og Feneyjar, bara með fljótandi jarðsprengjum“

Nova-Kakhovka stíflan í Kherson-hér­aði í Úkraínu var sprengd í síð­ustu viku og brast í kjöl­farið. Vatn flæddi yfir fjöl­margar byggðir og eyði­legg­ingin sem flóðin hafa valdið er gíf­ur­leg. Óskar Hall­gríms­son fór á vett­vang, mynd­aði aðstæður og lýsir hér því sem við honum blasti.


„Farðu frá Kherson strax,“ eru skila­boð sem við fáum frá Jaroslav, úkra­ínskum blaða­full­trúa, sem hafði skipu­lagt ferð okkar inn í borg­ina Kherson í Suður-Úkraínu. Á prófíl­mynd Jaroslavs í skila­boða­for­rit­inu WhatsApp má sjá hann íklæddan her­bún­ingi, reykj­andi sígar­ettu með Hollywood-leik­ar­anum Sean Penn.

Skila­boðin birt­ust í símunum okkar á meðan við leit­uðum skjóls eftir að sprengjum rigndi niður allt í kringum okkur og á mið­stöð hjálp­ar­starfs í borg­inni, þar sem hund­ruð sjálf­boða­liða, björg­un­ar­fólks og brott­fluttir almennir borg­arar héldu til.

Kherson og íbúar hennar hafa ekki átt sjö dag­ana sæla í stríð­inu og hvað eftir annað endað í heims­frétt­unum, fyrst í byrjun mars 2022 þegar borgin var fyrsta úkra­ínska stór­borgin sem Rússar náðu á sitt vald eftir inn­rás­ina. Svo aftur í nóv­em­ber þegar Úkra­ínu­her, í fram­rás sem kennd er við Kherson-fylkið, náðu borg­inni aftur á sitt vald.

Síðan þá hafa Rússar gert nán­ast dag­legar árásir á borg­ina, oftar en ekki …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár