Verðbólga mælist nú 9,5 prósent á ársgrundvelli

Vísitala neyslu­verðs hækkar um 0,39 prósent á milli mánaða, en mæld verðbólga á ársgrund­velli lækkar úr 9,9 prósentum frá því í apríl niður í 9,5 prósent.

Peningar
Peningar Vísitala neyslu­verðs hækkar vissu­lega á milli mán­aða, en hækk­unin á milli apríl og maí er minni en hækk­unin á mili maí og júní í fyrra, sem þýðir að 12 mán­aða verð­bólga mælist lægri nú Mynd: Shutterstock

Mæld tólf mánaða verðbólga lækkar á milli mánaða, úr 9,9 prósentum niður í 9,5 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar um vísitölu neyslu­verðs í maí.

Vísitalan er þó að hækka, eða um 0,39 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neyslu­verðs án húsnæðis hækkar um 0,14 prósent frá því í apríl.

Í tilkynningu frá Hagstofunni kemur fram að verð á mat- og drykkjar­vörum hafi hækkað um 0,8 prósent á milli mánaða og að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hafi hækkað um 1,3 prósent. Hefur húsnæðis­liðurinn mest áhrif á hækkun vísi­tölunnar á milli mánaða.

Á móti þessum hækkunum vegur hins vegar lækkun flug­fargjalda, en þau lækkuðu um 7 prósent frá mælingu Hagstofunnar í apríl.

Á undan­förnum tólf mánuðum mælist verðbólga, ef ekki er horft til húsnæðis­liðarins, 8,4 prósent.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­bankans tilkynnti á miðvikudag um stýri­vaxtahækkun, þá þrettándu í röð, til að reyna að koma böndum á verðbólgu. Vextir bankans hækkuðu um 1,25 prósentu­stig og eru nú 8,75 prósent.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár