Samherji dregur Odee fyrir dómara í Bretlandi

Samherji fékk lög­bann á vef­síðu sem er hluti af lista­verk­inu „We‘re Sorry“ eftir Odd Eystein Frið­riks­son, Odee. „Þetta er að mínu mati hrein og bein rit­skoðun á íslenskri mynd­list og lista­verk­inu mínu. Ég for­dæmi það,“ segir lista­mað­ur­inn.

Samherji dregur Odee fyrir dómara í Bretlandi
Mun grípa til varna Odee hefur þegar ráðið sér lög­menn til að verja hags­muni sína gagn­vart Samherja í Bret­landi. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Lista­mað­ur­inn Odee, Oddur Eysteinn Frið­riks­son, hefur tekið vef­síð­una sam­herji.co.uk, sem hýsti „We‘re Sorry“ Sam­herj­a­gjörn­ing­inn, úr birt­ingu. Það gerði hann að skipan dóm­ara í Bret­landi eftir að útgerð­ar­fyr­ir­tækið Samherji krafð­ist, og fékk úrskurðað, bráða­birgða­lög­bann á hendur honum síða­slið­inn föstu­dag. „Ég lít á þetta sem alvar­lega aðför að tján­ing­ar­frelsi mínu og kanna nú leiðir til að fá lög­bann­inu hnekkt,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Odee.

Umrædd vef­síða fór í loftið að morgni 11. maí og á sama tíma sendi Odee frétta­til­kynn­ingu til um 100 fjöl­miðla í fjöl­mörgum löndum. Í frétta­til­kynn­ing­unni, sem sett var fram í nafni Samherja, var beðist afsök­unar á fram­ferði fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu, bótum lofað og fullu sam­starfi við yfir­völd vegna rann­sóknar á gjörðum fyr­ir­tæk­is­ins.

Samherji sendi frá sér til­kynn­ingu klukkan 11.00 sama dag þar sem fyr­ir­tækið sór af sér bæði …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Í fréttatilkynningunni, sem sett var fram í nafni Samherja ??????

    Þetta mál er auðvitað ekki búið en listamenn geta ekki sett fram gjörninga í annarra nafni og heimtað að fá að gera það án viðbragða... í nafni "tjáningarfrelsis". Svolítið mikið kurteisi nauðgarinn í þeim rökfræðum.

    En á öngvan hátt getur þetta orðið Samherja annað en orðsporstjón... þeir eru búnir að grafa sig neðar og neðar... og kannski rétt þeir endurskoði aðkeypta vinnu Vikborg Rein. ?

    Íslenskir þingmenn og kerfið munu auðvitað ekki gera neitt ... legið ljóst fyrir frá því fyrir stofnun sérstaks.

    Kerfið er spillt og gallað og Samherji bara eitt af einkennunum... reynið nú að horfa rétt á málin því +i dag erum við verr stödd en fyrir 2008
    3
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það er orðið tímabært að héraðssaksóknari upplýsi um nýja lokametra, um hvort Samherja-forstjórinn eða handbendi hans og starfsfólk hafi veist að saksóknurum með einhverjum hætti. Samherja-svindlið í Namibíu er löngu orðið að KRABBAMEINI í samfélaginu Íslandi. Sameinaður þingheimur hefur enga undankomu í þessu ÓÞVERRA máli, sem hefur kyrkingartak á Íslandi. Þingheimur verður að AFNEMA kvótakerfið = taka til baka VALDIÐ, sem ríkisstyrkta-einokunar-útgerðin hefur yfir þingmönnum/ráðherrum/bæjarfulltrúum og taka upp nýja fiskveiðistjórn = DAGA-kerfi-frjálsar-handfæraveiðar og selja allann fisk á fiskmarkaði.
    5
  • Brynja Óskarsdóttir skrifaði
    Eymingjans Samherjastjórnendur 😂 Þeir opinbera sig stöðugt sem forherta og húmorslausa. Odee á heiður skilinn fyrir hugrekki sitt og að gera ljóst að auk Samherja ber íslenska þjóðin ábyrgð á græðginni að baki auðsöfnun fyrirtækisins og að hafa þegið mola af borði þess. Ég, ekki gallalaus og íslensk manneskjan, skammast mín fyrir hönd Samherja og þjóðarinnar. Sorgmædd líka vegna hins góða uppbyggingarstarfs Íslendinga í fiskveiðum í Namibíu, Þróunarstofnunarinnar forðum daga, sem Samherji hefur nú grafið undan og skemmt. Áfram Odee og listunnendur allir!
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár