Bensínlítrinn er hvergi dýrari en á Íslandi meðal ríkja Evrópusambandsins, og raunar innan Evrópska efnahagssvæðisins alls. Álögur hins opinbera á bensín skýra að einhverju leyti hið háa verð, auk flutningskostnaðar. Eftir stendur álagning olíufélaganna sem starfa hérlendis, til að skýra mismun á milli Íslands og hinna Evrópulandanna.
Raunar er bensínverð á Íslandi það þriðja hæsta í heiminum öllum, sé miðað við vefsíðuna Global Petrol Prices, sem safnar gögnum um eldsneytisverð í yfir 150 ríkjum heims. Aðeins í Hong Kong, sem raunar er ekki sjálfstætt ríki, og í Mónakó er eldsneyti dýrara en hér á landi.
316,5 kr/l
Meðalverð á 95 oktana bensíni á Íslandi var, 15. maí síðastliðinn, 316,5 krónur hver lítri, samkvæmt gögnum sem framkvæmdastjórn ESB tekur saman. Hlutfall opinberra gjalda þar af var 157,5 krónur, eða rétt tæpur …





















































Athugasemdir (1)