Stýrivextir hækka meira en búist var við – Nú orðnir 8,75 prósent

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur hækkað stýri­vexti í þrett­ánda sinn í röð, nú um 1,25 pró­sentu­stig, í bar­áttu sinni við verð­bólg­una, sem mælist nú 9,9 pró­sent.

Stýrivextir hækka meira en búist var við – Nú orðnir 8,75 prósent
Seðla­banka­stjóri Ásgeir Jónsson er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­­­banka Íslands hefur hækkað stýri­vexti sína um 1,25 pró­sentu­stig og upp í 8,75 pró­sent. Þetta er þrett­ánda vaxta­hækk­unin í röð. Stýri­vextir náðu sögu­legu lág­marki í maí 2021, áður en að yfir­stand­andi vaxta­hækk­un­ar­ferli hófst, en þá voru þeir 0,75 pró­sent. Stýri­vextir voru síð­ast svona háir í jan­úar 2010, rúm­lega einu  ári eftir banka­hrunið. 

Nefndin hækk­aði síð­ast vexti í mars, þá um eitt pró­sentu­stig, en verð­bólgan hefur hækkað lít­il­lega síðan þá og mæld­ist 9,9 pró­sent í síð­asta mán­uði. Grein­ing­ar­að­ilar voru því allir á einu máli um að stýri­vext­irnir myndu hækka dug­lega í dag, enda næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur ekki fyrr en í ágúst og því langt í næsta tæki­færi pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar til að beita vaxta­tæk­inu í bar­átt­unni gegn verð­bólg­unni.  Flestir spáðu þó eins pró­sentu­stiga hækkun, og hækk­unin því umfram vænt­ingar. 

Í verð­bólgumati sem Ver­ati­bus, sem notar eigin verðkann­anir og opin­ber gögn við mat á verð­bólgu, hefur gert fyrir Heim­ild­ina er því spáð að verð­bólgan muni hjaðna lít­il­lega á milli mán­aða, og fara úr 9,9 í 9,7 pró­sent. Hag­stofan mun birta sínar verð­bólgu­tölur á föstu­dag, þann 26. maí. Í mati Ver­ati­bus kemur fram að fyr­ir­tækið telur verð á mat og drykkja­vöru hafa hækkað um 1,3 pró­sent milli mán­aða og lið­ur­inn hús­næði, hiti og raf­magn hafi hækkað um 1,2 pró­sent. Ráðandi þáttur í því að verð­bólgan lækkar aðeins milli mán­aða sé að verð á  ferðum og flutn­ingum hafi dreg­ist saman um þrjú pró­sent frá því í apríl. 

Þegar verð­bólgu­þróun er skoðuð ár aftur í tím­ann þá hefur mat­vara hækkað um 12,7 pró­sent sam­kvæmt mati Ver­ati­bus og hús­næð­is­kostn­aður um 12,5 pró­sent. Hús­næð­is­mark­að­ur­inn hefur þó róast á síð­ustu mán­uðum en hækkar samt lít­il­lega milli mán­aða, meðal ann­ars vegna verð­bólgu sem hefur áhrif á reikn­aða húsa­leigu, inn­fluttrar kostn­að­ar­verð­bólgu og launa­breyt­inga.

„Aukin hætta er því á að verðbólga reynist þrálát“

Í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar segir að efna­hags­um­svif hafi verið kröftug það sem af er ári og sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sé spáð 4,8 pró­sent hag­vexti á árinu í stað 2,6 pró­sent í febr­úar. Þar vegi horfur á meiri vexti inn­lendrar eft­ir­spurnar þungt en einnig sé útlit fyrir kröft­ugri umsvif í ferða­þjón­ustu.

Verð­bólga hafi mælst 9,9 pró­sent í apríl og auk­ist lít­il­lega milli mán­aða. „Und­ir­liggj­andi verð­bólga heldur áfram að aukast og miklar verð­hækk­anir mæl­ast í sífellt stærri hluta neyslukörf­unnar. Útlit er fyrir að verð­bólgu­þrýst­ingur verði tölu­vert meiri í ár og á næsta ári en áður var gert ráð fyrir. Verð­bólgu­vænt­ingar til lengri tíma hafa jafn­framt hækkað og eru vel yfir mark­miði. Aukin hætta er því á að verð­bólga reyn­ist þrá­lát.“

Í ljósi þess sé nauð­syn­legt að herða taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar. „Einkum er mik­il­vægt að koma í veg fyrir víxl­verkun hækk­andi launa og verð­lags, sér­stak­lega þegar litið er til mik­illar spennu í þjóð­ar­bú­inu og hversu stutt er í næstu kjara­samn­inga­lotu. Horfur eru því á að hækka þurfi vexti enn meira til að tryggja betra jafn­vægi í þjóð­ar­bú­skapnum og koma verð­bólgu í mark­mið.“

Hefur mikil áhrif á þróun íbúðalánavaxta

Frá vor­inu 2021 hefur staðan á Íslandi breyst hratt. Stýri­vextir hafa nú verið hækk­aðir þréttán sinnum í röð og eru komnir í 8,75 pró­sent. Verð­bólga hefur verið um eða yfir tíu pró­sent mán­uðum saman, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á eigið fé þeirra sem eru með verð­tryggð lán. 

Flestir stærstu lán­tak­endur lands­ins hafa hækkað breyti­lega óverð­tryggða vexti sína í takti við þessar stýri­vaxta­hækk­anir. Hjá Lands­bank­anum, sem lán­aði grunn­lán á 3,3 pró­sent vöxtum í apríl 2021, voru vextir komnir í níu pró­sent fyrir stýri­vaxta­hækk­un­ina í dag. Hjá Íslands­banka hafa vextir á sam­bæri­legu óverð­tryggðu láni á sama tíma­bili farið úr 3,4 í 9,25 pró­sent og hjá Arion banka hafa þeir hækkað úr 3,44 í 9,34 pró­sent. 

Þeir líf­eyr­is­sjóðir sem eru stór­tæk­astir í óverð­tryggðum útlánum hafa fylgt þess­ari þróun, þótt vextir þeirra séu enn lægri en þeir sem bank­arnir bjóða upp á. Lægstir eru þeir sem stendur hjá Brú, eða 7,9 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna mun lána á 8,2 pró­sent vöxtum frá og með næstu mán­að­ar­mótum og hjá Gildi eru breyti­legu óverð­tryggðu vext­irnir þegar komnir upp í 8,6 pró­sent.

Snjóhengja vofir yfir

Um fjórð­ungur allra íbúða­lána eru óverð­tryggð á breyti­legum vöxtum. Sá hópur hefur þurft að takast á við þessar hækk­anir í gegnum stór­aukna greiðslu­byrði um hver mán­að­ar­mót. Af 40 milljón króna láni hjá banka hafði mán­að­ar­lega greiðslan auk­ist úr um 170 þús­und krónum í byrjun síð­asta árs í 292 þús­und krónur í lok apríl síð­ast­lið­ins. Frá því í apríl 2021 hafði hún rúm­lega tvö­fald­ast. 

Sú aukna greiðslu­byrði er langt umfram aukn­ingu á kaup­mætti á tíma­bil­inu, en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna, það sem hægt er að kaupa fyrir þau laun sem sitja eftir þegar búið er að borga skatta og önnur gjöld, hefur dreg­ist saman þrjá árs­fjórð­unga í röð. 

Auk þess er stór hluti heim­ila með fasta óverð­tryggða vexti til þriggja eða fimm ára, með lán upp á 707 millj­arða króna. Af þeim stabba eru lán upp á næstum 600 millj­arða króna, sem hafa verið á föstum vöxtum, að losna á næstu þremur árum. Þar af rennur bindi­tími lána upp á 74 millj­arða króna út á þessu ári. Þar er um að ræða lán 4.451 heim­ilis. 

Í rit­inu Fjár­mála­stöð­ug­leiki, sem Seðla­banki Íslands gaf út fyrr á þessu ári, sagði bank­inn að hann mæti áhrif vaxta­hækk­ana á greiðslu­byrði heim­ila enn sem komið er tak­mörkuð. Hins vegar væru „tals­verðar líkur á að hluti þeirra heim­ila sem eru í dag með óverð­tryggð lán með tíma­bundið fasta vexti ráði illa við þá vexti sem nú eru í boði þegar kemur að vaxta­end­ur­skoðun. Mögu­leik­inn á að færa sig yfir í verð­tryggð lán tak­markar þó veru­lega lík­urnar á því að þau lendi í greiðslu­erf­ið­leikum þar sem mán­að­ar­leg greiðslu­byrði verð­tryggðra lána er mun lægri en óverð­tryggðra.“

Toppnum var ekki náð

Ásgeir Jóns­­son seðla­­banka­­stjóri lét hafa eftir sér þegar vextir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent í októ­ber 2022 að toppnum á vaxta­hækk­un­ar­ferl­inu væri mögu­lega náð. Mánuði síðar voru vext­irnir hins vegar hækk­aðir aftur, upp í sex pró­sent. Þá sagði Ásgeir að sú hækkun ætti að vera nóg til að ná verð­bólgu niður í mark­mið, sem er 2,5 pró­sent, á ásætt­an­legum tíma. Boltinn væri hjá aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og rík­is­vald­inu. 

Um 80 pró­sent af almenna vinnu­mark­aðnum, sem var með samn­inga lausa í fyrra­haust, samdi til skamms tíma við Samtök atvinnu­lífs­ins um kjara­samn­inga á síð­asta ári sem gilda út jan­úar 2024. Á þessu ári hefur Efling bæst við þá sem samið hafa með þessum hætti.

Fjárlög voru hins vegar afgreidd með 120 millj­arða króna halla, sem var umtals­vert meiri halli en gert hafði verið ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það var lagt fram í sept­em­ber 2022. Þá var hall­inn áætl­aður 89 millj­arðar króna. Í áhættu­mati vegna fram­kvæmdar fjár­laga yfir­stand­andi árs, sem birt var fyrr á þessu ári, boð­aði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að gjöld vegna vaxta­kostn­aðar verði 27 millj­örðum krónum hærri en gert var ráð fyrir og að kostn­aður við ýmsa rík­is­að­ila myndi kosta 12,2 millj­örðum krónum meira en áætlað var. Því liggur fyrir að gjalda­hlið rík­is­fjár­mála hefur verið að vaxa. 

Gagnrýnd fyrir að sleppa ekki bensíngjöfinni

Fimm ára fjár­mála­á­ætl­unin var svo kynnt í lok mars. Samkvæmt henni er búist við því að rík­is­sjóður verði rek­inn í halla á hverju ári til árs­ins 2028. Alls er hall­inn frá byrjun árs 2023 og út árið 2027 áætl­aður 161,2 millj­arður króna. Skuldir rík­is­sjóðs halda því áfram að aukast á þessu tíma­bili.

Í nið­ur­stöðum álits­gerðar fjár­mála­ráðs um áætl­un­ina sagði að staða opin­berra fjár­mála væri sterk og skuldir hóf­legar í alþjóð­legum sam­an­burði. „Ráðið telur að nýta eigi styrka stöðu efna­hags­mála til að minnka skuldir, en að óhætt sé að reka hið opin­bera með halla þegar tek­ist er á við tíma­bund­inn efna­hags­sam­drátt. Við ástand þenslu í efna­hags­málum er erfitt að rök­styðja að hið opin­bera sé rekið með halla þar sem slíkt ýtir undir þenslu, hefur nei­kvæð áhrif á við­skipta­jöfnuð og dregur úr svig­rúmi til að mæta áföllum í fram­tíð­inni.“

Þar sagði enn fremur að  þótt „bens­ín­gjöfin sé ekki stigin í botn eins og áður hefur bens­ín­gjöf­inni þó ekki verið sleppt, enda þótt aðhald hafi auk­ist sé miðað við tíma­bil heims­far­ald­urs­ins.“ 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Skilaboð Seðlabankans eru kýrskýr. Slæleg hagstjórn!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár