Svöl stemning og melódískt popppönk

Doktor Gunni metur hér tvær plötur; Mukka – Study Me Nr. 3 og Þórir Georg – Nokkur góð.

Svöl stemning og melódískt popppönk

Íslenskri tón­list­ar­út­gáfu hefur í gegnum ára­tug­ina verið haldið uppi af ofur­hugum. Þeir eiga það sam­eig­in­legt að hafa haldið góðum dampi um mis-skamma hríð, en svo sprungið á limm­inu, lík­lega þegar stærð örmark­að­ar­ins og nei­kvæð staða banka­reikn­ings­ins rennur upp fyrir þeim. Svipaða sögu hefur verið hægt að sjá síðan Tage Amm­endrup byrj­aði með Íslenzka tóna á Fimmunni. ÁÁ-Records, Thule, Kimi, Record Records – svo nokkur merki séu tínd til – hafa dælt út efni yfir nokkur miss­eri, en svo logn­ast út af. Við tón­list­ar­að­dá­endur erum auð­vitað þakk­látir ofur­hug­unum, án þeirra kæmi lítið út. Plötu­út­gáfa og fífldirfska hald­ast í hendur. 

 300 eintaka sala á Íslandi ásættanleg

Nú um stundir er Reykja­vík Record Shop á Klapp­ar­stíg sú plötu­út­gáfa sem iðn­ust er við kol­ann. Þar kemur nán­ast út ein plata á mán­uði og hefur gert um nokkra hríð – flest á vínyl. Upplag hvers tit­ils er lítið, enda er plötu­út­gáfa vit­an­lega ekki svipur hjá sjón. Niðurhal og streymi drap CD-diskinn og nú, í end­ur­komu vín­yls­ins, er upp­lag vín­ylplatna á Íslandi oft­ast ekki nema þetta 30 til 300 ein­tök. Telst 300 ein­taka sala á Íslandi mjög ásætt­an­leg. Er þetta auð­vitað ekki nema brota­brot af því sem var þegar vín­yl­platan var alls­ráð­andi, fyrir 40 árum eða svo.


Mukka - Study Me Nr. 3

★★★✰✰

Útgef­andi: Reykja­vík Record Shop

Mukka er sam­starfs­verk­efni Krist­jóns Hjalte­sted og Guð­mundar Óskars Sig­ur­munds­sonar. Þeir kokka upp níu seig­fljót­andi stemmur á þriðju plötu sinni. Þetta er ósungin tón­list. Það er reyndar rödd í flestum lög­unum, en oft­ast er hún mixuð aft­ar­lega og höfð í þykku lagi af effektum, svo speisað muldrið er stemn­ings­gjafi fremur en textaflytj­andi. Mikill Níu-keimur er af Mukku og margt sem minnir á svala enska tón­list, trip hop og Manchester baggy. Aðgengi­leg­asta lagið á plöt­unni, Heather, er til að mynda í svip­uðum kæri­leysis-gír og útvítt grúv-poppið sem Happy Mondays eru þekktir fyrir. Lokalag A-hliðar er svo Autumn, súr­sæt kraut­rokk-ball­aða, sem myndi skot­ganga sem stemn­ings­gjafi í heim­ild­ar­mynd, t.d. um eitt­hvað tengt íþróttum. Það sama má segja um flest lögin á plöt­unni, þau eru „kvik­mynda­leg“.

 Svöl og skemmtileg

Góður slag­kraftur og fram­vinda er á fyrri hlið Mukka-plöt­unnar og er hún mun sterk­ari en sú seinni. Þar er eins og safnað hafi verið saman ýmsum hug­myndum og er los­ara­bragur á sumu og pæl­ing­arnar ekki alveg geir­negldar. Það breytir því þó ekki að plata Mukka er skemmti­leg og býr til svala stemn­ingu sé hún sett á fón­inn.


Þórir Georg- Nokkur góð

 

Útgef­andi: Reykja­vík Record Shop

Þórir Georg Jónsson er eins manns fjöl­smiðja, jafn­vígur á gít­ar­pönk, óraf­magn­aða rokk­ball­öðu­gerð, hljóð­gervla-til­rauna­mennsku og dul­ar­fulla hljóð­múra – og reyndar margt fleira. Hann hefur gefið út plötur síðan 2004, undir eigin nafni eða sem hluti af hljóm­sveitum eins og Ofvit­arnir, Skjálfti og ROHT. Mikill dugn­að­ar­forkur og flest mjög spenn­andi sem frá honum kemur. Platan Nokkur góð safnar saman 12 lögum frá síð­ustu tíu árum og er nokkur munur á hljóð­gæðum.

Eins manns fjölsmiðja

Margt er óheflað og hrátt, annað með „dýr­ara“ hljóð­vers­sándi. Allt er þetta melódískt gít­ar­pönk með bæði íslenskum og enskum textum, sem reyndar er ekki hægt að heyra nema ein­staka línur því það er ekk­ert texta­blað og ófram­fær­inn söngur Þóris er aft­ar­lega í mix­inu og oft­ast bjag­aður. Þó má lesa kald­hæðni og tóm­hyggju úr laga­heitum eins og „Skiptir engu“, „Ekki neitt“ og „Ælulykt“. Þórir sér um alla spila­mennsku nema hann fær trommara í heim­sókn í tveimur lögum. Hann hannar líka umslagið, sem er töff.

Þetta er fín plata en lögin tólf eru mis­góð. Það best heppn­aða er gríp­andi melódískt popppönk með hamr­andi takti og snið­ugum útúr­dúrum sem koma á óvart. Til að mynda þegar lagið „The Idiot Song“ dettur niður á frum­legan hátt, þegar hljóð­gervla­mottur taka lagið „Fastur“ í nýjar og ferskar áttir og þegar ýlfr­andi hávaða­kafl­inn í „Skiptir engu“ fær mann til að athuga hvort of mikið ryk hafi safn­ast á plötu­nál­ina og maður þurfi að blása það af. Margt er hér um fína músík en stundum er end­ur­tekn­ingin þó full­mikil og sami trommutaktur leiðir of mörg lög. Maður fær stundum á til­finn­ing­una að maður sé að hlusta á sama lagið aftur og aftur.

Nokkur góð er fín fyrsta kynn­ing á tón­list­ar­mann­inum Þóri Georg. Rökrétt næsta skref er svo að svolgra í sig þá gnótt sem liggur eftir hann og finna má á net­inu (Bandcamp) – sirka 50 titlar, takk fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár