Afsökunarbeiðni Samherja var lokaverkefni listamannsins Odee's

Afsök­un­ar­beiðni og vef­síða sem send var út í nafni Samherja í síð­ustu viku eru hluti af lista­verki Odee's, Odds Eysteins Frið­riks­sonar. Orðin „We‘re Sorry“ prýða nú vegg Lista­safns Reykja­víkur með stórum stöfum. „Sem lista­maður og Íslend­ingur bið ég Namibíu afsök­unar fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar,“ segir lista­mað­ur­inn.

Afsökunarbeiðni Samherja var lokaverkefni listamannsins Odee's
Afsök­un­ar­beiðni Afsök­un­ar­beiðnin sem sett var fram í nafni Samherja var hluti af lista­verki lista­manns­ins Odee's. Mynd: Odee

„Það á bara að taka lyklana að Samherja og afhenda þá Namib­íu­mönnum á núll einni, það á bara að gefa þeim þetta fyr­ir­tæki.“ Þetta segir lista­mað­ur­inn Odee, Oddur Eysteinn Frið­riks­son, en afsök­un­ar­beiðni til Namibíu sem send var í nafni Samherja á helstu fjöl­miðla heims í síð­ustu viku, sem og vef­síða í nafni fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem sömu­leiðis er beðist afsök­unar á fram­göngu Samherja, er hluti af lista­verki hans. „Þetta er afsök­un­ar­beiðni sem Namib­íu­menn eiga skilið,“ segir lista­mað­ur­inn í við­tali við Heim­ild­ina.

Odee sendi í morgun frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem hann greinir frá því að verkið „We‘re Sorry“ sé hug­mynda- og gjörn­inga­lista­verk þar sem list­formið menn­ing­ar­brenglun er notað. Í til­kynn­ing­unni segir að verkið sé ekki ein­göngu list­ræn tján­ing, „það táknar djúp­stæða iðrun sem Namib­íu­menn eiga rétti­lega skilið frá Íslandi í kjöl­far ömur­legra gjörða Samherja í Namibíu. Sem lista­maður og Íslend­ingur bið ég Namibíu afsök­unar fyrir hönd íslensku þjóð­ar­innar. Við stöndum saman að for­dæm­ingu okkar á arðráni því sem hefur orðið upp­víst. Þessi skammar­legi kafli hefur skilið eftir ljótan blett á sögu þjóðar okkar, jafn­gildan nýlendendu­stefnu einka­að­ila gegn full­valda þjóð. Reiði og skömm end­ur­óma vegna þess um allt sam­fé­lagið.“

Lista­verkið sam­anstendur sem fyrr segir af vef­síðu, frétta­til­kynn­ing­unni sem send var út, og af stórri vegg­mynd sem máluð er á vegg Lista­safns Reykja­víkur, auk afsök­un­ar­beiðn­innar. Verkið er útskrift­ar­verk Odee‘s úr BA-námi við Lista­há­skóla Íslands og er hluti af útskrift­ar­sýn­ing­unni Rafall // Dynamo sem opnar á morgun, upp­stign­ing­ar­dag 18. maí og stendur til 29. maí.

Varð gríðarlega reiður

Spurður hvað hafi vakað fyrir honum þegar hann hóf að vinna verkið segir Odee að hann hafi, eins og allir Íslend­ingar, séð umfjöll­un­ina um fram­ferði Samherja í Namibíu. „Ég varð gríð­ar­lega reiður fyrir hönd Íslend­inga. Það er skammar­legt hvernig við höfum komið fram við namibísku þjóð­ina, arð­rænt hana. Við höfum sem þjóð hleypt þessum Sam­herj­a­mönnum inn í þetta land til að stela auð­lindum þess, rífa allt frá þessu fólki, sem ekk­ert á. Ég er ekki með nákvæmar tölur á reiðum höndum en ég held að það séu hátt í 300 þús­und manns í Namibíu sem eru HIV smit­aðir og þurfa auð­vitað lækn­is­að­stoð. Hvort það eru ekki 40 pró­sent þjóð­ar­innar sem búa í kofum, á meðan að við Íslend­ingar erum að rúlla upp ein­hverjum millj­örðum og flytja úr landi. Það var yfir­lýst mark­mið Samherja, sam­kvæmt gögnum og umfjöll­unum, að verða sér úti um eins mikla pen­inga og hægt er og koma þeim síðan úr landi, til að borga sem minnstan skatt af því. Þetta eru allt opin­berar upp­lýs­ingar og ég byggi afsök­un­ar­beiðn­ina sem ég skapa á þeirri fréttaum­fjöllun sem hefur verið um málið. Ég biðst afsök­unar á því sem er opin­bert fyrir öllum.“

„Við höfum sem þjóð hleypt þessum Sam­herj­a­mönnum inn í þetta land til að stela auð­lindum þess, rífa allt frá þessu fólki, sem ekk­ert á“
Samstarf lista­mannaOdee fékk lista­mann­inn Juan Pictures Art til að mála vegg­mynd­ina í verk­inu.

Odee segir að hann hafi séð tæki­færi til að koma þessu sjón­ar­miði á fram­færi með list­sköpun, að biðja namibísku þjóð­ina afsök­unar. „Mér hefur fund­ist vanta ein­hvern stuðn­ing frá íslensku þjóð­inni, af því ég veit að hún stendur með Namib­íu­mönnum. Það er kannski erfitt fyrir Íslend­inga hins vegar að sýna það, Samherji hefur gríð­ar­leg völd hér á landi og það er ekk­ert hver sem er sem þorir að segja eitt­hvað gegn fyr­ir­tæk­inu. Mér finnst ég vera að tala fyrir hönd Íslend­inga. Ég veit hvernig þjóð­fé­lags­um­ræðan er. Ég veit að fólki blöskr­aði.

Hafa rústað orðspori Íslands

Odee segir óboð­legt að Samherji og for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins kom­ist upp með fram­göngu sína gagn­vart namibísku þjóð­inni. „Það á bara að taka lyklana að Samherja og afhenda Namib­íu­mönnum á núll einni, það á bara að gefa þeim þetta fyr­ir­tæki. Ég treysti þeim, þeir hafa ekki arð­rænt okkur. Þetta eru þeirra auð­lindir, þeirra auð­lindir borg­uðu fyrir Fiski­dag­inn mikla á Dalvík mörg ár í röð. Þar sem verið var að gefa tug­þús­undum manns frítt að borða á meðan að Namib­íu­menn svelta. Þetta er svo mikil hneisa.“

„Þetta eru þeirra auð­lindir, þeirra auð­lindir borg­uðu fyrir Fiski­dag­inn mikla á Dalvík mörg ár í röð“

Íslenska ríkið hefur ekki tekið ábyrgð á gjörðum Samherja í Namibíu að mati Odee‘s, þrátt fyrir að hann telji að það sé það sem fólkið í land­inu vilji að sé gert. „Engan veg­inn. Við höfum engan veg­inn sýnt neinn stuðn­ing eða neinn vilja til að gera nokkurn skap­aðan hlut. Þessir menn valsa bara um hér á landi og við neitum að senda þá til Namibíu í yfir­heyrslur eða fyrir dóm. Helst myndi ég vilja taka af þeim rík­is­borg­ara­rétt­inn og senda þá til Namibíu og standa reikn­ings­skil gjörða sinna þar. Í raun­inni. Ef þeir hafa ekki gert neitt sak­næmt ættu þeir ekki að hræð­ast það.

Lista­verkið er „fuck you“ Samherji og fyr­ir­gefðu Namibía. Þetta eru örfáir sið­blindir ein­stak­lingar sem að fara þarna inn og rústa mann­orði Íslands á alþjóða­vísu, til margra ára­tuga. Þetta er ótrú­legur blettur á sögu Íslands, við höfum verið sjálf­stæð þjóð í undir hund­rað ár og samt högum við okkur svona. Hegðun Samherja er bara ný nýlendu­stefna.“

Er ekki hræddur við afl Samherja

Undir frétta­til­kynn­ing­una sem Odee sendi út í nafni Samherja skrif­aði Friðrika Eysteins­dóttir, sem titluð var fjöl­miðla­full­trúi Samherja. Friðrika er hins vegar eins og gefur að skilja ekki til. „Þetta er kven­kyns útgáfa af nafni pabba míns heit­ins, hann hét Friðrik Eysteins­son. Hann lést fyrir aldur fram, úr krabba­meini. Hann var mark­aðs­fræð­ingur og kenndi mark­aðs­fræði í yfir þrjá­tíu ár. Hann var mark­aðs­stjóri hjá Slát­ur­fé­lag­inu og Víf­il­felli, hann kenndi mér allt sem ég kann í mark­aðs­fræðum, skandal og húmor og að vera klár. Friðrika Eysteins­dóttir er virð­ing­ar­vottur til pabba, hann er ein­hvers staðar skelli­hlæj­andi að þessu núna,“ segir Odee.

Fram til þessa hefur Odee að eigin sögn ekki verið póli­tískur í verkum sínum og sjálfur hafi hann ekki tekið póli­tíska afstöðu opin­ber­lega. „Ég er alveg til­bú­inn að taka þennan mál­stað hins vegar og ég hef tekið mál­stað tján­ing­ar­frels­is­ins áður. Tján­ing­ar­frelsi er eins og vöðvi, ef maður hnyklar ekki vöðvann visnar hann bara og deyr. Maður þarf alltaf að þenja mörk tján­ing­ar­frels­is­ins, ann­ars verður það tekið af okkur.“

-Ertu hræddur við við­brögð frá stór­fyr­ir­tæk­inu Samherja, sem hefur mikið afl og hefur sýnt að það er til­búið til að beita því?

„Nei. Ég hef engar áhyggjur af fram­vindu gjörn­ings­ins, það kemur sem kemur.“

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "I´m sorry" mér þýkir leitt; hefur ekki sömu merkingu og I apologize; ég biðst afsökunar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár