Níu mínútna fréttaskammtur

Rótgróið breskt viðskipta­blað heldur úti snörpu daglegu frétta­hlaðvarpi sem óhætt er að mæla með.

FT
FT Sagt er á grein­ar­góðan hátt frá tíð­indum úr við­skipta­heim­inum í hlað­varp­inu News Briefing.

Breska dagblaðið Financial Times hefur, eins og mörg önnur fjölmiðla­fyrirtæki, farið af nokkrum krafti í fram­leiðslu eigin hlaðvarps­þátta á undan­förnum misserum. Blaðið gefur út nokkra hlaðvarps­þætti með reglulegu millibili, m.a. um fjármál, stjórnmál og alþjóðamál sem hlýða má á, ókeypis, í öllum hlaðvarps­veitum. 

Gideon Rachman, sem í hátt í tvo áratugi hefur verið helsti álits­gjafi blaðsins um alþjóðamál, heldur til dæmis úti viðtals­þættinum Rachman Review þar sem hann á oft áhugaverð samtöl við leikendur og grein­endur á sviði alþjóða­stjórnmála.

En ég er ekki að skrifa þennan stutta pistil til að vegsama þann þátt, heldur frétta­hlaðvarpið FT News Briefing, sem kemur út alla virka morgna, fyrir fótaferðar­tíma flestra Íslendinga.

Fyrir þau sem vilja byrja daginn á örskammti af áhuga­verðri frétta­umfjöllun um viðskipti og alþjóðamál, hvort sem það er á leið til vinnu eða yfir morgun­bollanum, má sannarlega mæla með þessu knappa hlaðvarpi. 

Í hefð­bundnum þætti er farið yfir 3-4 fréttir úr Financial Times og rætt við blaða­mennina um efni þeirra, í snörpum og skemmtilegum samtölum sem auðheyrilega eru vel undirbúin. Þættirnir eru alla jafna í umsjón bandaríska blaða­mannsins Marc Filippino, sem hefur einkar áheyrilega rödd.

Að jafnaði eru þættirnir um níu mínútna langir og það er eiginlega hálfgert afrek hvað Filippino og félögum hjá Financial Times tekst að koma miklu af áhuga­verðum upplýsingum, oft um fréttamál sem fá litla athygli íslenskra fjölmiðla, inn í eyrun á manni á þessari stuttu stund.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár