„Þetta er ekki kapítalisminn, þetta er Evrópusambandið“

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir og Guð­laugur Þór Þórð­ars­son orku­mála­ráð­herra rök­ræddu um sölu raf­orku og upp­runa­á­byrgðir á þingi í dag.

„Þetta er ekki kapítalisminn, þetta er Evrópusambandið“
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra lagði áherslu á að afla þyrfti upp­lýs­inga um sölu raf­orku.

„Það má velta því fyrir sér hvort þetta sé ein­hvers konar kap­ít­al­ísk snilli eða bara hug­mynd sem vekur óþægi­leg hug­renn­inga­tengsl við aðrar fjár­mála­af­urðir eins og vafn­inga, en skil­yrði þess að kerfi með upp­runa­á­byrgðir þjóni mark­miði sínu er að það sé aðeins gefin út ein upp­runa­á­byrgð á hverja ein­ingu eða hverja mega­vatta stund.“

Þetta sagði Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, þegar hún spurði Guðlaug Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku og lofts­lags­ráð­herra, út í það kerfi sem heldur utan um sölu og upp­runa­á­byrgð raf­orku í þingi í dag. 

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttirÞIng­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði kap­ít­alista vera úti um allt.

Þórunn sagði að upp væri komin upp vand­ræða­leg staða fyrir Ísland sem raf­orku­fram­leið­anda vegna hættu á tví­taln­ingu upp­runa­á­byrgðar. 

Töluvert hefur verið fjallað um sölu á raf­orku und­an­farin miss­eri en skrán­ing slíkra við­skipta þykir ekki nógu skýr. Þórunn spurði ráð­herra hvort við værum „komin þangað að öll fyr­ir­tæki sem selja vöru og full­yrða að hún sé fram­leidd með grænni raf­orku þurfi fram­vegis og kaupa vott­aða upp­runa­á­byrgð?“.

Guð­laugur Þór svar­aði Þórunni og sagði þætti máls­ins vera í skoðun og benti á að fyr­ir­komu­lagið væri komið frá Evr­ópu­sam­band­inu. „Þetta er ekki kap­ít­al­ism­inn, þetta er Evr­ópu­sam­bandið.“ Ráðherra lagði áherslu á að afla þyrfti upp­lýs­inga um málið þar sem miklir hags­munir væru undir en þátt­taka fyr­ir­tækja byggð­ist á EES-samn­ingnum. 

Þegar Þórunn tók aftur til máls minnti hún á að þátt­taka í þessu kerfi væri val­kvæð. „Það eru kap­ít­alistar úti um allt líka í Evr­ópu­sam­band­inu,“ sagði hún og ítrek­aði að íslensk fyr­ir­tæki ættu ekki að hljóta tjón af núver­andi fyr­ir­komu­lagi. 

Orku­mála­ráð­herra bað þing­mann­inn að halda sig hæga er hann steig aftur til pontu en Þórunn hafði vísað ábyrgð á hann. Ráðherra sagði fyr­ir­tæki taka ábyrgð á sínum gjörðum. „[Ég] hef oft beitt mér fyrir því að hjálpa þeim sem minnst mega sín í þessu sam­fé­lagi og mun halda því áfram. Þessi fyr­ir­tæki eru ekki þar…,“ sagði ráð­herra og und­ir­strik­aði að ræða þyrfti fyr­ir­komu­lagið betur.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár