Edda og Ástarpungarnir, Eurovision-tónleikar og Minningarbankinn

Hér má sjá sam­an­tekt Heim­ild­ar­inn­ar á áhuga­verð­um menn­ing­ar­við­burð­um sem framund­an eru. Bíó­sýn­ingar, Eurovision-tón­leikar, útgáfu­tón­leikar og rit- og mynd­list­ar­sýn­ing eru á meðal þess sem er á döf­inni um helg­ina og í næstu viku.

Edda og Ástarpungarnir, Eurovision-tónleikar og Minningarbankinn

Á annan veg – hátíðarsýning með nýrri tónlist

Hvar? Bíó Paradís.
Hvenær? 17. maí kl. 19.
Upphæð? 1.990 kr.

Árið 2011 kom út kvik­myndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sig­urðs­son. Myndin gekk með ein­dæmum illa í íslenskum kvik­mynda­húsum á sínum tíma, en mjög vel á erlendum kvik­mynda­há­tíðum, og svo fór að hún var að end­ingu end­ur­gerð í Banda­ríkj­unum með þeim Paul Rudd og Emile Hirsch í aðal­hlut­verkum, nú undir heit­inu Prince Avalanche. 

En þótt fáir hafi séð hana hér heima þá eign­að­ist myndin samt heita aðdá­endur. „Ég segi það og skrifa: Besta bíó­mynd sem gerð hefur verið á Íslandi. Frábært hand­rit & leik­stjórn – og „Fá utanu­mann“ er setn­ing ald­ar­innar. Æðisleg mynda­taka og gjör­sam­lega sturl­aður leikur Steina, Svenna og Himma,“ segir Stephan Steph­en­sen, betur þekktur sem Pres­ident Bongo.

Það var samt eitt­hvað sem vant­aði. „Á sínum tíma fannst mér vanta kvik­mynda­tón­list, senni­lega af því hún var alls ekki til staðar.  Mig lang­aði líka að prófa að gera tón­list við mynd og gabb­aði Hadda til þess að leyfa mér að prófa,“ segir Bongó-for­set­inn um hvernig það atvik­að­ist að hann samdi tón­list við áður nán­ast tón­list­ar­lausa mynd. Tón­listin hans hafði áður komið út sem auka val­mögu­leiki á DVD spil­ar­anum en er nú að koma út á vínyl og nú verður í fyrsta skipti hægt að sjá mynd­ina í bíó með tón­list for­set­ans, á aðeins einni sýn­ingu í Bíó Paradís. Í kjöl­far sýn­ingar verður hægt að kaupa vín­yl­plöt­una og svo verður vita­skuld partí með plötu­snúð og til­heyr­andi.


Útgáfutónleikar Tilbury – So Overwhelming

Hvar? Gamla bíó.
Hvenær? 18. maí kl. 20.
Upphæð? 4.500 kr.

Hljóm­sveitin Tilbury fagnar útgáfu plöt­unnar So Overwhelming í Gamla bíói, en þetta er þriðja plata sveit­ar­innar og sú fyrsta í nærri ára­tug. Og sú besta að sögn söngv­ar­ans, Þormóðs Dags­sonar. „Þetta er lang­besta platan okkar myndi ég segja. Og það verður mjög spenn­andi að spila hana í fyrsta skipti á sviði. Við fáum góðan liðs­auka á útgáfu­tón­leik­unum til að gera hljóð­mynd­ina enn stærri en við höfum áður verið með. Þannig að við erum rosa­lega spenntir fyrir þessum tón­leikum.“

Tilbury hófst sem sól­ó­verk­efni Þormóðs söngv­ara, sem kall­að­ist Formaður Dags­brúnar, en þró­að­ist svo yfir í Tilbury, sem gaf út plöt­urnar Exorcise 2012 og Northern Comfort tveimur árum síðar. Og fá nú gesta­söngv­ara með á tón­leik­ana. „Svo gefst þarna einnig fágætt tæki­færi til að sjá og hlusta á Bony Man á tón­leikum, en hann átti eina af bestu plötum síð­asta árs,“ bætir Þormóður við, en Bony Man er lista­manns­nafn Guðlaugs Jóns Árna­sonar, sem gaf út plöt­una Cinnamon Fields fyrir ári síðan.


Eurovision-tónleikar og partí

Hvar? Víða um land.
Hvenær? 12.–13. maí. 

Ef þú hefur ekki tíma til að skipu­leggja þitt eigið Eurovion-partí eru ófáir staðir búnir að skipu­leggja slíkt teiti fyrir þig. Það verður hægt að horfa á úrslitin víða á land­inu, í Bíó Paradís, á Gauknum, á Loft Hostel, Kex Hostel og á Tehúsinu á Egils­stöðum, svo aðeins örfáir staðir séu nefndir. Á brugg­hús­inu Smiðjan í Vík í Mýrdal mætir svo Jónsi með gít­ar­inn og slær upp Eurovision-partíi í kjöl­far keppn­innar.

En það er líka nóg Júró kvöldið áður, en þá verður Euro Singa­long með Guðrúnu Árnýju í Sjálandi í Garðabæ og risa­stórir Eurovision-tón­leikar í Háskóla­bíói, þar sem söngv­arar og Eurovision-stjörnur for­tíðar á borð við Siggu Bein­teins, Grétar Örvars, Friðrik Dór, Selmu Björns, Eyjólf Krist­jáns, Pálma Gunnars, Helgu Möller, Einar Ágúst, Telmu, Jónsa, Matta Matt, Ernu Hrönn og Maríu Ólafs koma fram. Á meðan munu Egils­staða­búar geta látið reyna á hversu miklir Júrónördar þeir eru á Eurovision pöbbkvissi á Askur Taproom.

Fyrir daufum eyrum – Dagný Kristjánsdóttir

Hvar? Gljúfra­steinn.
Hvenær? 13. maí kl. 14.
Upphæð? Ókeypis. 

Dagný Krist­jáns­dóttir mun halda erindi um ungar stúlkur og augna­ráð karla, bæði í völdum skrifum Halldórs Laxness og gagn­rýnenda í sam­tíma hans. Dagný er pró­fessor emer­íta í íslenskum nútíma­bók­menntum við íslensku­- og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands. Í nýjasta Tímariti Máls og menn­ingar skrif­aði hún grein þar sem sjónum var beint að birt­ing­ar­myndum kyn­ferð­is­of­beldis í nokkrum verka skálds­ins.


Opnun Minningabankans

Hvar? Borg­ar­bóka­safnið Grófinni.
Hvenær? 13. maí kl. 14.
Upphæð? Ókeypis.

Í Minn­inga­bank­anum gefst tæki­færi til að kynn­ast áður ósögðum ævi­sögu­brotum borg­ar­búa. Í vetur óx bók­verka­safn not­enda um ósögð ævi­sögu­brot í formi mynda­sagna, en þátt­tak­endur í Minn­inga­bank­anum mættu með minn­ingar sínar og gerðu til­raunir með texta, myndir og ein­falt bók­band.

Lóa Hjálmtýs­dóttir miðl­aði til þátt­tak­enda frá­sagn­ar­tækni sem brúar bil og sam­einar eig­in­leika rit- og mynd­listar og mynda­sögu­forms­ins. Hún vann með rit­höf­und­unum Auði Jóns­dóttur, Evu Rún Snorra­dóttur, Kamillu Ein­ars­dóttur og Natöshu S., sem allar deildu með þátt­tak­endum hvernig þær vinna með minn­ingar, drauma og gleymsku í skáld­skap sínum.

Á opnun Minn­inga­bank­ans er öllum vel­komið að kynn­ast verk­efn­inu og ræða og deila með öðrum hvernig hægt sé að setja sitt mark á bóka­safnið. Við­burð­ur­inn fer fram mitt á milli ævi­sögu- og mynda­sögu­deildar á fimmtu hæð í Grófinni.


Edda og Ástarpungarnir

Hvar? Bátahús Síld­arminja­safns­ins á Siglu­firði.
Hvenær? 18. maí 20.
Upphæð? Ókeypis, en frjáls fram­lög. 

Á upp­stign­ing­ar­dag verða Edda og Ást­ar­pung­arnir með tón­leika í Báta­hús­inu, en á prógramm­inu verða popp- og dæg­ur­lög í bland við rokk og blús. Ást­ar­pung­arnir eru sigl­firsk ball­sveit en Edda Björk Jóns­dóttir er kór­stjóri karla­kórs Fjalla­byggðar. Aðgangur er ókeypis, en tekið er við frjálsum fram­lögum.

Fleiri viðburðir

Föstu­dagur 12. maí

Útskrift­ar­sýn­ing nem­enda Upp­lýs­inga­tækni­skól­ans
15.00 Tækni­skól­inn
Apocalypstick Drag Show
20.00 Gauk­ur­inn
Eurovision-tón­leikar
20.00 Háskóla­bíó
Angle of Thaw: Kristina Warren & Jesper Pedersen
20.00 Mengi
Nýdönsk
20.00 Bæjarbíó
Kusk og Óviti
20.00 Kex Hostel

Laug­ar­dagur 13. maí

Tón­mennta­skóli Reykja­víkur 70 ára
11.00 Kaldalón, Hörpu
Dýrasin­fón­ían
14.00 Eldborg, Hörpu
Fyrir daufum eyrum – Dagný Krist­jáns­dóttir
14.00 Gljúfra­steinn
Opnun Minn­inga­bank­ans
14.00 Borg­ar­bóka­safnið Grófinni
Eurovision partí
19.00 Bíó Paradís /Gauk­ur­inn / Kex Hostel / Loft Hostel
Nýdönsk
20.00 Bæjarbíó

Sunnu­dagur 14. maí

Kamm­er­sveit Reykja­víkur á Sígildum sunnu­dögum: England x3
16.00 Norð­ur­ljóð, Hörpu 
Steinunn Arnbjörg og stofu­tón­listin
16.00 Hamrar, Akureyri
Francesca Tandoi Trio, Jazz í Salnum
20.00 Salurinn, Kópavogi

Mánu­dagur 15. maí

Bring The Laughs: Uppi­stands­kvöld
20.00 Gauk­ur­inn
Satsang & söngur: Jónas Sig & Lára Rúnars
20.00 Móar Studio

Þriðju­dagur 16. maí

Karaoke-kvöld
20.00 Gauk­ur­inn 

Mið­viku­dagur 17. maí

Á annan veg – hátíð­ar­sýn­ing með nýrri tón­list
19.00 Bíó Paradís 
Úlfur Eldjárn
20.00 Hann­es­ar­holt
Djass­messa – Dóm­kór­inn og Tríó Sigurðar Flosa­sonar
21.00 Dóm­kirkjan 

Fimmtu­dagur 18. maí

Vor­tón­leikar Vox fem­inae
16.00 Sel­tjarn­ar­nes­kirkja 
Útgáfu­tón­leikar Tilbury – So Overwhelming
20.00 Gamla bíó.
Edda og Ást­ar­pung­arnir
20.00 Bátahús Síld­arminja­safns­ins á Siglu­firði
Mukka útgáfu­tón­leikar
20.00 Mengi 
Hraustir menn // Karlakór Vest­manna­eyja & Molda
20.00 Höllin, Vest­manna­eyjum
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á döfinni

Á döfinni: Uppistand, mysingur og örverudans
Á döfinni

Á döf­inni: Uppi­stand, mys­ingur og örveru­dans

Uppi­stand­ari með lausa auga­steina þvælist um landið, frönsk þjóð­laga­söng­kona á Gauknum, pólskar fjöl­skyldur lenda í drama á danskri eyju, tón­list­ar­menn slá upp tón­leikum í mjólk­ur­porti og svo er dansað innan um efna­hvörf sem hafa verið stækkuð með nýj­ustu tækni svo manns­augað greini þau. Þetta er meðal þess sem er á döf­inni í menn­ing­ar­lífi land­ans síð­ustu tvær vik­urnar í ágúst.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár