Hækka framlag til aðgerða gegn ópíóðafaraldrinum upp í 225 milljónir: „Eitt dauðsfall einu of mikið“

Heil­brigð­is­ráð­herra lagði í lok apríl fram minn­is­blað um að verja 170 millj­ónum króna á árs­grund­velli í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóða. Á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag var þessi upp­hæð hækkuð um 55 millj­ónir og sam­þykkt að verja 225 millj­ónum í mála­flokk­inn.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti í morgun minn­is­blað Willum Þórs Willumsonar heil­brigð­is­ráð­herra um að verja 225 millj­ónum á árs­grund­velli í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóða. Í lok apríl kynnti Willum minn­is­blað í rík­is­stjórn um að verja 170 millj­ónum árlega til verk­efn­is­ins og er þetta því hækkun upp á 55 millj­ónir. 

Allar þær aðgerðir sem kynntar voru í lok apríl standa en við bæt­ast aðgerðir sem verða kynntar á næstu dögum. 

„Við sam­þykktum til­lögur að mjög víð­tækum aðgerðum,“ sagði Willum Þór í sam­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi í dag. Þar stað­festi hann að upp­hæðin nú væri 225 millj­ónir króna. 

Tillagan um millj­ón­irnar 170 var rædd í ráð­herra­nefnd um sam­hæf­ingu mála, ásamt fleiri aðgerðum á þessu sviði, breyt­ingar urðu á til­lög­unum milli funda og upp­hæðin hækk­aði. 

Ekki samstaða um skilgreiningu neysluskammta

Willum benti á að mikið hefði verið talað um afglæpa­væð­ingu og að taka þurfi hana áfram inn í stefnu­mót­un­ar­hóp um skaða­minnk­unar­úr­ræði. 

Spurður hvort ekki liggi á afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi segir Willum að enn hafi ekki náðst nið­ur­staða um skil­grein­ingu á neyslu­skammti, hvorki á þingi né í starfs­hópum, og við blasi að heil­brigð­is­ráðu­neytið þurfi að fara í þétt­ara sam­starf með dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að ná lausn í þessum málum.

Um alvar­leika þess sem nú blasir við í mála­flokknum segir Willum: „Þegar við ræðum þetta í þessu sam­hengi þá er eitt dauðs­fall einu of mikið og til­efni til aðgerða.“

Flýtimótttaka, lyfjameðferð og aðgengi að neyðarlyfi

Meðal þeirra aðgerða sem áður voru kynntar var þróun á flýti­mótt­töku/við­bragðs­þjón­ustu sem sam­starfs­verk­efni SÁÁ, Land­spít­ala og heilsu­gæslu þar sem ein­stak­lingum í bráðum vanda verði tryggt aðgengi að gagn­reyndri heil­brigð­is­þjón­ustu á borð við frá­hvarfs­með­ferð, vímu­efna­með­ferð eða við­halds­með­ferð sem mætir þeirra þörfum. 

Notendur fá tryggt aðgengi að gagn­reyndri lyfja­með­ferð við ópíóða­fíkn þar sem meðal ann­ars eru notuð lyf eins og bupren­orp­hin, meta­don og í sumum til­fellum önnur ópíóíða­lyf. 

Úrræði á vegum frjálsra félaga­sam­taka verða efld, svo sem For­eldra­hús, sem sýnt hafa fram á árangur á sviði við­bragðs­for­varna og snemmtækra inn­gripa fyrir ung­menni sem sýna for­stigsein­kenni vímu­efna­vanda og aðstand­enda þeirra, með það að mark­miði að koma í veg fyrir þróun frek­ari vanda eða fíkni­sjúk­dóm. 

Tryggt verði að neyð­ar­lyfið Naloxon í nefúða­formi sem notað gegn ópíóða­of­skömmtun sé aðgengi­legt fólki á lands­vísu án end­ur­gjalds, bæði í gegnum skaða­minnk­unar­úr­ræði og á heilsu­gæslum lands­ins. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ópíóíðafaraldur

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár