Mun fleiri fylgjandi því að ganga í Evrópusambandið en eru á móti því

Fimm kann­anir í röð hafa sýnt meiri­hluta fyrir því að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið. Stuðn­ingur við það eykst mæl­an­lega milli kann­ana Maskínu og and­staðan við aðild dregst saman.

Mun fleiri fylgjandi því að ganga í Evrópusambandið en eru á móti því

Alls eru 44,2 pró­sent lands­manna fylgj­andi því að Íslandi gangi í Evr­ópu­sam­bandið sam­kvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir Evr­ópu­hreyf­ing­una í lok apríl. Hlutfall þeirra sem eru fylgj­andi inn­göngu hefur aldrei mælst hærra í könn­unum sem Maskína eða fyr­ir­renn­ari hennar MMR hafa gert.  

Þeir sem eru á móti inn­göngu mæl­ast nú 33,3 pró­sent og fækkar um þrjú pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun, sem gerð var í febr­úar. 

Hlutfall þeirra sem eru fylgj­andi því að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort Ísland eigi að ganga í sam­bandið hefur vaxið hratt und­an­farið, og mælist nú 59 pró­sent. Það hlut­fall var 48 pró­sent í könnun sem gerð var í des­em­ber í fyrra.

Nýja könn­unin var gerð dag­ana 24. til 28. apríl 2023 og voru svar­endur 2.343 tals­ins.

Þetta er fimmta könn­unin sem gerð hefur verið und­an­farið rúmt ár sem sýnir fleiri fylgj­andi því að ganga í Evr­ópu­sam­bandið en eru á móti því.

Í mars í fyrra birt­ust nið­ur­stöður úr Þjóð­ar­púlsi Gallup sem sýndu að 47 pró­sent lands­manna væru hlynnt aðild að Evr­ópu­sam­band­inu en 33 pró­sent mót­fallin henni. Það var í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem meiri­hluti mæld­ist fyrir aðild í könn­unum hér­lend­is.

Hlut­­fall þeirra sem eru hlynntir inn­­­göngu Íslands í sam­­bandið hafði raunar ekki mælst meira en rúm­­lega 37 pró­­sent í mán­að­­ar­­legum könn­unum sem MMR fram­­kvæmdi frá 2011 og út árið 2021. Í síð­­­ustu könnun fyr­ir­tæk­is­ins, sem var gerð í des­em­ber það ár, mæld­ist stuðn­­ing­­ur­inn 30,4 pró­­sent en 44,1 pró­­sent voru á mót­i. MMR rann svo inn í Maskínu Kann­an­irnar sem gerðar hafa verið und­an­farið ár eru því þær fyrstu sem fyr­ir­tækið gerir sem sýna meiri­hluta fyrir aðild.

Í könnun Pró­sents í júní í fyrra var nið­ur­staðan svipuð og hjá Gallup í mars, 48,5 pró­sent sögð­ust hlynnt aðild en 34,9 pró­sent voru and­víg. Alls 16,7 pró­sent sögð­ust ekki hafa neina skoðun á mál­in­u. 

Í nóv­em­ber birt­ist önnur könnun Prósents þar sem kom fram að alls 42,8 pró­sent lands­manna sögð­ust vera hlynnt inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið en 35,1 pró­sent eru and­víg því og 22,1 pró­sent voru óviss um afstöðu sína.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • P
    Piotr skrifaði
    It's not that easy. European Union law would require Iceland to employ thousands of civil servants. Unreal.
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta eru goðar frettir og vonandi kemur su stund að Island verði aðili EU. og Evran taki við af Kronuni sem er löngu Onytur gjaldmidil. Altt mælir með aðild ISLANDS að EU. Logsins þa getur Folk keypt ser mat a þokkalegu verði. Nuverandi Matarverð er að ganda fra Fjölskildum með laga innkomu. Vaxtastefna Islands Jaðrar við Glæp. Ja sa dagar mun koma að einangrunar stefna manna sem vilja halda Neytendum i GAPASTOKK tekur enda.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár