„Ausa rasismanum yfir allt og alla“

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir sorg­legt að sjá kjörna full­trúa „ausa ras­ism­anum yfir allt og alla“ og er að vísa til ummæla Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns og nokk­urra bæj­ar­full­trúa í Reykja­nesbæ um flótta­fólk og umsækj­endur um vernd. Formaður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar, segir slíka orð­ræðu vatn á myllu öfga­afla. Þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, segir skipta öllu máli að komið sé fram við flótta­fólk af virð­ingu. Það sé ekki gert þegar ýtt sé undir ástæðu­lausan ótta.

„Ausa rasismanum yfir allt og alla“
Þing­flokks­for­menn Orri Páll Jóhanns­son, for­maður þing­flokks Vinstri grænna, Hanna Katrín Frið­riks­son og Logi Ein­ars­son for­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar svör­uðu fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar í tengslum við umfjöllun um að orðrómur um að fólki standi ógn af flótta­fólki og umsækj­endum um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ hafi náð til eyrna bæj­ar­full­trúa og inn á Alþingi til Ásmundar Frið­riks­sonar. Þing­flokks­for­menn ann­arra flokka hafa ekki svarað. Mynd: Alþingi / samsett

Heim­ildin greindi frá því á dög­unum að orðrómur um að fólki standi ógn af flótta­fólki og umsækj­endum um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ hafi náð til eyrna Guðbergs Reyn­is­sonar, bæj­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­nesbæ, Mar­grétar Þór­ar­ins­dóttur bæj­ar­full­trúa, Umbótar einnig í Reykja­nesbæ og síðan inn á Alþingi til Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem öll þrjú klæddu sögu­sagn­irnar opin­ber­lega í umbúðir stað­reynda. Margrét og Guð­bergur gerðu það á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Reykja­nesbæ 21. mars, Ásmundur á Alþingi viku síðar.  

Rætt var við fjölda fólks í Heim­ild­inni vegna máls­ins, meðal ann­ars bæj­ar­stjór­ann í Reykja­nesbæ, lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum og verk­efn­is­stjóra hjá Rauða kross­inum í bænum. Þau könn­uð­ust ekki við þá mynd sem stjórn­mála­fólkið dró upp. Þá sagði Margrét Valdi­mars­dóttir, doktor í afbrota­fræði slíkan mál­flutn­ing póli­tíkusa skað­legan og Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræð­i sagði að í verstu til­fell­um gæti slík­ur mál­flutn­ing­ur …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er bull Okkur stafar meiri hætta af Sjalfstæðisflokknum en Flotta folki
    Flokkur bygður a Hægri stefnu lengst til hægri er eins og Nasistaflokkur. Kvenær kemur Nott hina löngu Hnifa a Islandi, eins og var i Þiskalandi 1935. Okkur stafar hætta af Þessum flokk
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu