Samfylkingin með 28 prósent fylgi og ríkisstjórnin aldrei óvinsælli

Vinstri græn hafa aldrei mælst með minna fylgi en í nýj­ustu könnun Gallup og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað 7,7 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu en Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig 17,9 pró­sentu­stigum.

Samfylkingin með 28 prósent fylgi og ríkisstjórnin aldrei óvinsælli
Formaður Kristrún Frosta­dóttir tók við sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í októ­ber 2022. Mynd: Baldur Kristjánsson

Sam­fylk­ingin mælst nú með 27,8 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ast Þjóð­ar­púlsi Gallup. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst með meira fylgi síðan í maí 2009, eða skömmu eftir banka­hrunið og kosn­ing­arnar sem haldnar voru í kjöl­far þess. Þá var Sam­fylk­ingin nýsest í rík­is­stjórn undir for­sæti Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur. 

Alls hefur fylgi flokks­ins auk­ist um 17,9 pró­sentu­stig frá síð­ustu kosn­ingum og rúm­lega tvö­fald­ast síðan að Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti fram­boð sitt til for­manns síðla sum­ars í fyrra. Hún tók svo við for­mennsku í flokknum í lok októ­ber. 

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír: Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur, hafa allir tapað mæl­an­legu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra þriggja mælst nú 38,1 pró­sent en þeir fengu 54,3 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.  Flokk­arnir þrír sem halda um stjórn­ar­taumana hafa því tapað 16,2 pró­sentu­stigum frá því að kosið var síð­ast. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra hefur aldrei mælst minna síðan að þeir tóku fyrst við síðla árs 2017. 

Sama er að segja um stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina. Hann mælist nú 39 pró­sent, og er það í fyrsta sinn sem hann fer  undir 40 pró­sent síðan að rík­is­stjórnin tók við fyrir fimm og hálfu ári síðan. Í fyrstu mæl­ingu rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sem birt var í des­em­ber 2017, sögð­ust 74,1 pró­sent styðja rík­is­stjórn­ina. 

Vinstri græn hafa næstum helmingast

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herra, hefur næstum helm­ing­ast það sem af er kjör­tíma­bili. Þau fengu 12,6 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum en mæl­ast nú með 6,6 pró­sent fylgi. Það er minnsta fylgi sem Vinstri græn hafa nokkru sinni mælst með í könn­unum Gallup, sem ná aftur til árs­ins 2004. Flokk­ur­inn mælist nú sjötti stærsti flokk­ur­inn á þingi, en bæði Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins eru rétt á hæla hans með 6,2 og 6,0 pró­sent fylgi. 

Sá flokkur sem hefur tapað mestu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili er þó Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann mælist nú með 9,6 pró­sent og og í fyrsta sinn úr tveggja stafa tölu í mæl­ingum Gallup frá því að kosið var síð­ast í mars­mán­uði. Fylgi Fram­sóknar hefur ekki mælst minna síðan í jan­úar 2021. Flokk­ur­inn fékk 17,3 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sá stjórn­ar­flokkur sem tapar minnstu fylgi á stjórn­ar­set­unni. Alls segj­ast 21,9 pró­sent styðja flokk­inn, sem er 2,5 pró­sentu­stigum minna en hann fékk í síð­ustu kosn­ingum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði mælst stærsti flokkur lands­ins í öllum könn­unum Gallup frá haustinu 2017 og fram að síð­ustu ára­mótum. Í byrjun yfir­stand­andi árs tók Sam­fylk­ingin fram úr honum og síðan þá hefur dregið veru­lega á milli flokk­anna tveggja. Nú mælist for­skot Sam­fylk­ing­ar­innar á næst stærsta flokk­inn 5,9 pró­sentu­stig. 

Átta flokkar mælast inni

Píratar mæl­ast nú með tíu pró­sent fylgi, sem er aðeins meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, þegar 8,6 pró­sent lands­manna kusu hann. Mið­flokk­ur­inn er sömu­leiðis aðeins að hress­ast og mælist rétt yfir kjör­fylgi með 6,2 pró­sent. 

Viðreisn tapar fylgi milli mán­aða og mælist með 7,4 pró­sent stuðn­ing, sem er minna en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Flokkur fólks­ins mælist svo með sex pró­sent fylgi sem er 2,9 pró­sentu­stigum minna en hann fékk í sept­em­ber 2021. 

Sós­í­alista­flokkur Íslands er sá eini þeirra níu flokka sem mæl­ast með fylgi sem nær ekki yfir fimm pró­sent múr­inn, en fylgi hans mælist nú 4,4 pró­sent. Það er við kjör­fylgi hans frá síð­ustu kosn­ingum. 

Könnunin var gerð 3. apríl til 1. maí. Heild­ar­úr­tak var tæp­lega 9.916 manns og tóku 48,7 pró­sent þátt. 

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Sama er að segja um stuðning við ríkisstjórnina. Hann mælist nú 39 prósent"
    "Skila lyklunum" sagði Bjarni Ben við svipaðar aðstæður - þá í stjórnarandstöðu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár