Sá hluti Reykjavíkur sem fjármagnaður er með skattfé tapaði 15,6 milljörðum í fyrra

Samstæða Reykja­vík­ur­borgar skil­aði sam­tals sex millj­arða króna hagn­aði. Þar skipti mestu að virði rúm­lega þrjú þús­und íbúða í eigu Félags­bú­staða hækk­aði langt umfram spár. A-hluti borg­ar­innar tap­aði hins vegar tæpum 13 millj­örðum króna meira en áætlað hafði verið.

Sá hluti Reykjavíkur sem fjármagnaður er með skattfé tapaði 15,6 milljörðum í fyrra
Borg­ar­stjór­inn Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri Reykja­víkur og mun sitja í því emb­ætti út þetta ár. Þá tekur Einar Þor­steins­son við. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar vegna rekstr­ar­árs­ins 2022 var gert ráð fyrir að A-hluti borg­ar­innar, sá sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum, myndi skila 2,8 millj­arða króna tapi í fyrra. Nið­ur­staðan í rekstri borg­ar­innar reynd­ist hins vegar allt önnur. Tapið á A-hlut­anum var 15,6 millj­arðar króna. Þar skeik­aði 12,8 millj­örðum króna. 

Sam­stæðan í heild, A- og B-hlut­inn, skil­aði hins vegar sex millj­arða króna hagn­aði, sem var þremur millj­örðum króna undir fjár­hags­á­ætlun. Þar skipti mestu að mats­breyt­ingar fjár­fest­inga­eigna, sem eru þær 3.067 íbúðir sem Félags­bú­staðir eiga, voru 21 millj­arður króna í stað þeirra sex sem gert hafði verið ráð fyrir í áætl­unum. Þetta gerð­ist vegna þess að íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði miklu meira en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Hér er þó um pen­inga sem ekki er hægt að ráð­stafa nema með því að selja umræddar íbúðir, en Reykja­vík­ur­borg er bak­beinið í félags­lega hús­næð­is­kerf­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með nálægt 80 pró­sent alls slíks hús­næðis á svæð­inu innan sinna marka. 

Þetta má lesa úr árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar sem birtur var í dag. 

Í til­kynn­ingu frá borg­inni segir að þegar ljóst var að stefndi í að áætl­anir myndu ekki stand­ast vegna hækk­andi verð­bólgu og tafa á leið­rétt­ingum frá rík­inu, hafi í byrjun sept­em­ber 2022 verið sam­þykktar í borg­ar­ráði aðgerðir til að takast á við halla í rekstri og önnur áhrif erf­iðra skil­yrða í ytra efna­hags­um­hverfi borg­ar­innar. „Dregið var úr fjár­fest­ingum og þar með lán­töku­þörf. Gjald­skrár voru leið­réttar í ljósi auk­innar verð­bólgu. Þá voru settar sam­ræmdar reglur um ráðn­ingar til að gæta aðhalds á því sviði. Fimm ára fjár­hags­á­ætlun fyrir árin 2023-2027 sem sam­þykkt var í borg­ar­stjórn 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn tekur með sama hætti mið af erf­iðri stöðu.“

Rekja tapið til verðbólgu og ríkisskuldar

For­svars­menn Reykja­vík­ur­borgar segja að meg­in­á­stæða þess að svona mikið tap hafi verið á A-hlut­anum vera tvær. Annars vegar verð­bólga og vaxta­hækk­anir sem hún hefur leitt af sér, sem hafi aukið fjár­magns­kostnað, aðal­lega vegna verð­tryggðra lána, um margra millj­arða króna. Hins vegar er um að ræða sá halli sem er á rekstri á mála­flokki fatl­aðra, en hann var 9,3 millj­arðar króna á síð­asta ári. Um er að ræða lög­bundna þjón­ustu sem færð var frá rík­inu til sveit­ar­fé­laga fyrir rúmum ára­tug án þess að nægj­an­legir tekju­stofnar fylgdu með. Reykja­vík­ur­borg metur þann halla sem er á rekstri mála­flokks­ins, vegna þess að ríkið hafi ekki látið fjár­magn fylgja skuld­bind­ingum, á 35,6 millj­arða króna á árunum 2011 til 2022. 

Hinn hlut­inn í rekstri borg­­ar­inn­­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­­­bú­­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­­ar­­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­­borg­­­ar­­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­­ar­­leik­vangs ehf. Þessi hluti var rek­inn langt yfir áætlun, en hagn­aður af rekstri hans nam 21,5 millj­arði króna. Stóra breytan þar var, líkt og áður sagði, miklar mats­breyt­ingar á virði eigna Félags­bú­staða. 

Yfir skuldaviðmiði

Sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum ber sveit­ar­stjórn að sjá til þess að rekstri, fjár­fest­ingum og ráð­stöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveit­ar­fé­lagið muni til fram­tíðar geta sinnt skyldu­bundnum verk­efnum sín­um. 

Til að full­nægja þess­ari skyldu er sveit­ar­fé­lögum gert að fylgja ákveðnum fjár­mála­regl­um. Þær fela í fyrsta lagi í sér svo­kallað jafn­vægis­við­mið, sem segir að sam­an­lögð heild­ar­út­gjöld sam­stæðu til rekstrar á hverju þriggja ára tíma­bili megi ekki verða hærri en nemur sam­an­lögðum reglu­legum tekj­um. Í öðrum lagi er svo­kallað skulda­við­mið, sem í felst að heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar sam­stæðu séu ekki hærri en 150 pró­sent af reglu­legum tekj­um.

Skulda­við­mið sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar hefur verið að hækka nokkuð skarpt á skömmum tíma. Það var til að mynda 79 pró­sent árið 2019 en er nú 158 pró­sent. Það verður þó að taka fram að árið 2022 er fyrsta árið sem skuldir Orku­veitu Reykja­víkur eru taldar með við útreikn­ing­inn á skulda­við­mið­unum og hefur það umtals­verð áhrif. Án hennar væri skulda­við­miðið 108 pró­sent. 

Auk þess ætlar borgin sér að vaxa út úr þeirri stöðu sem nú er uppi með því að ráð­ast í sókn­ar­á­ætlun í fjár­fest­ing­um.

Við­miðið var hækkað tíma­bundið upp í 200 pró­­sent með lögum sem Alþingi setti árið 2020 til að mæta efna­hags­­legum áhrifum heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veiru. Sú heim­ild er sem stendur í gildi til loka árs 2025. Reykja­vík hefur því út það ár að koma skulda­við­mið­inu aftur undir 150 pró­sent.

Óánægð en styðja samt meirihlutann

Þrátt fyrir fjár­hags­stöðu borg­ar­innar og það að borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Fram­sóknar, Pírata og Við­reisnar sem mynd­aður var í fyrra hafi þurft að takast á við fjöl­mörg önnur erfið mál, til að mynda tengd leik­skólum, myglu og snjó­mokstri, þá mælist sam­eig­in­legt fylgi þeirra enn mjög svipað og flokk­arnir fjórir fengu í síð­ustu kosn­ingum. 

Alls segj­ast 54,8 pró­sent aðspurðra í nýrri könnun Maskínu að þeir myndu kjósa ein­hvern flokk­anna fjög­urra sem mynda meiri­hlut­ann, en þeir fengu 56,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra. Töluverð til­færsla hefur þó orðið á fylgi á milli þeirra. Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig tæpum sjö pró­sentu­stigum og mælist með 27 pró­sent fylgi. Viðreisn og Píratar hafa einnig bætt vel við sig en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, undir stjórn Einars Þor­steins­sonar verð­andi borg­ar­stjóra, hefur hrunið. Flokk­ur­inn vann mik­inn kosn­ing­ar­sigur síð­ast og fékk 18,7 pró­sent atkvæða. Nú segj­ast 5,1 pró­sent borg­ar­búa að það sé bara best að kjósa Framsókn. 

Tekur viðEinar Þor­steins­son er odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg.

Í könn­un­inni kemur einnig fram umtals­verð óánægja með frammi­stöðu meiri­hlut­ans. Alls sögð­ust 54,1 pró­sent aðspurðra að þeir teldu að hann hefði staðið sig illa og ein­ungis 16,8 pró­sent töldu hann hafa staðið sig vel. Þessi óánægja virð­ist ekki gera kjós­endur frá­hverfa því að styðja áfram við meiri­hlut­ann, enda hefur minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn ein­ungis bætt við sig tæpum tveimur pró­sentu­stigum sam­an­lagt það sem af er kjör­tíma­bili. 

Sitjandi borg­ar­stjóri, Dagur. B. Egg­erts­son, mælist ekki sér­stak­lega vin­sæll. Einungis 11,3 pró­sent sögðu hann hafa staðið sig best borg­ar­full­trúa á kjör­tíma­bil­inu. Einungis sex pró­sent nefndu Einar, sem tekur við af Degi um kom­andi ára­mót. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár