Gista í neyðarskýlum vegna stöðu húsnæðismarkaðarins

Borið hefur á því að fólk sem ekki glímir við flók­inn vímu­efna­vanda eða alvar­legar geð­rask­anir leiti í gisti­skýli fyrir heim­il­is­lausa því það á ekki í önnur hús að venda. Vanda­málið er hátt leigu­verð og lítið fram­boð af hús­næði. Þetta eru í meiri­hluta karl­menn sem jafn­vel tala hvorki ensku né íslensku og þarf starfs­fólk skýl­anna að nota Google Translate til að eiga fyrstu sam­skipti við fólkið.

„Að und­an­förnu hefur nokkuð borið á því að ein­stak­lingar leiti í neyð­ar­skýlin sem eru ekki með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir en skortir hús­næði. Á þessu hefur borið í Konukoti og í neyð­ar­skýl­inu á Lind­ar­götu.“ Þetta kemur fram í svari frá vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. 

„Þetta eru aðal­lega karl­menn sem glíma hvorki við áfengis- né fíkni­efna­vanda en eru heim­il­is­lausir“

„Já, við vitum um fólk í þess­ari stöðu. Þetta eru aðal­lega karl­menn sem glíma hvorki við áfengis- né fíkni­efna­vanda en eru heim­il­is­lausir,“ segir Dorota Harembska, sam­ræm­ing­ar­stjóri Barka-verk­efn­is­ins á Íslandi. Barka eru pólsk sam­tök sem veita stuðn­ing og ráð­gjöf við heim­il­is­laust fólk af erlendum upp­runa.

Dorota segir ástæð­una fyrir því að þessir menn séu heim­il­is­lausir sé hátt leigu­verð og lítið fram­boð á hús­næð­is­mark­aði. Hún bendir líka á að það sé nokkur hópur erlendra rík­is­borg­ara sem hafi hvorki fundið íbúð né her­bergi til að …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár