Tók íþróttareynsluna með sér í stjórnmálin

Ofan á menn­ing­ar­legt upp­eldi og umræður um póli­tík og þjóð­mál segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir að þátt­taka hennar í íþróttum hafi mótað hana og nálgun hennar í stjórn­málum.

Tók íþróttareynsluna með sér í stjórnmálin
Íþrótt­irnar hafa hjálpað yfir póli­tíska skafla Þor­gerður Katrín segir að það að tapa kapp­leik geti til lengri tíma ekki verið síður lær­dómur en það að vinna titla. Þá reynslu hafi hún tekið með sér í stjórn­mál. Mynd: Bára Huld Beck

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á alþingi, ýmist sem aðal- eða vara­menn. Þá er enn fleiri þing­menn tengdir fólki sem hefur stýrt sveit­ar­fé­lögum eða leitt fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur rann­sakað elítur og valda­kerfi í íslensku sam­fé­lagi og meðal ann­ars kann­aði hann ætt­ar­tengsl íslenskra þing­manna á ára­bil­inu 1990 til 2020. Hans nið­ur­staða er að um þriðj­ungur þing­manna hafi á þessu tíma­bili haft ætt­ar­tengsl við fyrr­ver­andi þing­menn.

„Íslenska kerfið hefur viss ein­kenni sem ættu að ýta undir ætt­ar­tengsl, og þau koma vissu­lega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­fé­lags­hópum, innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar eða í lista­lífi til að mynda.

Þeir þing­menn sem Heim­ildin ræddi við í sam­hengi við úttekt á ætt­ar­tengslum töl­uðu flestir á svip­uðum nótum og Gunnar Helgi. Það er að segja, að ætt­ar­tengsl þeirra kannski ekki ráðið úrslitum um að þeir hafi lagt fyrir sig póli­tík. Það hafi frekar verið að virk umræða um stjórn­mál og sam­fé­lags­mál sem fram hafi farið inni á heim­il­inum hafi þar haft meira að segja.

Fólk mótast af erfðum og áhrifum

Þannig er því farið með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­mann Við­reisnar, en hún er annar af tveimur þing­mönnum sem Heim­ildin ræddi við sem ekki á nána ætt­ingja sem setið hafa á alþingi eða tekið virkan þátt í póli­tík á öðrum vett­vangi. For­eldrar Þor­gerðar eru Katrín Arason deild­ar­stjóri og Gunnar H. Eyj­ólfs­son heit­inn, leik­ari.  

Þor­gerður er lög­fræði­menntuð og starf­aði sem slík. Hún var yfir­maður sam­fé­lags- og dæg­ur­mála­deildar RÚV 1997 til 1999. Þor­gerður sat í stjórn Orators, félags laga­nema í Háskóla Íslands, í stjórn Félags ungra Sjálf­stæð­is­manna í Hafn­ar­firði og stjórn full­trúa­ráðs flokks­ins í bænum. Hún tók fyrst sæti á Alþingi árið 1999 fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og sat á þingi til árs­ins 2013, þar af sem mennta­mála­ráð­herra 2003 til 2010. Þor­gerður varð vara­for­maður flokks­ins árið 2005 en sagði af sér árið 2010 eftir umfjöllun um lán­tökur hennar og Krist­jáns eig­in­manns hennar. Hún tók sér jafn­framt nokk­urra mán­aða hlé frá þing­störfum. Hún gaf ekki kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu við kosn­ing­arnar 2013.

Þor­gerður gaf hins vegar kost á sér að nýju árið 2016, nú fyrir Viðreisn, og var kjörin á þing. Hún varð for­maður Við­reisnar árið 2017 og er enn.

„Mamma vildi aldrei segja það en ég held að það sé ljóst að hún studdi Kvenna­list­ann eftir að hann kom fram“

Gunnar, faðir Þor­gerðar, var lands­kunnur leik­ari sem lék bæði á sviði, í kvik­myndum og í sjón­varpi á sinni tíð. Spurð hvort hún telji að það að hafa komið frá heim­ili þar sem menn­ing­ar­legt auð­magn var í meira lagi og hvort það hafi gagn­ast henni svarar Þor­gerður því ját­andi. „Já, ekki spurn­ing. Ég ætla bara að vitna í pabba, sem sagði að fólk mót­að­ist af erfðum og áhrifum. Ég er alin upp við að fara mikið í leik­hús, sjá allar sýn­ingar, fara á tón­leika, lesa mikið, að inn­byrða allt menn­ing­ar­efni sem ég hef getað. Það hefur tví­mæla­laust styrkt mig og mótað, veitt mér kjöl­festu. Það var líka mjög mikið talað um póli­tík á heim­il­inu. Pabbi var krati og mik­ill Vil­mundar-maður, fyrst Gylfa Þ. og síðan Vil­mundar-maður. Auðvitað hafði það áhrif, að póli­tíkin væri til staðar á heim­il­inu, við eld­hús­borðið og alltum­lykj­andi. Þau mamma voru ekki endi­lega í sama flokki. Mamma vildi aldrei segja það en ég held að það sé ljóst að hún studdi Kvenna­list­ann eftir að hann kom fram.“

Þor­gerður segir að ofan á menn­ing­ar­legt upp­eldi hennar og umræður um póli­tík og þjóð­mál hafi það mótað hana einnig að vera í íþróttum en Þor­gerður var hörku hand­knatt­leiks­kona. „Miðað við allt sem maður er búinn að upp­lifa í tengslum við póli­tík­ina, sem getur verið harð­dræg og erfið en alltaf skemmti­leg, þá hafa íþrótt­irnar hjálpað mér oft yfir ákveðna skafla. Það að tapa leik getur til lengri tíma ekki síður verið lær­dómur eins og að vinna titla. Þá reynslu hef ég líka tekið með mér í stjórn­málin.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Þingmennska reynist nátengd ætterni
ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár