Faðir Stefáns studdi hann dyggilega

Ungur að árum var Stefán Vagn Stef­áns­son byrj­aður að fylgja föður sínum, Stefáni Guð­munds­syni, á póli­tíska fundi. Þegar Stefán Vagn hóf svo stjórn­mála­þátt­töku hvatti faðir hans hann áfram.

Faðir Stefáns studdi hann dyggilega
Verður að sinna fólk­inu sínu Stefán Vagn fer heim til sín, norður á Sauð­ár­krók, um helgar, rétt eins og Stefán Guð­munds­son faðir hans gerði í þá tvo ára­tugi sem hann sat á þingi.

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á alþingi, ýmist sem aðal- eða vara­menn. Þá er enn fleiri þing­menn tengdir fólki sem hefur stýrt sveit­ar­fé­lögum eða leitt fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum.

Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur rann­sakað elítur og valda­kerfi í íslensku sam­fé­lagi og meðal ann­ars kann­aði hann ætt­ar­tengsl íslenskra þing­manna á ára­bil­inu 1990 til 2020. Hans nið­ur­staða er að um þriðj­ungur þing­manna hafi á þessu tíma­bili haft ætt­ar­tengsl við fyrr­ver­andi þing­menn.

„Íslenska kerfið hefur viss ein­kenni sem ættu að ýta undir ætt­ar­tengsl, og þau koma vissu­lega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­fé­lags­hópum, innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar eða í lista­lífi til að mynda.

Þeir þing­menn sem Heim­ildin ræddi við í sam­hengi við úttekt á ætt­ar­tengslum töl­uðu flestir á svip­uðum nótum og Gunnar Helgi. Það er að segja, að ætt­ar­tengsl þeirra kannski ekki ráðið úrslitum um að þeir hafi lagt fyrir sig póli­tík. Það hafi frekar verið að virk umræða um stjórn­mál og sam­fé­lags­mál sem fram hafi farið inni á heim­il­inum hafi þar haft meira að segja.

Áhuginn síaðist inn

Stefán Vagn Stefnáns­son var kjör­inn á þing fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Stefán, sem er lög­reglu­maður og starf­aði sem slíkur, hafði þá um margra ára skeið starfað fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn í sinni heima­byggð, Skaga­firði, þar sem hann var odd­viti flokks­ins í sveit­ar­stjórn á árunum 2010 til 2021, og þar af for­seti sveit­ar­stjórnar síð­ustu tvö árin. Hann var einnig vara­þing­maður á síð­asta kjör­tíma­bili.

Stefán Vagn á póli­tískan áhuga sinn ekki langt að sækja. Móðir hans er Sigríður Hrafn­hildur Stef­áns­dóttir verlsl­un­ar­maður og faðir hans Stefán Guð­munds­son, alþing­is­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins um tveggja ára­tuga skeið, á árunum 1979 til 1999. Hann var jafn­framt bæj­ar­full­trúi á Sauð­ár­króki 1966 til 1982.

„Ég var ekki mjög gam­all þegar ég var að skott­ast með á fundi og fara niður í Fram­sókn­ar­hús“

„Það er engin laun­ung að það hafði áhrif á mig, mikil áhrif á mig,“ segir Stefán Vagn í sam­tali við Heim­ild­ina. „Ég elst upp við þetta. Ég er fæddur 1972 og pabbi fer á þing 1979 og er á þingi til 1999. Ég er alinn upp í þessu póli­tíska umhverfi, ég var ekki mjög gam­all þegar ég var að skott­ast með á fundi og fara niður í Fram­sókn­ar­hús, sem var beint á móti heim­ili okkar. Ég fylgd­ist því vel með, þó ég hefði kannski ekki skiln­ing eða jafn­vel áhuga beint á verk­efn­unum þegar ég var gutti. En ein­hvern veg­inn síað­ist þetta inn og þegar maður varð eldri fór maður að kveikja á því um hvað þetta snýst. Ég hef alltaf haft áhuga á stjórn­málum, sem er örugg­lega meðal ann­ars til kom­inn vegna þessa. Ég er sann­færður um að það hefur ýtt mér frekar í þessa átt heldur en frá henni að pabbi var þing­maður.“

Var ekki virkur sem ungur maður

Stefán Vagn segir að það hafi þó ekki staðið sér­stak­lega til hjá honum að fara út í póli­tík sem ungur maður. Hann hafi gengið í lög­regl­una og séð fyrir sé feril þar, sem og hafi orðið. „Ég var til dæmis ekki mjög virkur í gras­rót­ar­starfi flokks­ins þegar ég bjó suður í Reykja­vík, en var samt alltaf við­loð­andi þegar kom að kosn­ingum. Menn voru ræstir út þá og ég hafði líka áhuga á því. Það er í raun og veru ekki fyrr en ég kem aftur hingað norður á Krókinn 2008 og fer að vinna í lög­regl­unni þar að ég finn sterka þörf og löngun til að fara og láta gott af mér leiða fyrir sam­fé­lagið þar.“

„Þú verður að hafa það í fingr­unum hvað er að ger­ast heima hjá þér ef þú ert lands­byggð­ar­þing­maður“

Stefán Vagn var kjör­inn í sveit­ar­stjórn Skaga­fjarðar árið 2010 og sat í tólf ár sem odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Skaga­firði. „Þá fann ég alltaf sterkar eftir því sem tím­inn leið hvað það tog­aði mikið í mig að láta gott af mér leiða fyrir þetta sam­fé­lag hér,“ segir Stefán Vagn og bætir við að hann telji að reynsla hans af sveit­ar­stjórn­ar­málum sé gríð­ar­lega gott vega­nesti til að taka þátt í lands­málapóli­tík.

Þýðir ekkert að flytja suður

Faðir Stefáns Vagns, Stefán Guð­munds­son, lést árið 2011. Spurður hvort hann hafi verið ánægður með að son­ur­inn hafi verið far­inn að feta hina póli­tísku veg­ferð segir Stefán Vagn að þeir hafi ekki endi­lega rætt hvort hann væri ánægður með það. „En hann studdi mig dyggi­lega í þessu og hvatti mig áfram svo ég held hann hafi bara verið ánægður með það.“

Spurður hvort að hann telji sig búa yfir meira stjórn­mála­legu auð­magni en margur annar sökum upp­runa segir Stefán Vagn að hann viti það svo sem ekki. „Alla vega finnst mér þetta hafa hjálpað mér gríð­ar­lega. Pabbi bjó alla tíð á Króknum á meðan hann var á þingi, hann keyrði á milli. Ég var alinn upp við að pabbi fór á sunnu­dögum og kom heim á föstu­dögum. Hann tal­aði alltaf um að það þýddi ekk­ert að flytja suður, þá myndu menn missa tengslin. Svo núna þegar ég er far­inn út í þetta skil ég nákvæm­lega hvað hann var að tala um, og ég geri þetta, ég kem heim um helgar. Ég held að það sé ekki nein önnur leið til að gera þetta almenni­lega. Þú verður að hafa það í fingr­unum hvað er að ger­ast heima hjá þér ef þú ert lands­byggð­ar­þing­maður, þú verður að sinna fólk­inu þínu og svæð­inu þínu.“

Stefán Vagn á full­orðin börn og börn á ung­lings­aldri. Spurður hvort að hans veg­ferð í póli­tík og afa þeirra hafi haft áhrif til að ýta börn­unum í sömu átt segir Stefán Vagn að hann myndi ekki úti­loka það. Þau hafi öll áhuga á póli­tík.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Þingmennska reynist nátengd ætterni
ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "og faðir hans Stefán Guðmundsson, alþingismaður Framsóknarflokksins um tveggja áratuga skeið"
    Líkist hann föður sínum mun ekki sjást mikið eftir hann á þingi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár