Ár íslenska einsöngslagsins

Arndís Björk Ásgeirs­dóttir brá sér í Salinn í Kópavogi á tón­leik­ana Ferðalok sem voru síð­ustu tón­leik­arnir í tón­leika­röð­inni Ár íslenska ein­söngslags­ins.

Flytjendurnir
Flytj­end­urnir Jóna G. Kol­brún­ar­dóttir, Þóra Kristín Gunn­ars­dóttir, Gunnar Björn Jónsson, Guðrún Dalía Salómons­dóttir, Jón Svavar Jós­efs­son, og Þór­gunnur Anna Örn­ólfs­dóttir.
Tónleikar

Ár íslenska ein­söngslags­ins - Ferðalok

Niðurstaða:

Salurinn í Kópavogi 23. apríl 2023 Flytjendur: Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir mezzósópran, Gunnar Björn Jónsson tenór, Jón Svavar Jósefsson baritón, Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanó, Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanó.

Gefðu umsögn

Tón­leika­röð­inni Ár íslenska ein­söngslags­ins lauk í Salnum í Kópavogi sunnu­dag­inn 23. apríl sl. en þá fóru átt­undu og síð­ustu tón­leikar rað­ar­innar fram. Þeir báru við­eig­andi und­ir­titil, „Ferðalok“ sem vís­aði jafn­framt til sam­nefnds lags Karls O. Run­ólfs­sonar við ljóð Jónasar Hall­gríms­sonar og var eitt þeirra laga sem flutt var á tón­leik­unum. 

Saga íslenska ein­söngslags­ins er stutt, tæp­lega 150 ár. Þótt ein­söngslagið hefði fyrir löngu fest sig í sessi í Evrópu og hinum vest­ræna heimi og heilu ljóða­bálk­arnir hefðu verið færðir í tóna af fær­ustu tón­smiðum þess tíma héldu Íslend­ingar fast í sinn rímna­kveð­skap og sálma­söng, sem sjálf­sagt hefur einnig skap­ast af þeirri ein­földu stað­reynd að hljóð­færi voru hér ekki á hverju strái eins og píanó, sem er nátt­úr­lega það hljóð­færi sem fylgir ein­söngslag­inu í flestum til­vikum. Útvarps-og fræða­konan Una Margrét Jóns­dóttir gróf upp fyrir um ára­tug lagið Andvakan eftir Pétur Guðjohn­sen, söng­kenn­ara og dómorganista, sem skrifað er fyrir ein­söngs­rödd og gítar og leiddi að því líkum að um gæti verið að ræða elsta íslenska ein­söngslagið. Þegar Pétur deyr árið 1877, sex­tíu og fimm ára, er Svein­björn Svein­björns­son þrí­tugur og það fellur í hans hlut að verða eins konar guð­faðir íslenska ein­söngslags­ins. Með sönglögum hans hefst blóma­tíma­bil í íslenskri tón­list­ar­sögu sem sér ekki fyrir end­ann á. 

Á þessum síð­ustu tón­leikum rað­ar­innar voru flutt 24 íslensk ein­söngs­lög sem spönn­uðu allt frá lögum Sigvalda Kalda­lóns og Sigfúsar Ein­ars­sonar til nýlegra laga eftir Hreiðar Inga Þor­steins­son, Helga R. Ingv­ars­son, Tryggva M. Bald­vins­son og Hauk Tómasson. Flytj­endur voru allir greini­lega vel und­ir­búnir og var Jón Svavar Jós­efs­son fyrstur á svið. Hann hefur fal­lega baritón­rödd, kannski ekki þá stærstu en tækni hans er góð og hann er fanta­góður túlk­andi með aðdá­un­ar­verða, skýra fram­sögn. Það var magnað að heyra hvernig þau Guðrún Dalía fóru á kostum á síð­ari hluta tón­leik­anna og þá sér­stak­lega í Drauga­dansi Jóns Leifs við ljóð Sigurðar Gríms­sonar og Kveldriður Sigvalda Kalda­lóns við ljóð Gríms Thomsen. Þar var ekk­ert gefið eftir og túlkun þeirra skil­aði þeim dúndr­andi lófa­klappi.

Guðrún Dalía er frá­bær píanisti og það skiptir ekki minna máli í sönglögum að hafa með­leik­inn á hreinu, umgjörð­ina sem litar text­ann, og Guðrún Dalía er þannig lista­maður að hún bætir sann­ar­lega við með dýnamískum leik sínum og það á við öll þau lög sem hún tók þátt í að flytja á tón­leik­unum.

Þór­gunnur Anna Örn­ólfs­dóttir mezzósópran er yngst þeirra söngv­ara sem fram komu og stundar hún nú fram­halds­nám við sólista­deild Kon­ung­lega danska tón­list­ar­há­skól­ans í Kaup­manna­höfn. Hún fór  var­færn­is­lega af stað í vand­með­förnu lagi, Bæninni eftir Hildig­unni Rún­ars­dóttur við ljóð Þuríðar Guð­munds­dóttur þar sem Hildigunnur gefur engan afslátt af erf­iðum tón­bilum og það sama má segja um hið fal­lega lag Jóns Leifs, Vertu guð faðir við sálm Hall­gríms Pét­urs­sonar. Allt var þó skín­andi tært og hreint og það sama má segja um flutn­ing þeirra Þór­gunnar Önnu og Þóru Krist­ínar Gunn­ars­dóttur á áhuga­verðu og fal­legu lagi, Svanur eftir Hreiðar Inga Þor­steins­son við ljóð Nínu Bjarkar Árna­dóttur, þar sem leikur Þóru Krist­ínar lit­aði fal­lega umgjörð­ina.

„Guðrún Dalía er frá­bær píanisti og það skiptir ekki minna máli í sönglögum að hafa með­leik­inn á hreinu, umgjörð­ina sem litar text­ann.“

Þór­gunnur Anna sýndi á sér allt aðra hlið á síð­ari hluta tón­leik­anna og kitl­uðu þær Þóra Kristín hlát­ur­taugar tón­leika­gesta með túlkun sinni á lög­unum Haust eftir Atla Heimi Sveins­son við ljóð Thors Vil­hjálms­sonar og Vont og gott eftir Tryggva M. Bald­vins­son við ljóð Þórarins Eldjárn. Þór­gunnur Anna hefur allt til brunns að bera og verður spenn­andi að fylgj­ast með henni í fram­tíð­inni.

Jóna G. Kol­brún­ar­dóttir söng, líkt og hinir söngv­arar tón­leik­anna, sex lög og gerði það vel, hún hefur aðlað­andi sviðs­fram­komu og er opin og ein­læg. Hús við götu eftir Hauk Tómasson við ljóð Þórarins Eldjárn kom ræki­lega á óvart með fal­legri lag­línu sem svip­aði í byrjun til Schindler's list þema Johns Williams og Vetr­ar­þoka Helga R. Ingv­ars­sonar við ljóð Árna Krist­jáns­sonar var eins og impressínón­ískt vatns­lita­mál­verk, þar sem Þóra Kristín lék afar fal­lega á píanóið. Við Kínafljót Jórunnar Viðar við ljóð Þorgeirs Svein­bjarn­ar­sonar var einnig frá­bær­lega flutt og þá ekki síst vegna leiks Guðrúnar Dalíu. Lagið Hjarð­mærin eftir Ragnar H. Ragnars við ljóð Stein­gríms Thor­steins­sonar hafði ég aldrei heyrt áður en þar fóru þær Jóna og Guðrún Dalía á kostum og skil­uðu pastoral stemn­ingu lags­ins und­ur­fag­urt út í sal­inn.

Ég heyrði Gunnar Björn Jónsson tenór syngja í fyrsta sinn í des­em­ber síð­ast­liðnum á Galatón­leikum Krist­jáns Jóhanns­sonar og féll svo ræki­lega fyrir rödd hans að ég bara vissi ekki hvert ég ætl­aði. Hann olli mér engum von­brigðum á þessum tón­leikum. Það er eins og sumum sé gefin ein­hver guðs­gjöf og honum hefur sann­ar­lega verið gefin radd­feg­urð. Hann hefur svo náð að skóla rödd­ina með fínni tækni og svo er hitt sem seint verður kennt en það er músikalski hlut­inn. Hann hefur Gunnar líka fengið og áreynslu- og til­gerð­ar­laus flutn­ingur hans á lögum eins og Mánaskin eftir Eyþór Stef­áns­son við ljóð Helga Kon­ráðs­sonar, Við sundið eftir Sigvalda Kalda­lóns við ljóð Sigurðar Þórð­ars­sonar og Í rökk­urró eftir Björgvin Guð­munds­son við ljóð Guð­mundar Guð­munds­sonar fékk mann hrein­lega til að tár­ast oftar en einu sinni. Nærvera hans er líka svo þægi­leg á sviði, bæði umvefj­andi og hlý. Mikið vildi ég óska að hann fengi að syngja sem mest og oft­ast.

Ár íslenska ein­söngslags­ins hófst í sept­em­ber í fyrra með tón­leikum þar sem sönglög Jónasar Ingi­mund­ars­sonar voru flutt. Alls voru flutt 118 íslensk ein­söngs­lög á átta tón­leikum af  33 söngv­urum og 11 píanó­leik­urum.

Jónas Ingi­mund­ar­son á mik­inn heiður skilið fyrir þá alúð sem hann hefur á starfsævi sinni lagt í að safna og flytja íslensk ein­söngs­lög og fyrir ein­hverjum árum færði hann Tón­list­ar­safni Íslands yfir 3.000 lög, sem hann og Ágústa Hauks­dóttir, eig­in­kona hans, höfðu safnað. Mörg þess­ara laga tók Jón Kristinn Cortes að sér og útgáfu­fyr­ir­tæki hans, Ísalög, hefur gefið út. Frábært og þakk­ar­vert fram­tak sem seint verður full­metið. Það er ástæða til að óska öllum flytj­endum og aðstand­endum tón­leikar­að­ar­innar til ham­ingju með vel unnið og þarft verk. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár