Gylfi Þór Sigurðsson verður ekki ákærður

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son er laus allra mála eftir að lög­reglan í Manchester ákvað að ákæra hann ekki fyrir kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi.

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son verður ekki ákærður fyrir kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi og er laus allra mála. Fotbolti.net greinir frá þessu eftir að hafa fengið yfir­lýs­ingu frá lög­regl­unni í Manchester sem stað­festir þetta. 

„Maðurinn, sem er 33 ára, sem var hand­tek­inn í tengslum við rann­sókn sem hófst í júní 2021 er laus allra mála. Rann­sókn­arteymið og rík­is­sak­sókn­ari hafa unnið saman og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sönn­un­ar­gögnin sem liggja fyrir á þessum tíma ná ekki þeim þrös­k­uldi sem settur er fram í reglum sak­sókn­ara," segir í yfir­lýs­ing­unni.

Gylfi Þór er einn besti knatt­spyrnu­maður Íslands­sög­unnar og hafði átt afar far­sælan feril í atvinnu­mennsku þegar hann var hand­tek­inn fyrir 21 mán­uði síðan. Á ung­lings­aldri lék hann með FH og Breiða­blik áður en hann gekk til liðs við Reading á Englandi aðeins 16 ára að aldri. Árið 2010 var samn­ingur hans seldur til 1899 Hof­fen­heim á Þýska­landi þar sem hann lék í tvö ár. Eftir tíma á láni hjá Swansea í Wales gekk hann til liðs við Totten­ham Hotspur. Fór hann aftur til Swansea áður en hann var seldur til Everton árið 2017 fyrir met­upp­hæð. 

Hann var samn­ings­bund­inn Everton þegar hann var hand­tek­inn en samn­ingur hans við félagið rann út á síð­asta ári og var ekki end­ur­nýj­aður.

Gylfi lék 78 lands­leiki fyrir Ísland á árunum 2010-2020 og skor­aði í þeim 25 mörk. Hann var lyk­il­maður í lands­liðs­hópnum þegar Ísland lék á sínu fyrsta stór­móti, Evr­ópu­keppn­inni 2016, og komst í 8 liða úrslit eftir fræk­inn sigur á Englandi. Þá var hann einnig í hópnum í Heims­meist­ara­mót­inu 2018.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár