Auglýsingasalar RÚV fá 13 prósent hærri laun að meðaltali en aðrir starfsmenn

Launa­munur milli þeirra sem starfa við aug­lýs­inga­sölu hjá RÚV og ann­arra innan sam­stæð­unnar dregst saman milli ára. Dótt­ur­fé­lagið RÚV sala velti 2,8 millj­örðum í fyrra og átti eigið fé upp á 355 millj­ónir um síð­ustu ára­mót.

Auglýsingasalar RÚV fá 13 prósent hærri laun að meðaltali en aðrir starfsmenn
Efsta­leiti Samstæða rík­is­mið­ils­ins tap­aði 164 millj­ónum króna á síð­asta ári þrátt fyrir að aug­lýs­inga­tekjur hafi auk­ist umtals­vert milli ára.

RÚV sala ehf., dótt­ur­fé­lag RÚV sem ber ábyrgð á allri sölu sem rík­is­fjöl­mið­il­inn skil­greinir sem tekju­aflandi sam­keppn­is­rekst­ur, velti 2,8 millj­örðum króna á síð­asta ári. Rekstr­ar­tekjur félags­ins voru 18 pró­sent hærri á árinu 2022 en á árinu 2021. 

Hagn­aður af rekstri RÚV sölu, það sem sat eftir inni í dótt­ur­fé­lag­inu eftir að það var búið að gjald­færa við­skipti við móð­ur­fé­lag sitt upp á tæpa 2,4 millj­arða króna, greiða laun starfs­manna og borga tekju­skatt, var 170 millj­ónir króna á árinu 2022. Hagn­að­ur­inn jókst um 37 pró­sent milli ára. 

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi RÚV sölu sem Heim­ildin hefur fengið afhentan. Þar segir áfram­hald­andi bati hafi orðið á rekstri félags­ins á árinu 2022 og að tekjur hafi verið sam­bæri­legar og árin á undan heims­far­aldri kór­óna­veirunnar. Þá séu horfur félags­ins á árinu 2023 „ágætar þótt áætlun geri ráð fyrir aðeins minni tekjum, enda ekki eins mikið af stór­við­burðum á árinu.“

Í sam­stæðu­reikn­ingi RÚV, sem birtur var opin­ber­lega fyrir skemmstu, kom fram að þorri tekna RÚV sölu hafi verið vegna sölu aug­lýs­inga og kost­anna. Þær juk­ust um 372 millj­ónir króna milli ára og voru um 2,4 millj­arðar króna. Heim­ildin greindi frá því í síð­ustu viku að þær hefðu auk­ist um 774 millj­ónir króna á tveimur árum eða um 48 pró­sent. 

Safnað upp 355 milljónum í eigið fé á tveimur árum

Í árs­reikn­ingnum kemur fram að gjald­færð við­skipti við móð­ur­fé­lagið RÚV hafi numið rúm­lega 2,3 millj­örðum króna. Það þýðir að RÚV sala heldur eftir hluta af þeim tekjum sem félagið aflar. Þeim tekjum er ann­ars vegar ráð­stafað í laun og launa­tengdan kostnað fyrir þau 17 stöðu­gildi sem starfa hjá RÚV sölu og hafa það hlut­verk að afla RÚV-sam­stæð­unni sam­keppn­i­s­tekna. Hins vegar liggja þær inni í félag­inu sem óráð­stafað eigið fé. Rúv sala, sem tók til starfa í byrjun árs 2020, átti eigið fé upp á 355,3 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót. 

Alls greiddi RÚV sala 225,5 millj­ónir króna í laun og launa­tengd gjöld á síð­asta ári. Það er aðeins lægri fjár­hæð en félagið greiddi ári áður, þegar 16 stöðu­gildi fengi 227 millj­ónir króna í heild­ar­laun. 

Meðallaun auglýsingasala dragast lítillega saman

Það þýðir að með­al­tal kostn­aðar vegna launa og launa­tengdra gjalda á hvert stöðu­gildi á mán­uði á árinu 2022 hjá RÚV sölu var 1.105 þús­und krónur, sem er tæp­lega sjö pró­sent lægri með­al­laun en árið áður. Einar Logi Vign­is­son, fram­kvæmda­stjóri RÚV sölu, hækk­aði um 2,4 pró­sent í launum milli ára og var með um 1.733 þús­und krónur í heild­ar­launa­kostnað að með­al­tali á mán­uði. 

Hjá RÚV sam­stæð­unni allri störf­uðu 254 í fyrra og heild­ar­kostn­aður vegna launa og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna var 3,2 millj­arðar króna á árinu 2022. Þegar kostn­aður við heild­ar­laun og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur starfs­manna RÚV sölu er dreg­inn frá launa­kostn­aði RÚV-­sam­stæð­unnar er með­al­tals­kostn­aður á hvern eft­ir­stand­andi starfs­mann 980 þús­und krón­ur á mán­uði. Því eru með­al­launa­kostn­aður starfs­manna RÚV sölu um 13 pró­sent hærri en með­al­tal launa­kostn­aðar allra ann­arra starfs­manna RÚV-­sam­stæð­unn­ar. Það er minni launa­munur en var 2021, þegar með­al­tals­laun sölu­fé­lags­ins voru 21 pró­sent hærri en ann­arra RÚV starfs­manna. 

Útvarpsstjórinn með 2,7 milljónir á mánuði

Þeim launum er þó nokkuð mis­skipt innan RÚV en Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri er til að mynda með 2,7 millj­ónir króna í heild­ar­laun og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur í fyrra. Laun hans hækk­uðu um 8,7 pró­sent milli ára, eða um 217 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði. Í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar á sem kom út á síð­asta ári kom fram að tólf starfs­menn RÚV væru yfir eina milljón króna á mán­uði í laun árið 2021 og sá þrett­ándi var með 998 þús­und krónur í laun. 

RÚV er rekið í sam­ræmi við þjón­ustu­samn­ing sem gerður er við það ráðu­neyti sem fer með mál­efni fjöl­miðla hverju sinni. Nú er það ráðu­neyti menn­ingar- og við­skipta­mála sem stýrt er af Lilju Alfreðs­dótt­ur. Nýr þjón­ustu­samn­ingur var und­ir­rit­aður í lok árs 2020 og lát­inn gilda aft­ur­virkt frá 1. jan­úar á því ári. Hann rennur út í lok þessa árs. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Það þarf að breita RUV Rikið þarf að hætta vera með Klædnar a þessari Stofnun ruv a ekki að vera a Auglysinga markaði. Ras 2 þarf að Selja eða hafa mannlausa stöð Tölfa getur seð um Usendingar og Lagaval Gerfigreynd, Frettir samtengdar. Þarna er buið að Hruga folki inn sem i reynd mætti Sleppa. Ras 1 er meningar stöð hun dugar RUV.
    Þarna er Spilling og Politik. Kvi hætti Helgi Seljan og FL. Sanlekurinn ma ekki Heirast.
    Þessi Steinsteipu Höll a Haaleytinu er of stor. Það Hus ma selja og finna minna Husrimi
    Sem hentar betur. Rikisrekin Fjölmiðil er að keppa við Einkaframtakið. Ef þetta heldur afram að þenjast ut i skjoli Politikur og Valdnyðslu Gengur RUV að Frjalsri Fjölmiðlun Dauðri. Blöð HÆTTA og Einkareknar Utvarpstöðvar lika. RUV þarf að draga saman SEGLIN.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár