207 milljónir fyrir öryggisvistun eins manns undir stjórn Guðmundar Sævars

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið greiðir einka­reknu fyr­ir­tæki 207 millj­ónir á þessu ári vegna örygg­is­vist­unar eins manns. For­stöðu­maður á heim­ili manns­ins Guð­mundur Sævar Sæv­ars­son, sem fór í ótíma­bundið leyfi frá störfum sínum sem deild­ar­stjóri á öryggis- og rétt­ar­geð­deildum eftir að Geðhjálp birti svarta skýrslu um starf­sem­ina.

207 milljónir fyrir öryggisvistun eins manns undir stjórn Guðmundar Sævars
Guð­mundur Sævar Sæv­ars­son var deild­ar­stjóri á öryggis- og rétt­ar­geð­deildum Land­spít­al­ans. Hann er nú yfir örygg­is­vistun á Reyni­melnum. Mynd: Heimildin

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið er með samn­ing við einka­fyr­ir­tækið Mann­virð­ingu ehf. „um örygg­is­gæslu og þjón­ustu við ein­stak­ling, sem er með fjöl­þætta og sér­tæka stuðn­ings­þörf“. Guð­mundur Sævar Sæv­ars­son, fyrr­ver­andi deild­ar­stjóri réttar- og örygg­is­deilda Land­spít­al­ans, hefur und­an­farna mán­uði starfað sem for­stöðu­maður örygg­is­vist­un­ar­innar sem er til húsa á Reynimel.

Samkvæmt samn­ingnum tekur Mann­virð­ing að sér að veita umsamda þjón­ustu við ein­stak­ling „á grund­velli dóms Hér­aðs­dóms Reykja­víkur … þar sem kveðið er á um að hann skuli sæta örygg­is­gæslu“. 

Tveir til þrír starfs­menn eru á vakt allan sól­ar­hring­inn á Reyni­melnum, allan árs­ins hring, vegna þeirrar þjón­ustu sem veitt er sam­kvæmt gild­andi samn­ingi. Eins og staðan er í dag starfa þar sam­tals 14 starfs­menn í 11,9 stöðu­gildum. Samkvæmt gild­andi samn­ingi greiðir ráðu­neytið Mann­virð­ingu 207 millj­ónir króna vegna örygg­is­vist­un­ar­innar á þessu ári.

Af allt öðrum toga

Félagið Mann­virð­ing var stofnað síðla árs 2018 af Kristínu O. Sig­urð­ar­dóttur í þeim til­gangi að taka við …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórdís Ólafsdóttir skrifaði
    Maður sem ræður ekki við sitt eigið lif settur yfir aðra.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár