Bæjarstjóri gagnrýnir skipun Klausturmanns í starf lögreglustjóra í Vestmannaeyjum

Bæj­ar­stjór­inn í Vest­manna­eyj­um seg­ir Jón Gunn­ars­son vænt­an­lega hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það væri heppi­leg og smekk­leg ráð­stöf­un að skipa Karl Gauta Hjalta­son sem lög­reglu­stjóra „eft­ir þá kven­fyr­ir­litn­ingu og al­mennu mann­fyr­ir­litn­ingu sem mér og fleir­um var sýnd á Klaust­urs­b­ar hér um ár­ið. Þar var hinn ný­skip­aði lög­reglu­stjóri þátt­tak­andi.“

Bæjarstjóri gagnrýnir skipun Klausturmanns í starf lögreglustjóra í Vestmannaeyjum

Karl Gauti Hjalta­son, fyrr­ver­andi þing­maður Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins, var í dag skip­aður lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum af Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra. Karl Gauti féll út af þingi í síð­ustu kosn­ingum og hefur síðan þá sótt um ýmsar opin­berar stöður, meðal ann­ars dóm­ara­emb­ætti. Auk þess sótt­ist hann eftir stöðu fram­kvæmda­stjóra lands­kjör­stjórnar en fékk ekki. 

Karl Gauti var á meðal þeirra þing­manna sem teknir voru upp á Klaustur bar síðla árs 2018 þar sem fjöl­mörg ósæmi­leg ummæli féllu um nafn­greint fólk. Hann hélt því sjálfur fram að hann hefði ekki sagt neitt „sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert“. 

Íris Róberts­dóttir, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum, var á meðal þeirra sem talað var niðr­andi um en Bergþór Ólason, núver­andi þing­maður Mið­flokks­ins lét óvið­ur­kvæmi­leg orð falla um hana. Tíu dögum eftir að sam­tal þing­mann­anna á Klaustri var tekið upp mætti Íris fyrir umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis til að ræða sam­göngu­á­ætlun, en Karl Gauti sat í nefnd­inni og Bergþór var for­maður hennar. Þeir gengu báðir úr fund­ar­sal nefnd­ar­innar áður en Íris kom fyrir nefnd­ina. 

Íris tjáði sig um ráðn­ingu Karls Gauta í færslu á Facebook í dag og sagði að hún sem bæj­ar­stjóri myndi auð­vitað vinna með þeim lög­reglu­stjóra sem rétti­lega væri skip­aður til starfa í Vest­manna­eyjum hverju sinni. „Dóms­mála­ráð­herra hefur vænt­an­lega kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, eftir vand­lega íhugun, að þetta sé heppi­leg og smekk­leg ráð­stöfun eftir þá kven­fyr­ir­litn­ingu og almennu mann­fyr­ir­litn­ingu sem mér og fleirum var sýnd á Klaust­urs­bar hér um árið. Þar var hinn nýskip­aði lög­reglu­stjóri þátt­tak­andi.“

Karl Gauti mun taka við starf­inu næst­kom­andi laug­ar­dag. Hann hefur áður verið sýslu­maður og lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, frá 1998 til 2014. Þá var hann skóla­stjóri Lög­reglu­skóla rík­is­ins á árunum 2014 til 2016, áður enn hann sett­ist á þing árið 2017.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Klamhundar eiga ekki að vera Lögreglustjorar a Islandi
    Jon Likkistu sali er eins og Nazisti. Hægri öflin raða Lögæstlu, Domamalum, Trulmalum
    Rikið a ekki að reka Trufelag hrun hefur orðið hja Þjoðkirku, Klamhundar Prestar og fl spilling. Timi Nuverandi Rikistjornar er Löngu liðin.
    0
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Þetta sýnir hvaða álit Jón Gunnarsson hefur á konum
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár