Ómetanlegt að finna stuðninginn

Öllu máli skiptir að hafa fengið aðstoð, fólk og tæki, austur á land eftir að snjó­flóð féllu í Nes­kaup­stað og hús voru rýmd þar, á Eski­firði og Seyð­is­firði segir Jón Björn Hákon­ar­son bæj­ar­stjóri Fjarða­byggðar.

Gríðarlegt snjómagn Gríðarlega mikill snjór er á Norðfirði sem hefur gert viðbragðsaðilum erfitt fyrir.

Rýming mun standa áfram að svo stöddu á Seyð­is­firði, Eski­firði og í Nes­kaup­stað, utan að rým­ingu hefur verið aflétt af svoköll­uðu svæði 18 í Nes­kaup­stað. Fimm snjó­flóð hið minnsta féllu í gær við Nes­kaup­stað en aðeins eitt þeirra lenti í byggð með til­heyr­andi tjóni á eignum en sem betur fer ekki mann­tjóni. Fólk sem var í húsi við Starmýri sem flóðið lenti á skrám­að­ist þó eitt­hvað. Unnið er að því að opna veg­inn innan við bæinn sem flóð féll yfir í gær. „Við verðum eig­in­lega að nýta þennan glugga til þess, vegna þess að það er spáð leið­inda­veðri, annað kvöld og á fimmtu­dag, með mik­illi ofan­komu,“ segir Jón Björn Hákon­ar­son, bæj­ar­stjóri í Fjarða­byggð.

Spurður hvernig hann og aðrir íbúar beri sig lætur Jón Björn þokka­lega af því. „Við segjum svo sem allt ágætt. Hér er hæg­viðri núna og menn sáu fjallið í morgun. Það var kannað bæði með sjón­skoðun og dróna­flugi og það er verið að vinna úr þeim gögnum núna, klár­ast vænt­an­lega eftir hádegið.“

Flóð inn í húsMildi er að ekki fór verr þegar snjó­flóð lenti á húsi á Norð­firði í gær­morgun.

Kannað hvort gil hafi tæmst

Verið er að kanna hvort gilin sem snjó­flóð féllu úr í gær hafi með því hreins­ast.„Ef við sjáum að þau hafi hreinsað sig þá erum við nokkuð örugg um að ekki komi meira úr þeim. Það eru gilin og boll­arnir sem eru snjóakistur og safna í sig,“ segir Jón Björn.

Töluvert tjónLjóst er að tölu­vert tjón varð í snjó­flóð­inu en sem betur fer varð ekki mann­tjón.

Ákveðið var að rýma efstu byggð­ina í Nes­kaup­stað, þær götur sem standa næst varn­ar­görð­unum, í gær. Spurður hvort það sé á ein­hvern hátt áfell­is­dómur yfir því hvernig garð­arnir voru upp­byggðir og hvort staðan ætti ekki að vera sú að nauð­synja­laust væri að rýma hús neðan snjó­flóða­varn­ar­garða svarar Jón Björn: „Jú, maður skyldi nú ætla það en þetta var var­úð­ar­ráð­stöfun. Veð­ur­stofan hafði ekki áhyggjur af görð­unum sem slíkum en hafði áhyggjur af mögu­leik­anum á að slettu­flóð kæmu yfir ef að snjór sett­ist í garð­ana. En jú, auð­vitað er maður að horfa til þess þegar garð­arnir eru komnir að þess ger­ist ekki þörf að rýma hús. Það sem gerð­ist í gær var að skyggni var svo tak­markað allan dag­inn að það var ekki hægt að full­vissa sig um stöðu á snjóa­lögum ofan við garð­ana, hvort þar væri að fyll­ast. En við sjáum það núna að það er ekki, þó það hafi komið flóð á ysta garð­inn.“

„Þetta er bara eins og vél sem hægt er að setja í gang“
Jón Björn
um við­bragð við nátt­úru­ham­förum á Íslandi

Ekki nema þrjár fjöl­skyldur gistu í fjölda­hjálp­ar­stöð­inni í Egilsbúð í nótt og gerðu það að eigin beiðni. Aðrir sem rýma þurftu hús sín dreifð­ust annað, á hótel, heima­vist Verk­mennta­skól­ans og heim til ætt­ingja og vina. Egilsbúð verður áfram opin og boðið er upp á mat og sál­rænan stuðn­ing sem mann­skapur frá Rauða kross­inum sinnir.

Mikil vinna við að hreinsa bæinn

Tölu­verður fjöldi fólks ann­ars staðar af land­inu kom austur í gær til aðstoðar heima­mönnum, með varð­skip­inu Þór og þyrlum Land­helg­is­gæsl­unnar meðal ann­ars. Þá voru ferjuð austur tæki og tól einnig. Jón Björn segir að sú aðstoð sé ómet­an­leg, á mjög margan hátt, bæði verk­lega og and­lega. „Það skiptir öllu máli, það er alveg ómet­an­legt. Að finna þennan mikla stuðn­ing sýnir okkur hvað við sem þjóð erum ótrú­lega hæf til að takast á við nátt­úru­ham­farir. Ég hef mörgum sinnum í mínu starfi unnið með þessu fólki vegna nátt­úru­ham­fara og þetta er bara eins og vél sem hægt er að setja í gang.“

„Ég er að horfa á bíl­inn minn og ég veit ekki hvort ég næ honum út fyrr en í júlí“

Spurður um stöðu mála og hvort vinnu­staðir séu til dæmis opnir segir Jón Björn að ekki sé unnið á hafn­ar­svæð­inu í bænum þar sem ennþá sé lokað á milli þar eftir að snjó­flóðið féll á veg­inn. Skólar eru lok­aðir í dag en verið er að opna mat­vöru­búð­ina í bænum. Þá sé verið að moka bæinn en gríð­ar­legt snjó­magn er á göt­unum. „Ég er að horfa á bíl­inn minn og ég veit ekki hvort ég næ honum út fyrr en í júlí.“

Mikið verk framundanFyrir Norð­firð­ingum liggur mikið verk við að hreinsa bæinn.

Jón Björn er að hætta sem bæj­ar­stjóri Fjarð­ar­byggðar og til stóð að hann myndi láta af störfum um kom­andi mán­að­ar­mót. Spurður hvort hann fái það nokkuð hlær hann. „Ég veit það ekki. Ég mun að sjálf­sögðu vera til staðar á meðan þetta ástand klár­ast. Ég á hvergi að vera mættur um mán­að­ar­mótin svo ég hef tíma til að moka bíl­inn út og kom­ast úr bænum. Svo er bara spurn­ing hvort ein­hver vilji fá mann í vinnu,“ segir Jón Björn glett­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár