Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú mjög gróft heimilisofbeldismál og ætlaða tilraun til manndráps. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp þann 25. febrúar síðastliðinn.
Þolandi í málinu sem er kona var flutt á sjúkrahús með lífshættulega áverka. Rannsókn málsins er samkvæmt lögreglunni umfangsmikil og hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu frá því að hún hófst. Málið er með alvarlegri heimilisofbeldismálum sem embættið hefur komið að.
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir