Sársauki flókinnar arfleifðar

List­fræð­ing­ur­inn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir rýnir í sýn­ing­una Að rekja brot í Gerð­ar­safni.

Sársauki flókinnar arfleifðar
Myndlist

Að rekja brot

Gefðu umsögn

Hvað köllum við nor­ræna mynd­list? Og hvaða merk­ingu hefur þjóð­erni mynd­list­ar­fólks á tímum fólks­flutn­inga, fjöl­menn­ingar og flók­innar arf­leifðar? Þessar spurn­ingar koma upp í hug­ann þegar gengið er í gegnum sýn­ing­una Að rekja brot  í Gerð­ar­safni í Kópavogi. Nöfn mynd­list­ar­fólks­ins eru ónor­ræn og við fyrstu sýn er aðeins hægt að tengja nafn sýn­ing­ar­stjór­ans, Daríu Sól Andrews, við Ísland. Þegar betur er að gáð eiga tveir aðrir íslenskir lista­menn aðkomu að sýn­ing­unni, Kathy Clark og Hugo Llanes. Þau eru kannski ekki með íslensk vega­bréf en Kathy hefur starfað lengi hér á landi og Hugo lærði mynd­list við Lista­há­skóla Íslands og hefur látið að sér kveða í íslensku lista­lífi. Kathy er banda­rísk en á rætur að rekja til Kóreu og Japan en Hugo er frá Mexíkó. Sasha Huber og Abdullah Qureshi koma frá Finn­landi, en eiga rætur að rekja til Sviss og Haítí ann­ars vegar og Lahore hins vegar. Frida Orupabo er fædd í Noregi en á rætur að rekja til Nígeríu. Inuuteq Storch er frá Græn­landi en býr einnig í Kaup­manna­höfn. Öll eiga þau það sam­eig­in­legt að fjalla um upp­runa sinn og áhrif hans á stöðu sína í heim­inum.

„Sprellikarlar“ og brostin hjörtu

Frida Orupabo notar fundnar svart-hvítar ljós­myndir í verk sín, sem hún stækkar upp, klippir út og setur saman með papp­írs­fest­ingum þannig að þær minna á sprellikarla. Við­fangs­efnið sjálft er ekk­ert sprell heldur vísar í þær skrípa­myndir sem dregnar hafa verið upp af fólki af afrískum upp­runa í vest­rænum sam­fé­lögum. Sam­setn­ingin mynd­anna gefur verkum eins og A Warm Meal (2021) og Leda and the Swan (2021) tor­kenni­legt og fram­andi yfir­bragð sem er um leið óþægi­lega kunn­ug­legt og krefur áhorf­and­ann til að horfast í augu við arf­leifð nýlendu­tím­ans.  

Sasha Huber tekst einnig á við ofbeldi for­tíð­ar­innar og áhrif þess á sam­tím­ann í sínum verkum, en hún notar hefti og hefti­byssur til að draga upp myndir af ofbeldi í for­tíð og nútíð og móta áferð í þrí­víðum verkum unnin í tré. Í This is America II (2022) hefur Sasha teiknað hjarta á hvíta bóm­ull sem hefur verið strekkt á skot­helt vesti til að minn­ast Ahmaud „Maud“ Arbery, sem var skot­inn til bana þegar hann var úti að hlaupa í hvítum stutt­erma­bol. Það er auð­velt að tengja við­fangs­efnið mál­efnum sem alltof oft rata í fréttir, en það sama á ekki við um hol­lenska tré­klossa sem hafa verið þaktir heftum og virð­ast ósköp sak­leys­is­legir þar sem þeir standa á stöpli sýn­ing­ar­rým­is­ins. Und­ir­liggj­andi merk­ing verks­ins afhjúp­ast í titl­inum Free Zwarte Piet (2019) eða Frelsum Svarta Pétur, hör­unds­dökkan aðstoð­ar­mann – og þræl –hol­lenska jóla­sveins­ins Sinterklaas. Í verkum Sasha takast á áferð­ar­fal­leg ásýnd málm­gljá­andi heft­is­ins og til­finn­ing fyrir ofbeldi sem verður nán­ast lík­am­lega áþreif­an­leg þegar verkin eru skoðuð í návígi.

Klisjur og sjálfsemd

Verk Inuuteq Storch og Adullah Qureshi eru unnin í hefð­bundn­ari miðla, sem eru ljós­myndir og mál­verk. Inuuteq sýnir hvers­dags­lífið á Græn­landi í ljós­mynda­röð­inni  Keepers of the Ocean (2022) en allar ljós­mynd­irnar eru teknar eins og skyndi­myndir. Myndefnið er hvorki upp­stillt né fegrað heldur lát­laust um leið og mynd­irnar bera vitni um næmt auga ljós­mynd­ar­ans. Allt myndefni hefur sama vægi í með­förum Inuuteq hvort sem það er skellinaðra og þvotta­snúrur sem birgja sýn út á sjó, sam­skipti hunds og manns, snævi­þaktir smá­bátar, vinnu­fatn­aður á snaga, maður að skríða í gegnum rör, sund­ferð á sól­ar­degi eða par í faðm­lögum uppi í sófa. Í verk­unum afbyggir Inuuteq allar mögu­legar og ómögu­legar klisjur um Grænland og Græn­lend­inga með því að sýna okkur lífið í nútím­anum eins og hann sér það.

Málverk Adullah unnin í akrýl og ind­verskt blek, fela í sér ann­ars konar afbygg­ingu sem snýr að staðalí­myndum karl­mennsk­unnar í múslim­skri menn­ingu og áhrif hennar á hug­myndir ann­arra menn­ing­ar­heima um múslim­ska karl­menn. Mál­verkin Chris I (2022) og Would you like to join me in the Sauna? (2022) sýna og ýja að því sem ekki má sjást eða segja frá, en sam­kyn­hneigðir múslim­skir karl­menn eru krafðir um að lýsa þegar þeir leita skjóls á Vest­ur­löndum. Adullah tekst á heill­andi hátt á við tog­streit­una milli felu­leiks og frelsis með fram­setn­ingu á for­boðnu myndefni sem vegur salt á milli sýni­leika og ósýni­leika, afhjúp­unar og hulu.

Persónulegar minningar

Hugo Llanes leikur einnig með mörk hins fígúra­tífa og abstrakt en á allt annan hátt í mynd­bandsinn­setn­ing­unni  Dulce como amargo: De la Vera Cruz (2023) eða Sætt sem beiskt: frá Vera Cruz.  Eldur á ökrum og svíf­andi ösku­fall í húsa­garði sem fellur yfir lík­ama lista­manns­ins eins og svartur snjór hefur dáleið­andi aðdrátt­ar­afl. Eldurinn gæti minnt á trú­ar­lega athöfn, merkja­send­ingar eða slys tengt þurrki en er í raun aðferð notuð við ræktun syk­ur­reyrs í Mexíkó. Rækt­un­ar­að­ferðin sem hefur meng­andi áhrif á allt umhverfið er arf­leifð frá nýlendu­tím­anum og þannig tákn­ræn fyrir áhrif nýlendu­stefn­unnar á lönd Rómönsku Ameríku.

Önnur inn­setn­ing á sýn­ing­unni er verk Kathy Clark, My Mother and the Market in Ikwakuni, Japan (2023), sem byggir á minn­ingum móður lista­kon­unnar sem var stödd á mark­aði í Hiros­hima þegar kjarn­orku­sprengjan féll á borg­ina. Tilefnið orkar sterkt á áhorf­and­ann og þá ekki síst sú stað­reynd að móð­irin, sem er kóresk að upp­runa, hélt þess­ari reynslu leyndri fyrir dætrum sínum, sem eru aldar upp í Banda­ríkj­unum, ára­tugum saman. Þetta kemur fram í hljóð­upp­töku af frá­sögn móð­ur­innar og systur lista­kon­unnar sem fylgir verk­inu. Inn­setn­ingin er sett upp eins og hvít­hreins­aður minja­gripa­mark­aður með bak­her­bergi sem athvarf minn­inga um alla þá sem létu lífið í spreng­ing­unni. Hún er einnig hús minn­inga sýn­ing­ar­gesta sem er boðið að taka þátt í verk­inu og minn­ast horfinna ást­vina. Verkið vekur spurn­ingar um kúgun og skömm um leið og það býður heilun.

Hlutverk sýningarstjórans

Sýningin Að rekja brot  er hug­ar­fóstur sýn­ing­ar­stjór­ans Daríu Sól Andrews sem er íslensk-banda­rísk og menntuð í sýn­ing­ar­gerð frá Stokk­hólmi. Með vali sínu á verkum og lista­mönnum varpar hún fram spurn­ingum um sam­fé­lags­lega knýj­andi mál­efni er snúa að upp­gjöri við arf­leifð nýlendu­stefn­unnar og áhrif hennar á ein­stak­linga og sam­fé­lög í sam­tím­anum. Daríu Sól hefur tek­ist ein­stak­lega vel upp með val á verkum og lista­mönnum sem þrátt fyrir að vera ólík að formi og gerð búa yfir sam­eig­in­legu leið­ar­stefi. Vandað er til upp­setn­ingar á verk­unum, sem fá svig­rúm í rým­inu og áhorf­and­inn and­rými til að með­taka þau hvert fyrir sig sem og erindi hvers lista­manns. Að rekja brot er fengur inn í flóru mynd­list­ar­sýn­inga á Íslandi, bæði vegna inn­taks verk­anna, og gæða þeirra og vel heppn­aðrar upp­setn­ingar.


Lista­menn: Kathy Clark, Sasha Huber, Hugo Llanes, Frida Orupabo, Inuuteq Storch, Abdullah Qureshi
Sýn­ing­ar­stjórn: Daría Sól Andrews
Sýn­ing­ar­staður: Gerð­ar­safn, Kópavogi
Sýn­ing­ar­tíma­bil: 2. febr­úar – 21. maí 2023
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár