1053. spurningaþraut: Hverjir sömdu, sungu og spiluðu Vetrarferðina?

1053. spurningaþraut: Hverjir sömdu, sungu og spiluðu Vetrarferðina?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 2018 vakti mikla athygli þegar ungir piltar í fót­boltaliði lok­uð­ust inni í djúpum helli og kost­aði mikið erf­iði að koma þeim út. Í hvaða landi gerð­ist þetta?

2.  Auð­kýf­ingur einn bauð fram aðstoð sína við að ná pilt­unum út en lenti síðan í mála­ferlum eftir að hafa nítt skó­inn af einum þeirra kaf­ara sem tóku þátt í að bjarga þeim. Auð­kýf­ing­ur­inn var sýkn­aður af kröfu um bætur vegna meið­yrða en hver er hann?

3.  Frétta­kona sem hafði verið hjá Kveik á RÚV hætti fyrir tveim árum og fór að vinna sem upp­lýs­inga­full­trúi hjá Robert Wessmann eða fyr­ir­tækjum hans. Hún lét svo af störfum þar um dag­inn. Hvað heitir hún?

4.  Páley Borg­þórs­dóttir, við hvað starfar hún? Hér þarf svarið að vera nákvæmt.

5.  Hvaða fjörður er milli Siglu­fjarðar og Ólafs­fjarðar?

6.  Hvaða teikni­mynda­per­sóna á einkar mik­il­vægan lukku­pen­ing, sem mun vera fyrsti pen­ing­ur­inn sem per­sónan græddi á ævinni?

7.   Árið 2012 fékk diskur með ljóða­flokknum Vetr­ar­ferð­inni Íslensku tón­list­ar­verð­launin í flokki sígildrar- og sam­tímatón­listar. Þar söng Vetr­ar­ferð­ina einn kunn­asti söngv­ari Íslend­inga síð­ustu ára­tug­ina, karl sem hóf feril sinn sem barítón en færði sig svo niður í bassa. Hver er sá söngv­ari? 

8.  Und­ir­leik­ari á þessum diski var heldur eng­inn aukvisi, heldur hefur haslað sér æ stærri völl sem eink­leik­ari á píanó síð­asta hálfa annan ára­tug­inn og komið víða fram og fengið mikið lof. Hann heitir ... hvað?

9.  En ljóða­flokk­ur­inn Vetr­ar­ferðin eða Winterreise, hver samdi ann­ars lögin í þeim víð­fræga flokki? Svo er vetr­ar­stig fyrir þá fáu sem vita hver samdi LJÓÐIN í Vetr­ar­ferð­inni!

10.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Lima?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þótt myndin sé ekki góð, þá ættu nú þau sem til þekkja að bera kennsl á kon­una á mynd­inni hér að neðan.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Taílandi.

2.  Elon Musk.

3.  Lára Ómars­dóttir.

4.  Lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi eystra.

5.  Héð­ins­fjörður.

6.  Jóakim Aðalönd.

7.  Kristinn Sig­munds­son.

8.  Víkingur Heiðar.

9.  Schubert. — Ljóðin samdi Müller nokkur.

10.  Perú.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng­konan Rihanna.

Á neðri mynd­inni er Ásta Sig­urð­ar­dóttir.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár