Ellefta stýrivaxtahækkunin staðreynd – Vextir komnir í 6,5 prósent

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur enn og aftur ákveðið að hækka stýri­vexti. Vext­irnir hafa ekki verið hærri síðan á árinu 2010.

Ellefta stýrivaxtahækkunin staðreynd – Vextir komnir í 6,5 prósent
Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Seðla­­­banki Íslands hefur hækkað stýri­vexti sína upp í 6,5 pró­sent. Þetta er í ell­efta sinn í röð sem bank­inn hækkar vexti, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí 2021. Fyrir vikið eru íbúða­lána­vextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­­­­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinn­u­líf, með til­heyr­andi hærri greiðslu­byrði fyrir heim­ili í land­inu. Eftir nýj­ustu stýri­vaxta­hækk­un­ina er við­búið að slíkir vextir muni hækka enn á ný.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands segir að þótt tekið hafi að hægja á hús­næð­is­mark­aði og alþjóð­leg verð­bólga hafi minnkað lít­il­lega sé verð­bólgu­þrýst­ingur enn mik­ill og verð­hækk­anir á breiðum grunni. Verð­bólgu­horfur hafi versnað frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar og þótt verð­bólga hafi lík­lega náð hámarki taki lengri tíma að ná henni niður í verð­bólgu­mark­mið bank­ans en áður var talið. „Lakari horfur skýr­ast einkum af því að nýgerðir kjara­samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði fela í sér tölu­vert meiri launa­hækk­anir en þá var gert ráð fyrir. Einnig hefur gengi krón­unnar lækkað og útlit er fyrir meiri fram­leiðslu­spennu á spá­tím­anum. Við þetta bæt­ist að útlit er fyrir að aðhald fjár­laga verði minna en gert var ráð fyrir í nóv­em­ber­spá bank­ans þrátt fyrir að dragi úr halla­rekstri rík­is­sjóðs í ár. Verð­bólgu­vænt­ingar til lengri tíma eru enn vel yfir mark­miði og raun­vextir bank­ans hafa lækkað frá síð­asta fundi.“

Gefið til kynna að toppnum væri náð

Ásgeir Jóns­­son seðla­­banka­­stjóri lét hafa eftir sér þegar vextir voru hækk­aðir í 5,75 pró­sent í októ­ber að toppnum á vaxta­hækk­un­ar­ferl­inu væri mögu­lega náð. Mánuði síðar voru vext­irnir hins vegar hækk­aðir aftur, nú upp í sex pró­sent. Þá sagði Ásgeir að sú hækkun ætti að vera nóg til að ná verð­bólgu niður í mark­mið, sem er 2,5 pró­sent, á ásætt­an­legum tíma. Boltinn væri hjá aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og rík­is­vald­inu. 

Um 80 pró­sent af almenna vinnu­mark­aðnum, sem var með samn­inga lausa í fyrra­haust, samdi til skamms tíma við Samtök atvinnu­lífs­ins um kjara­samn­inga sem gilda út jan­úar 2024. Fjárlög voru hins vegar afgreidd með 120 millj­arða króna halla, sem var umtals­vert meiri halli en gert hafði verið ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það var lagt fram í sept­em­ber 2022. Þá var hall­inn áætl­aður 89 millj­arðar króna. 

Verðbólgan jókst í útsölumánuði

Vísi­tala neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu, hækk­­aði um 0,85 pró­­sent milli des­em­ber og jan­ú­ar­mán­aða. Tólf mán­aða verð­­bólga mæld­ist því 9,9 pró­­sent í jan­úar eftir að hafa mælst 9,6 pró­­sent í des­em­ber­mán­uði og  9,3 pró­sent í nóv­em­ber 2022. Þetta var í annað sinn á nokkrum mán­uðum sem tólf mán­aða verð­bólga mælist 9,9 pró­sent. Það gerð­ist síð­ast í júlí síð­ast­liðnum. Þar áður þarf að leita aftur til sept­em­ber 2009 til að finna jafn mikla verð­bólgu á Íslandi.  

Tólf mán­aða verð­­bólga var 5,7 pró­­sent í jan­ú­ar í fyrra og hefur því auk­ist veru­lega síð­ast­liðið ár. 

Sam­­kvæmt til­­kynn­ingu Hag­­stofu Íslands voru helstu ástæður þess að vísi­talan hækk­­aði á milli októ­ber og nóv­­em­ber þær að verð á mat­vörum hækk­­aði um tvö pró­­sent, en hluti af þeirri hækkun skýrist af hækkun á mjólk, ostum og eggjum um 4,4 pró­sent. Áfengi og tóbak hækk­aði um 5,5 pró­sent vegna hækk­ana á gjöldum sem renna í rík­is­sjóð, hita­veita hækk­aði um sex pró­sent,  nýir bílar hækk­uðu um 9,8 pró­sent, að mestu vegna hækk­ana á opin­berum gjöldum, og veit­ingar um 2,4 pró­sent.

Ýmislegt lækk­aði einnig í verði líkt og oft­ast í jan­úar, þegar vetr­ar­út­sölur eru í gangi í kjöl­far jóla­ver­tíð­ar­innar. Þannig lækk­aði verð á fötum og skóm um 8,4 pró­sent, hús­gögn og heim­il­is­bún­aður um 4,4 pró­sent og raf­tæki um 6,2 pró­sent. Flug­far­gjöld til útlanda lækk­uðu líka mark­tækt, eða um 9,4 pró­sent.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hér eru skrif Marinós Njálssonar :

    ,,Var að hlusta á upptöku af fundi um ákvörðun Peningastefnunefndar. Erna Björk Sverrisdóttir, Arion banka, grillaði seðlabankafólkið með spurningum sínum og hef ég ALDREI séð eins beinskeittum spurningum beint að seðlabankastjóra og aðalhagfræðingi. Hef þó fylgst með þessum málum í ansi mörg ár. Þriðji fulltrúi Seðlabankans á fundinum var Rannveig Sigurðardóttir og lét hún þá félaga sína líta heldur illa út. Svör hennar skýr, beint að efninu og ekkert tafs.
    Maður hálf vorkenndi Þórarni G. Péturssyn og Ásgeiri Jónssyni, þegar þeir voru að umla sig í gegn um svörin sín. Þórarinn svaraði fyrst, sagði lítið og sendi heitu kartöfluna eins fljótt og hann gat til Ásgeirs. Spurning Ernu til Þórarins var þó ekki flókin: Hver væru áhrif verri upphafsstöðu á ákvörðun nefndarinnar? (Verulega stytt.)
    Svar Þórarins var þvílík steypa, að annað eins hefur bara ekki heyrst. Hann hélt því fram "að margar af þessum opinberu hækkunum væru að koma vegna launa hækkananna" (ekki alveg orðrétt). Hvaða bull er þetta? Hækkanir á bifreiðagjöldum tengjast launabreytingum EKKERT! Hækkun á bensíngjaldi tengist launahækkunum EKKERT! Hækkun áfengisgjalds tengist launahækkunum EKKERT! Þessi þrjú atriði vega um 0,7% af 0,85% af hækkun vísitölu neysluverðs milli desember og janúar.
    Ásgeir roðnaði, eins og ég hef ekki séð hann síðan Max Keiser spurði hann óþægilegra spurninga fyrir hrun og svaraði svo rogginn: "Þetta er svo sem ekkert flókið" og kom svo með "af því bara" svar. Þeim hluta spurningarinnar, að hann hefði talið kjarasamningana í byrjun desember vera mjög jákvæða, svaraði hann: "Það er rétt að kjarasamningarnir voru jákvæðir fyrir fjármálastöðugleika, en á þessum fundi erum við að tala um verðstöðugleika!" Fattararnir í mér virka stundum illa og núna fóru þeir í kleinu. Er ekki verðstöðugleiki ein af grundvallarforsendum fjármálastöðugleika og öfugt? Fæst annað án hins?
    Ásgeir opinberaði þarna hvað stjórnhættir og -skipan Seðlabankans er vitlaust og óskilvirk. Innan bankans eru minnst tvær nefndir sem taka áhrifaríkar ákvarðanir fyrir hagkerfið, þ.e. Peningastefnunefnd og Fjármálastöðugleikanefnd. Þær virðast ekki starfa saman, þó seta Ásgeirs í þeim báðum eigi að tryggja eitthvað samræmi. Peningastefnunefnd ákvarðar vexti, en hefur ekki áhrif á útlánagetu bankanna. Það er nú samt þannig, að útgáfa bankanna á nýjum peningum samhliða útlánum er ein helsta ástæða aukinnar verðbólgu. Með því að setja sífellt fleiri peninga í umferð hækkar t.d. húsnæðisverð. Fáar aðgerðir hafa líklegast haft meiri áhrif á að húsnæðisverð hætti að hækka eins hratt og það gerði og þegar Fjármálastöðugleikanefnd þrengdi lánþegaskilyrðin s.l. haust. Ég legg til að þessar nefndir vinni mikið saman og séu samstíga í sínum aðgerðum.
    Síðan spurði Erna spurningarinnar, sem ég hef oft spurt, þ.e. um það hve mikið af vaxtahækkunum bankans væru þegar búnar að koma fram í áhrifum á verðbólguna. Það tæki, jú, 6-18 mánuði fyrir breytingar á vöxtum bankans að koma fram.
    Rannveig svaraði þessum hluta og loksins kom skýrt svar, en það vantaði bara mestan hluta þess.
    Jón Bjarki spurði um flótta fólks yfir í verðtryggð lán og áhrif á Peningastefnuna. Ásgeir kom þá með skýringu sem hann ætti að skammast sín fyrir. Hann er hagfræðingur, seðlabankastjóri og situr í Peningastefnunefnd og heldur því blákalt fram að verðmæti peninga ráðist af því hvort áfengisgjald sé krónunni meira eða minna. Það er enginn að græða á því að borga 7,5% nafnvexti í 9,9% verðbólgu í staðinn fyrir að borga 3,5% nafnvexti í 2% verðbólgu. Ég hefði haldið að tap lánþegans nemi 4% af lánsfjárhæðinni. Svo er hitt, sem hann greinilega skilur ekki. Í öllum löndum heims (nema á Íslandi) er litið svo á, að verðbólga sé tækifæri til að leiðrétta skuldastöðu almennings. Þá er gert ráð fyrir, að í kjölfar hækkandi verðbólgu komi launahækkun og eftirstöðvar lána verði því lægra hlutfall launa en áður.
    Erna kom aftur inn með áhugaverða spurning: Hvað þarf að gerast til að vextir hækki ekki í mars?
    Rannveig svaraði og byrjaði á einstaklega áhugaverðum punkti: Hækkun vaxtanna núna er EKKI vegna verðbólgumælingarinnar í janúar! Þá vitum við það. Ætli spekingar greiningadeilda bankanna hafi vitað þetta? Síðan sagði hún, að til þess að vextir hækki ekki í mars, þá mega kostnaðarhækkanir kjarasamninga ekki fara út í verðlagið! Sem sagt verðbólgumælingin í janúar hefur ekki áhrif núna, en verðbólgumæling í febrúar mun hafa áhrif á ákvörðun nefndarinnar í mars! Það vita allir að breyting á vísitölu neysluverðs milli janúar og febrúar er nánast undantekningarlaust meiri en milli desember og janúar. Búið ykkur því undir að vextir hækki aftur um 0,25-0,5% í mars.
    Merkilegt er samt það sem vantaði í þessa umræðu og svör seðlabankafólks, en það er að ein helsta ógn við kaupmátt og verðstöðugleika er kröfur um hagnað og arðgreiðslur fyrirtækja. Að hagnaður hækki ár eftir ár og mönnum finnst ekkert tiltökumál að flagga 15-20% hagnaði, er meiri ógn við verðstöðugleika, en að launakostnaður hækki úr 25% í 28% eða er það 50% í 55%. Báðar þessar hækkanir eru brot af hagnaðinum og hafa því minni áhrif til breytinga á verðlagi, en arðsemiskröfur eigenda fyrirtækjanna ! "
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár