„Ég hef aldrei misst svefn yfir neinu sem tengist Samherja“

Þóra Arn­órs­dóttir segir að lög­reglu­rann­sókn sem hún sætir í tengslum við hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild Samherja“ hafi ekk­ert haft með brott­hvarf hennar úr stóli rit­stjóra Kveiks að gera. Hún telji núna réttan tíma­punkt til að skipta um starfs­vett­vang og sé full til­hlökk­unar.

„Ég hef aldrei misst svefn yfir neinu sem tengist Samherja“
Skilur sátt við Þóra segir að hún sé búin að vinna eig­in­lega í öllu sem hægt er að ímynda sér og skilji sátt við RÚV, sem sé frá­bær vinnu­staður. Mynd: RÚV / Arnar Þórisson

Þóra Arn­órs­dóttir fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks segir að lög­reglu­rann­sókn á hendur henni vegna umfjöll­unar um sam­skipti svo­kall­aðrar „skæru­liða­deildar Samherja“ hafi ekki haft áhrif á ákvörðun hennar um að láta af starfi rit­stjóra. Hún sé ein­fald­lega að söðla um og skipta um starfs­vett­vang eftir ald­ar­fjórð­ung í fjöl­miðlum. „Ég hef aldrei misst svefn yfir neinu sem teng­ist Samherja og ætla ekki að fara að gera núna.“

Heim­ildin greindi frá því í dag að Þóra hefði látið af störfum sem rit­stjóri Kveiks til að hverfa til ann­arra starfa utan Rík­is­út­varps­ins. Spurð til hvaða starfa hún sé að hverfa svarar Þóra því til að það verði til­kynnt seinna í þess­ari viku. Aðdrag­and­inn að vista­skipt­unum hafi verið frekar stuttur en um er að ræða starf utan fjöl­miðla­geirans.

Rétti tímapunkturinn er núna

Spurð hvernig til­finn­ingin sé, að hætta nú störfum í fjöl­miðlum eftir 25 ára feril svarar Þóra: „Það er svo­lítið sér­stakt en ég er er samt full til­hlökk­unar. Ég er búin að vinna í útvarpi og sjón­varpi, heim­ilda­myndum, kosn­inga­sjón­varpi og skemmti­þáttum. Eig­in­lega bara öllu sem maður getur ímyndað sér. Ég er búin að taka á móti ofboðs­lega mörgum Eddum og held að ég geti alveg skilið sátt við RÚV, sem er frá­bær vinnu­staður. Ég hugs­aði með mér að ég ætti kannski tutt­ugu ár eftir á vinnu­mark­aði og ef ég ætl­aði ein­hvern tím­ann að skipta um starfs­vett­vang þá væri þetta kannski bara rétta tæki­færið, rétti tíma­punkt­ur­inn.“

„Í sjálfu sér er fyrst og fremst ein­kenni­legt að ekki sé búið að fella þetta mál niður nú þegar“
Þóra Arn­órs­dóttir

Spurð hvort rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á hendur Þóru, ásamt þremur blaða­mönnum Heim­ild­ar­innar, í tengslum við birt­ingu frétta um svo­kall­aða skæru­liða­deild Samherja, hafi haft ein­hver áhrif á að hún ákvað að söðla um neitar hún því.

„Nei, ekki þannig. Ég hef aldrei misst svefn yfir neinu sem teng­ist Samherja og ætla ekki að fara að gera núna. Enda engin ástæða til þess. Þessi rann­sókn sem er í gangi núna hefur í sjálfu sér ekk­ert með Samherja að gera, þannig séð, heldur það hvort við, þessir frétta­menn, höfum mögu­lega séð eða dreift heima­kyn­lífs­mynd­böndum Páls Stein­gríms­sonar. Ég hef ekki gert það og þar með er málið ekk­ert flókn­ara. Það er kjarni máls­ins. Í sjálfu sér er fyrst og fremst ein­kenni­legt að ekki sé búið að fella þetta mál niður nú þegar.“

Fyr­ir­vari: Ásamt Þóru sæta þrír blaða­menn Heim­ild­ar­innar einnig lög­reglu­rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra í sama máli.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bergljót Davíðsdóttir skrifaði
    Er það tilviljun að Aðalsteinn er hættur, ásamt Þóru og Helgi skipti um fjölmiðil eftir þá fáránlegu árás, undir formerkjum rannsóknar lögreglustjórans á Akureyri, sem þau urðu fyrir? Ekki að undra, það tekur á þegar valdstjórnin sækir að fólki sem aðeins er að vinna samkvæmt þeirri sannfæringu og hugsjon sem allir alvöru fjölmiðlamenn finna innra með sér.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár