Fagmannlega fléttuð Hollywood-vella á íslenskum jökli

Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir brá sér í bíó og rýndi Napól­e­ons­skjölin.

Fagmannlega fléttuð Hollywood-vella á íslenskum jökli
Vivian Ólafs­dóttir í aðal­hlut­verki Sannar sig sem spennu­mynda­leik­kona á heims­mæli­kvarða.
Sjónvarp & Bíó

Napól­e­ons­skjölin

Gefðu umsögn

Napól­e­ons­skjölin í leik­stjórn Óskars Þórs Axels­sonar er spennu­mynd að sið Hollywood, vel saumuð flétta þar sem öllum spurn­ingum áhorf­enda er vand­lega svarað á réttum tímum svo ekk­ert fari örugg­lega fram­hjá jafn­vel með­al­greindasta áhorf­anda.

Myndin er byggð á sam­nefndri bók Arnaldar Ind­riða­sonar, og er sögu­þræði hennar lýst á þennan veg á Kvik­myndir.is: „Þegar bróðir lög­fræð­ings­ins Krist­ínar rekst á þýskt flug­vél­arflak úr seinni heims­styrj­öld á toppi Vatna­jök­uls, drag­ast þau bæði inn í atburða­rás upp á líf og dauða, hund­elt af hópi manna sem svífast einskis við að halda ára­tuga gam­alt leynd­ar­mál.“

Hand­rits­höf­und­ur­inn Marteinn Þórisson aðlagar bók­ina að skjánum og ljóst að hann er vel æfður í þeirri list að byggja upp spennu og halda uppi flæði hraðrar atburða­rás­ar­innar. Veik­leiki hand­rits­ins er þó per­sónu­sköpun og sam­töl, sem áttu til að vera óraun­veru­leg og klisju­kennd. 

Lýsandi fyrir þetta vanda­mál hand­rits­ins er sena þar sem CIA full­trúi hald­inn kvala­losta, leik­inn af Adesuwa Oni, brýnir blý­ant og fer með ein­ræðu um hvernig sumir séu alltaf hundar þó þeir þyk­ist vera refir, eða álíka Hollywood-sós­aða lík­ingu, áður en hún stingur æsku­goð mitt, Atla Óskar Fjal­ars­son, í háls­inn með téðum blý­anti. Leikarar mynd­ar­innar inna sín störf þó vel af hendi þrátt fyrir þessa veik­leika hand­rits­ins og ljóst að leik­stjóri er lunk­inn að kalla fram það besta í hverju og einu þeirra. 

Vivian Ólafs­dóttir fer með aðal­hlut­verk mynd­ar­innar og sannar sig sem spennu­mynda­leik­kona á heims­mæli­kvarða. Hún er jafn­víg á helj­ar­stökk út um glugga og hnyttin til­svör í hita augna­bliks­ins, og má segja að hér sé stjarna fædd. Jack Fox túlkar breska háskóla­kennar­ann sem þjónar því hlut­verki að miðla til áhorf­enda sögu­legu sam­hengi ráð­gát­unnar, og leysir ágæt­lega,  Iain Glen leikur vonda­kall með stóru vaffi listi­lega vel, og eins er Þröstur Leó auð­vitað í ess­inu sínu í hlut­verki föður aðal­per­són­anna, sjó­manns sem siglir um úthöfin með íslenskt nef­tó­bak í fartesk­inu.

Eft­ir­minni­leg­ustu senur mynd­ar­innar á þó Ólafur Darri Ólafsson í auka­hlut­verki sem jarð­bund­inn bóndi sem kemur sér­fræð­ing­unum að sunnan til bjargar á hár­réttu augna­bliki. Hann lýsir upp skjá­inn í hvert sinn sem hann sést á honum, en það er synd að mati gagn­rýn­anda að tefla þessum mest sjar­mer­andi leik­ara þjóð­ar­innar fram í því sam­hengi að hann sé ein­hvers konar kyn­laus bóndi sem ekk­ert gerir annað en að borða ham­borg­ara og drekka bjór. Þetta er leiði­gjörn og leti­leg klisja úr minni Hollywood, þó Ólafur Darri moði það besta úr per­són­unni sem hægt er. Ég vona bara að hann hafi fengið borgað auka­lega fyrir að ganga í þessum hrika­legu smekk­buxum.

„Á meðan á áhorfi stóð var ég með yfir­gnæf­andi þá til­finn­ingu að myndin væri ein­fald­lega ekki gerð fyrir mig heldur ein­hvern óræðan Netflix-áhorf­anda sem stillir sig inn á mynd­ina á laug­ar­dags­kvöldi.“

Allt er til fyr­ir­myndar hvað varðar útlit og tækni­lega þætti mynd­ar­innar. Ég hef reyndar góð­lát­legar áhyggjur af Heimi Sverris­syni, hann virð­ist hanna leik­mynd um það bil allra mynda sem vert er að tala um í íslenskri kvik­mynda­gerð, sem hann innir afbragðsvel af hendi í hvert sinn en ég vona þó hann taki sér stöku sinnum helg­ar­frí. Búningar Sylvíu Daggar Hall­dórs­dóttur voru sér­lega eft­ir­minni­legir og vel unnir. Í spennu­mynd gegnir tón­list lífs­nauð­syn­legu hlut­verki til að við­halda spennu, og Frank Hall vissi nákvæm­lega hvað hann var að gera í tón­list­ar­sköpun mynd­ar­innar. Ákveðinn hápunktur í tón­list­ar­vali var að sjá per­sónu breska háskóla­pró­fess­ors­ins sjó­veikan og ælandi við Fallegan dag Bubba Morthens. 

Helsta mark­mið kvik­mynda­gerðar á Íslandi síð­ustu ár virð­ist hafa verið að „koma Íslandi á kortið“, hvort sem það þýðir að fá sem flestar erlendar kvik­mynda­pródúk­sjónir til lands­ins eða að hér séu gerðar myndir sem höfða til erlendra dreif­ing­ar­að­ila. Á meðan á áhorfi stóð var ég með yfir­gnæf­andi þá til­finn­ingu að myndin væri ein­fald­lega ekki gerð fyrir mig heldur ein­hvern óræðan Netflix-áhorf­anda sem stillir sig inn á mynd­ina á laug­ar­dags­kvöldi. 

Ef áhorf­andi stillir sig inn á að njóta svo­lítið klisju­kenndra sam­tala og yfir­drif­innar íslenskrar land­kynn­ingar (sem nær hámarki þegar aðal­per­són­urnar fá sér pásu frá flótta úr banda­ríska sendi­ráð­inu til að gæða sér á pulsu við Sólfarið) eru Napól­e­ons­skjölin fín­asta skemmtun sem tekst að halda áhorf­anda spenntum allan tím­ann – og þá hlýtur tak­mark­inu að vera náð.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár