Lestur Fréttablaðsins hrundi í janúarmánuði

Í kjöl­far breyt­inga á dreif­ingu Frétta­blaðs­ins, sem fólu í sér að hætt var að dreifa blað­inu heim til fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Akureyri í upp­hafi árs, hrundi lestur þess sam­kvæmt sam­ræmdum lestr­ar­mæl­ingum Gallup. Morg­un­blaðið mælist nú með meiri lestur hjá öllum hópum les­enda.

Lestur Fréttablaðsins hrundi í janúarmánuði
For­stjór­inn Jón Þórisson er for­stjóri Torgs, útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins, DV og Hring­brautar. Mynd: Fréttablaðið / Anton Brink

Lestur prentút­gáfu Frétta­blaðs­ins hrundi í jan­ú­ar­mán­uði, í kjöl­far þess að sú ákvörðun var tekin að hætta að dreifa blað­inu í hús á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og gera það í stað­inn aðgengi­legt á fjöl­förnum stöðum á borð við mat­vöru­versl­anir, sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar.

Þetta má lesa úr nýbirtum tölum Gallup um lestur prent­miðla í jan­ú­ar­mán­uði, en Frétta­blaðið, sem var lesið af 28,2 pró­sentum lands­manna í des­embe, var lesið af 15,7 pró­sentum lands­manna í jan­ú­ar­mán­uði sam­kvæmt nýj­ustu mæl­ingum.

Ef ein­ungis er horft til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins rúm­lega helm­ing­að­ist lestur Frétta­blaðs­ins í jan­ú­ar­mán­uði og fór úr 34,6 pró­senta með­al­lestri niður í 17,2 pró­senta með­al­lestur á hvert tölu­blað. 

HrunLestur Frétta­blaðs­ins mælist minni en lestur Morg­un­blaðs­ins í jan­ú­ar­mæl­ingum Gallup.

Ef horft er til ald­urs­hóps­ins 18-49 ára á land­inu öllu fór lestur blaðs­ins úr 17,4 pró­sentum niður í 8,1 pró­sent á milli mán­aða og ef horft er til þessa ald­urs­hóps á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór lestur blaðs­ins úr 23,4 pró­sentum niður í 9,1 pró­sent.

Mogginn meira lesinn í öllum hópum

Þetta hrun í lestri Frétta­blaðs­ins þýðir að blaðið getur í fyrsta sinn í langan tíma ekki státað sig af því að vera mest lesna dag­blað lands­ins. Morg­un­blaðið er með meiri með­al­lestur á tölu­blað í öllum hópum sem Gallup tekur til skoð­unar í lestr­ar­mæl­ingum sínum.

Þegar horft er yfir landið allt og alla ald­urs­hópa er með­al­lestur Morg­un­blaðs­ins 18,9 pró­sent, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 19,9 pró­sent, en þegar horft er til ald­urs­hóps­ins 18-49 ára er með­al­lest­ur­inn 8,8 pró­sent á land­inu öllu og 9,8 pró­sent í þeim ald­urs­hópi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Forstjórinn sagðist ekki búast við neinum breytingum á lestri

Í frétt sem birt­ist í Frétta­blað­inu í upp­hafi árs­ins var til­kynnt um breytta dreif­ingu og þar var þess sér­stak­lega getið að ekki væri búist við því að lestur blaðs­ins kæmi til með að drag­ast saman.

„Þetta er ein­stök staða á heims­vísu,“ sagði Jón Þórisson for­stjóri Torgs um 28 pró­senta lestur blaðs­ins á lands­vísu og 35 pró­senta lestur blaðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt könn­unum Gallup.

„Lest­ur­inn hefur vaxið undan­farna mán­uði í kjöl­far þess að við hófum að dreifa blað­inu á fjöl­förnum stöðum. Það er engin á­stæða til að ætla annað en lest­ur­inn gæti orðið að minnsta kosti sam­bæri­legur eftir þessa breyt­ingu. Þessi breytta dreif­ing tryggir snerti­flöt við yfir 85 pró­sent lands­manna,“ var haft eftir Jóni í blað­inu.

Gallup mælir einnig með­al­lestur Við­skipta­blaðs­ins, sem kemur út viku­lega til áskrif­anda, en lestur blaðs­ins mæld­ist 5 pró­sent á lands­vísu og 5,8 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Fyr­ir­tækið mælir einnig lestur prent­miðla sem koma sjaldnar út og mæld­ist lestur prentút­gáfu Heim­ild­ar­innar, sem kemur út á tveggja vikna fresti, 8,5 pró­sent á land­inu öllu og 9,9 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Ekki liggja fyrir lestr­ar­tölur fyrir Bænda­blaðið í jan­úar, en lestur blaðs­ins, sem kemur út hálfs­mán­að­ar­lega, mæld­ist 26 pró­sent á land­inu öllu í des­em­ber og 19,5 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Í Prent­miðla­könnun Gallup er lestur dag­blaða mældur með sam­felldum hætti allt árið, en um 30 svörum er safnað á hverjum degi sem þýðir að svörin eru um 2.500 tals­ins á hverjum árs­fjórð­ungi. Í úrtak­inu eru Íslend­ingar á aldr­inum 12-80 ára af land­inu öllu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár