Dæmdur fyrir frelsissviptingu og alvarlega árás: Sagðist hafa verið einmana

Vil­hjálm­ur Freyr Björns­son er mað­ur­inn sem var dæmdur fyrir vændis­kaup, frels­is­svipt­ingu, alvar­lega lík­ams­árás og kyn­ferð­is­of­beldi í des­em­ber. Hann veitti Omega við­tal þar sem hann ræddi meðal ann­ars um árás­ina. „Það kvöld þá framdi ég ljótasta hlut sem ég hef gert.“

Dæmdur fyrir frelsissviptingu og alvarlega árás: Sagðist hafa verið einmana

„Ég var ein­mana þetta kvöld,“ sagði Vil­hjálmur Freyr Björns­son í við­tali sem hann veitti á sjón­varps­stöð­inni Omega, þar sem hann ræddi meðal ann­ars um alvar­lega árás sem hann framdi. Vil­hjálmur hlaut fjög­urra ára fang­els­is­dóm fyrir árás­ina í des­em­ber síð­ast­liðnum, en við­talið var tekið í apríl síð­ast­liðnum. 

Dómurinn vakti mikla reiði vegna þess að nafn Vil­hjálms var afmáð fyrir birt­ingu, þrátt fyrir alvar­leika brot­anna. Var hann dæmdur fyrir vændis­kaup, frels­is­svipt­ingu, sér­lega hættu­lega lík­ams­árás og kyn­ferð­is­of­beldi. Sú ákvörðun Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að afmá nafn hans úr dómnum var end­ur­skoðuð og var dóm­ur­inn birtur í upp­færðri mynd fyrr í dag, þar sem nafn Vil­hjálms kom fram. 

Krafðist vægustu refsingar

Konan leit­aði til lög­reglu aðfara­nótt mánu­dags­ins 19. apríl 2021, ákæra var gefin út þann 25. ágúst 2022 og dómur féll þann 20. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Máls­at­vik voru með þeim hætti að Vil­hjálmur keypti vændi af kon­unni. Um tíu mín­útum áður en umsömdum klukku­tíma var lokið hafði hann hins vegar lokið sér af, og krafð­ist þá end­ur­greiðslu. Þegar konan varð ekki við því þá varn­aði hann kon­unni útgöngu úr kjall­ara­her­berg­inu þar sem hann dvaldi, svipti hana frelsi í að minnsta kosti þrjár klukku­stundir og þving­aði end­ur­tekið til kyn­maka og ann­arra kyn­lífs­at­hafna með ofbeldi og ólög­mætri nauð­ung. Tók hann kon­una meðal ann­ars kverka­taki og sló hana í and­lit og lík­ama, með þeim afleið­ingum að hún hlaut brot á augntótt­ar­gólfi og á vanga, mar og fleiri áverka. Samhliða ákæru var lögð fram einka­rétt­ar­krafa um miska­bætur að fjár­hæð 6 millj­ónir auk vaxta. Vil­hjálmur krafð­ist hins vegar sýknu af ákæru vegna frels­is­svipt­ingar og nauðg­unar og af hluta þess sem honum var gefið að sök varð­andi lík­ams­árás­ina. Við­ur­kenndi hann vændis­kaup, ákveðið ofbeldi og að hafa tekið sím­ann af kon­unni, en annað ekki. Til vara fór hann fram á að honum yrði dæmd væg­asta refs­ing er lög leyfa. Þótt hann við­ur­kenndi bóta­skyldu krafð­ist hann þess jafn­framt að bætur yrðu stór­lega lækk­aðar. 

Óttaðist um líf sitt

Í dóms­orði er tekið fram að konan hafi verið í sér­lega við­kvæmri stöðu vegna vændis og haft lítið bak­land. Hún hafi leitað strax á lög­reglu­stöð þar sem hún lagði fram kæru á hendur Vil­hjálmi, sem hefði hringt í hana og beðið hana um að koma. Fyrir vikið hefði hann greitt 10 þús­und krónur fyrir leigu­bíl og lagt 40 þús­und krónur inn á hana fyrir vændi. Þegar hann hafi fengið sáð­lát hafi hann kraf­ist end­ur­greiðslu en hún kvaðst ekki geta orðið við því. Hann hefði brugð­ist illa við, barið hana og tekið af henni sím­ann. Sagðist hún hafa haldið að hann ætl­aði að drepa hana, hann hefði sagt það ítrekað við hana og tekið um háls hennar svo hún gat ekki andað. Á hálsi hennar voru áverkar. Hún hefði öskrað hátt en eng­inn hringt á lög­reglu. Samkvæmt lýs­ingum hennar hafði hann misst alla stjórn á sjálfum sér. Farið inn í síma hennar og reynt að end­ur­greiða sjálfum sér pen­ing­ana og haldið áfram að beita hana ofbeldi. Eitt skiptið hefði verið mjög sárs­auka­fullt og dregið úr henni allan mátt. Hann hafi lamið hana alls staðar og hún hvorki getað hreyft sig né yfir­gefið aðstæður. Eitt skiptið hefði hún farið að dyr­unum en hann náð henni og haldið áfram að beita hana kyn­ferð­is­of­beldi. Hann hefði meðal ann­ars nauðgað henni og neytt til ann­arra kyn­ferð­is­legra athafna. Lýsti hún því sem svo að ákærði hefði viljað láta hana þjást, það hefði æst hann upp og hann hefði notið þess að kvelja hana. Nóttin hefði öll verið eins, hann hefði ýmist verið að beita hana kyn­ferð­is­of­beldi eða lemja hana, í lotum. Þess á milli hefði hann kraf­ist end­ur­greiðslu og haldið síma hennar allan tím­ann. Á einum tíma­punkti hefði henni liðið svo illa að hún bað hann um að drepa sig svo hún losn­aði undan þessum pynt­ingum.

Leigubílstjórinn fylgdi henni á lögreglustöð

Þegar hún losn­aði loks út úr aðstæð­unum hefði hún sest inn í leigu­bíl, og leigu­bíl­stjór­inn spurt hvað kom fyrir hana. Hann hefði síðan fylgt henni heim til að reyna að finna út úr því hver árás­armað­ur­inn væri og síðan fylgt henni á lög­reglu­stöð, sem var lokuð. Þaðan lá leiðin á slysa­deild.  

Í gögnum máls­ins kemur fram að Vil­hjálmur Freyr var hand­tek­inn síðar sama dag, færður í lækn­is­skoðun og yfir­heyrður bæði þá að kvöldi og aftur næsta dag. Við­ur­kenndi hann fyrir lög­reglu að hann hefði séð eftir pen­ing­unum sem hann not­aði til vændis­kaupa um leið og hann hefði lokið sér af, því pen­ing­ana hafði hann ætlað að nota til að fara til tann­læknis. Hann hefði reiðst og slegið kon­una, tekið af henni sím­ann og reynt að fara inn í heima­bank­ann hennar til að mill­færa pen­ing­ana aftur inn á sig. Þau hefðu talað saman og í því sam­tali hefði komið fram að hún hefði ekki borðað í marga daga, svo hann hefði sár­vor­kennt henni. En þegar hann sló hana hefði hún ráð­ist á hann svo hann hefði tekið um háls hennar. Í skýrslu­tök­unni sagð­ist hann ýmist hafa verið undir áhrifum vímu­efna eða ekki, fyrst að svo hefði ekki verið en síðar að hann hefði keypt sér spritt og blandað í app­el­sín. 

„Ég beitti ofbeldi“

Í við­tal­inu sem hann veitti á Omega í apríl 2022, ári eftir árás­ina, ræddi hann einmitt um þennan þátt máls­ins. Þar greindi hann frá því hvernig hann hefði alist upp við ást­ríki, frelsi og lífs­gleði á Akranesi, á tímum þar sem traust ríkti á milli fólks og óþarft var talið að læsa húsum sínum. Hann hefði síðan leiðst út í neyslu vímu­efna og glímt við fíkn, sem hann náði engum tökum á. 

„Það kvöld þá framdi ég ljótasta hlut sem ég hef gert“

Sagðist hann hafa verið nýkom­inn úr sex mán­aða með­ferð í Svíþjóð þegar hann leigði her­bergi hjá systur sinni í kjall­ara í Breið­holti, þar sem árásin átti sér stað. „Ég var ein­mana þetta kvöld, ég man eftir því,“ sagði Vil­hjálmur í við­tal­inu og útskýrði það meðal ann­ars með því að Covid var nýbyrjað. „Ég kaupi mér þrjá spritt­brúsa. Ég drekk þá og það kvöld þá framdi ég ljótasta hlut sem ég hef gert. Ég beitti ofbeldi,“ sagði hann.

Annað sagði hann ekki um árás­ina í þessu við­tali, sem fjallar að mestu leyti um það hvernig hann fann æðri mátt­ar­völd í leit að bata frá fíkni­nefna­neysl­unni. 

Það kemur þó fram að hann hafi verið hand­tek­inn og leitað í kanna­bis­neyslu til að forð­ast frek­ari „skandala“. „En mig lang­aði ekk­ert að vera í neyslu,“ hélt hann áfram. Í átta mán­uði hafi hann reykt kanna­bis, lokað á alla og ein­angrað sig. 

„Svo féll ég fyrir alvöru og fór úr því að reykja kanna­bis í það að sprauta mig. Ég man eftir því að sonur minn, þegar ég var búinn að vera inni á baði í svona fjöru­tíu mín­útur, búinn að sprauta mig og kom fram. Hann sá bara ástandið á mér. Ég horfði í augun á syni mínum og sá hræðsl­una í aug­unum á honum og ég sá von­brigðin í aug­unum á honum.“

Þrátt fyrir að hann væri enn virkur í neyslu hefði hann verið að þjóna Guði, fara með þjón­ustu inn á Hlað­gerða­kot og víðar. Á fíknig­eð­deild varð hann hins vegar að horfast í augu við sjálfan sig. „Það eina sem ég hafði inni á þess­ari deild var tími. Það sem ég gerði, ég var svo örvænt­ing­ar­fullur af því að ég hélt að ég væri að deyja, ég var að deyja, að ég leit­aði guðs af heilum hug. Ég las í orð­inu allan dag­inn. Ég var með lof­gjörð í eyr­unum allan sól­ar­hring­inn. Ég leit­aði ríkis hans og hann bara kom og fyllti mig. Síðan þá hef ég bara brunnið fyrir hann. Ég upp­lifði að þennan dag þá dó ég. Framar lifi ég ekki fyrir mig heldur lifir Jesús í mér. Hvað er himna­ríki annað en nýtt sett af gler­augum? Ég hafði verið blindur í átta ár. Allt í einu fékk ég að sjá sann­leik­ann um sjálfan mig og það er gjöf frá Guði.“ Hann væri hættur að heim­sækja Guð, nú væri hann búinn að færa lög­heim­ilið til hans. „Ég bý á himnum og ég þrái bara að meta náung­ann meira en sjálfan mig, eins og Jesús gerði.“

Þetta var áður en hann fór fyrir dóm. 

Sagður fegra hlut sinn

Fyrir dómi bar sál­fræð­ingur vitni um að sál­ræn ein­kenni brota­þola í kjöl­far áfalls­ins sam­svör­uðu ein­kennum sem eru þekkt hjá fólki sem hefur upp­lifað alvar­leg áföll eins og lík­ams­árás, nauðgun, stór­slys eða ham­farir. Árásin hefði víð­tæk áhrif á líðan brota­þola og lík­legt væri að í fram­tíð­inni þyrfti hún að takast á við áminn­ingar í dag­legu lífi sem gæti valdið van­líðan.

Þar kom jafn­framt fram að þegar konan leit­aði á Neyð­ar­mót­töku vegna nauð­gana hefði hún verið í losti, hrædd um líf sitt og með skjálfta, hroll og vöðva­spennu.

Samkvæmt dóms­orði fékk frá­sögn hennar stoð í fjölda gagna, svo sem lækn­is­vott­orði, grein­ar­gerð rétt­ar­meina­fræð­ings, skýrslum og vætti vitna um aðstæður á vett­vangi. Dómur mat fram­burð hennar trú­verð­ugan.

Var það hins vegar mat dóms­ins að fram­burður Vil­hjálms „beri um sumt keim af því að hann sé að reyna að fegra hlut sinn“. Ásetn­ingur hans hefði verið sterkur, „en hann frels­svipti brota­þola í um þrjár klukku­stundir og beitti hana á þeim tíma lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi,“ eins og segir í dóms­orði. 

Var það þó metið honum til refsi­lækk­unar að hafa sótt vímu­efna­með­ferð og játað brot sín að hluta. Sem fyrr segir var hann dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi og auk þess gert að greiða kon­unni þrjár millj­ónir í miska­bætur.

Þrátt fyrir að dóm­stólar hafi í fyrstu valið að fjar­lægja nafn manns­ins úr dómnum vör­uðu konur við honum í hópum á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár