993. spurningaþraut: Lang þéttbýlasta ríki heimsins?

993. spurningaþraut: Lang þéttbýlasta ríki heimsins?

Auka­spurn­ingar:

Hvaða film­stjarna prýðir mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Oft er sagt að Tim Berners-Lee hafi „fundið upp“ ákveðið fyr­ir­bæri. Málið er reyndar miklu flókn­ara en svo því margir fleiri koma við sögu. En Berners-Lee kom alt­ént mjög við sögu á þróun hvaða fyr­ir­bæris?

2.  Sumir segja að Rússar vinni alltaf öll stríð sín að lokum. Það er þó fjarri sanni. Á árunum 1904-1905 háði Rússland til dæmis stríð við ákveðið land og koltap­aði. Hvaða land var þetta?

3.  Í hvaða landi eru Múmínálfarnir upp­runnir?

4.  Hvað heitir for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins?

5.  Hverjir halda jamborí?

6.  Hvað heitir höf­uð­borg New York-ríkis í Banda­ríkj­unum?

7.  Jóhannes Þór Skúlason er tals­maður hvers eða hverra?

8.  Hvað er lang þétt­býlasta sjálf­stæða ríki heims?

9.  Hver er nýjasti kon­ung­borni þjóð­höfð­ingi heims­ins?

10.  Nöfn á nær öllum fjöl­menn­ustu þétt­býl­is­stöðum á Íslandi eru sam­sett úr heitum á tveimur nátt­úru­fyr­ir­bærum og/eða dýrum merk­ur­innar, svo sem reykja- og -vík. En hver er fjöl­menn­asti stað­ur­inn þar sem slík nátt­úru­fyr­ir­bæri er aðeins annar af tveim nafn­liðum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Fáni hvaða ríkis er þetta? Geta má þess — ykkur til aðstoðar — að ákveðin tengsl (vissu­lega lít­il­fjör­leg) eru milli auka­spurn­ing­anna tveggja.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Inter­net­inu. Hann þró­aði ver­ald­ar­vef­inn, sem er nú afar mik­il­vægur hluti nets­ins.

2.  Japan.

3.  Í Finn­landi.

4.  Ursula von der Leyen. 

5.  Skátar.

6.  Albany.

7.  Ferða­þjón­ust­unnar, Samtaka ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja.

8.  Mónakó.

9.  Karl þriðji. Númerið verður að vera rétt.

10.  Vest­manna­eyjar. Hér leyfi ég mér að telja „vest­menn“ ekki til nátt­úru­fyr­ir­bæra né dýra!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Catherine Zeta-Jones.

Á neðri mynd­inni er fáni Zimbabwe.

Tengslin eru nátt­úr­lega zetan ...

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Gunnlaugsson skrifaði
    En Patreksfjörður? Er patrek náttúrufyrirbrigði?
    1
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    En hvað með Njarðvík? Er hún ekki orðin fjölmennari? Varla myndi sjávarguðinn Njörður teljast til náttúrufyrirbrigða eða dýrategunda.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár