Stundin sameinast Kjarnanum

Nýr mið­ill með áherslu á rann­sókn­ar­blaða­mennsku verður reistur á grunni Stund­ar­innar og Kjarnans í byrjun árs­ins 2023.

Stundin sameinast Kjarnanum

Aðstand­endur Stund­ar­innar og Kjarnans hafa náð sam­stöðu um að sam­eina fjöl­miðl­ana tvo. Útgáfu­fé­lög þeirra munu renna saman frá og með kom­andi ára­mótum og nýr mið­ill, með nýju nafni, mun verða til. Meg­in­starf­semi hans verður dag­leg frétta­síða og prentút­gáfa sem mun koma út tvisvar í mán­uði. Fyr­ir­hugað er að fyrsta útgáfa nýja mið­ils­ins verði 13. jan­úar 2023. Þangað til munu Kjarninn og Stundin halda áfram að starfa í óbreyttu formi og þjón­usta les­endur sína.

Eig­enda­hópur sam­ein­aðs útgáfu­fé­lags mun telja á fjórða tug ein­stak­linga, bæði starfs­manna og áhuga­fólks um fjöl­miðlun. Enginn í hlut­hafa­hópnum fer með meira en tíu pró­sent eign­ar­hlut. Stefnt er að því að vald­dreif­ing verði inn­sigluð í sam­þykktum útgáfu­fé­lags­ins til fram­tíðar.

Mark­miðið með sam­ein­ing­unni er að setja saman öfl­ugt íslenskt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem stendur að óháðri, vand­aðri, gagn­rýn­inni og upp­byggi­legri aðhalds­blaða­mennsku, bjóða upp á gott starfs­um­hverfi og móta fjöl­miðil sem getur stækkað, vaxið og dafnað. Byggt verður á ráð­andi hug­mynda­fræði Kjarnans og Stund­ar­innar um vald­dreif­ingu og vald­efl­ingu almenn­ings.

Ritstjórnirnar sameinast

Innan nýja fjöl­mið­ils­ins munu rit­stjórnir Kjarnans og Stund­ar­innar sam­ein­ast í eina. Sameinuð rit­stjórn mun sam­an­standa af blaða­mönnum sem hafa fengið flest blaða­manna­verð­laun einka­rek­inna miðla frá stofnun. Áhersla verður lögð á rann­sókn­ar­blaða­mennsku, grein­ingar og dag­legar fréttir frá sjón­ar­hóli almenn­ings fremur en sér­hags­muna.

Með stærra fyr­ir­tæki og öfl­ugri rit­stjórn verður hægt að styðja enn betur við bakið á dýpri rann­sókn­ar­blaða­mennsku, grein­ingu á mál­efnum líð­andi stundar og veita vald­höfum sterkt aðhald. Samhliða stendur til að breikka efn­is­tök, verða enn áhuga­verð­ari og skemmti­legri, og fjölga þeim leiðum sem efni er miðlað til ykkar, les­enda okkar. 

Ingibjörg og Þórður ritstjórar

Rit­stjórar hins sam­eig­in­lega nýja mið­ils verða Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og Þórður Snær Júl­í­us­son, sem stýra í dag Stund­inni og Kjarn­anum. Rann­sókn­ar­rit­stjóri verður Helgi Seljan. 

Ingi­björg Dögg segir sam­ein­ing­una til­komna vegna sam­eig­in­legs til­gangs beggja miðla. „Báðir miðlar eru í dreifðu eign­ar­haldi, óháðir hags­muna­blokkum og hafa lifað eftir ákvörð­unum almenn­ings um að styrkja þá eða kaupa áskrift. Eina raun­hæfa leiðin til að stunda almenni­lega rann­sókn­ar­blaða­mennsku er að starfa á for­sendum almenn­ings.“

Jón Trausti Jón Trausti verður fram­kvæmda­stjóri hins nýja útgáfu­fé­lags.

Þórður Snær segir að stærri mið­ill sem byggir á aðkomu og stuðn­ingi almenn­ings hafi mikil tæki­færi til að vaxa og dafna í íslensku fjöl­miðlaum­hverfi. „Það er mikil eft­ir­spurn eftir grein­andi aðhalds­blaða­mennsku sem stendur með almenn­ingi og neyt­endum. Ég er sann­færður um að saman séum við sterk­ari en í sitt­hvoru lagi.“ 

Fram­kvæmda­stjóri hins sam­ein­aða félags verður Jón Trausti Reyn­is­son, fram­kvæmda­stjóri, fyrr­ver­andi rit­stjóri og einn stofn­enda Stund­ar­innar. 

Sjálfbær rekstur forsendan

Eitt af grunn­mark­miðum nýs fjöl­mið­ils er sjálf­bær rekstur til lengri tíma sem stendur undir sjálf­stæði rit­stjórnar. Rekst­ur­inn á þó í sam­keppni við stærri fjöl­miðla sem hafa fengið við­var­andi tap­rekstur nið­ur­greiddan af fjár­sterkum aðilum, meðal ann­ars eig­endum útgerða og kvóta.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur bent á að eign­ar­hald stærri einka­rek­inna fjöl­miðla hefur færst á hendur fjár­sterkra aðila sem standa fyrir til­tekna skil­greinda hags­muni í íslensku atvinnu­lífi. Eft­ir­litið hefur sagt að sú ráð­stöfun hafi það meg­in­mark­mið að ljá hags­munum við­kom­andi aðila enn sterk­ari rödd og vinna þeim þannig frek­ari fram­gang. 

Atgervis­flótti er úr geir­anum sem birt­ist meðal ann­ars í því að starf­andi á fjöl­miðlum fækk­aði um 45 pró­sent milli 2018 og 2020. Á sama tíma hefur fjöldi þeirra sem vinna við almanna­tengsl og hags­muna­gæslu marg­fald­ast. 

Ísland hefur und­an­farin ár fallið á lista yfir fjöl­miðla­frelsi og situr nú í 15. sæti, en hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar skipa efstu sætin.

Aðkoma almennings

Í mótun nýs mið­ils verður leitað til almenn­ings um hug­myndir, ábend­ingar og leið­sögn. Styrkj­endum Kjarnans býðst að ger­ast áskrif­endur að nýja miðl­inum, en þeim býðst einnig að halda áfram óbreyttum stuðn­ingi. Áskrif­endur Stund­ar­innar þurfa ekki að skrá sig sér­stak­lega til áfram­hald­andi áskriftar. Þau sem ekki hafa áskrift fyrir geta for­skráð sig fyrir áskrift á slóð­inni kjarn­inn.stundin.is. Þar verður einnig hægt að fylgj­ast með nýjum fréttum af þróun nýs mið­ils.

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár