Eigandi laxeldisins á Austfjörðum einn af 27 auðmönnum sem flýr til Sviss vegna skatta

Norskir auð­menn flýja aukna skatt­heimtu í Noregi í hrönnum og setj­ast að í Sviss. Meðal þess­ara auð­manna er Anders Måsøval sem er einn stærsti eig­andi íslensks lax­eldis í gegnum fyr­ir­tækið Laxa. Á sama tíma leiðir aukin skatt­heimta á lax­eld­is­fyr­ir­tæki í Noregi til þess að þau hætta við fjár­fest­ingar, meðal ann­ars fyr­ir­tækin sem eiga obbann í lax­eld­inu á Íslandi.

Eigandi laxeldisins á Austfjörðum einn af 27 auðmönnum sem flýr til Sviss vegna skatta
Flýja skatt­heimtu til Sviss Samtals 27 norskir auð­menn hafa flúið aukna skatt­heimtu norska rík­is­ins og sest að í Sviss á þessu ári. Einn þeirra er Anders Måsøval, einn stærsti hlut­hafi Laxa á Aust­ur­landi.

Einn stærsti eig­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Laxa á Aust­fjörðum er einn af 27 norskum auð­mönnum sem hefur flutt frá Noregi til Sviss það sem af er árinu. Maðurinn heitir Anders Måsøval. Hann er hlut­hafi í norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Måsøval sem á á 59 pró­senta hlut í Löxum auk þess að vera stjórn­ar­maður í íslenska fyr­ir­tæk­inu.

Fyr­ir­tækið Laxar er meðal ann­ars þekkt vegna þess að þar kom upp stærsta tjón sem hefur átt sér stað í íslensku lax­eldi þegar sjúk­dóm­ur­inn blóð­þorri kom upp hjá fyr­ir­tæk­inu fyrr á árinu. 

Anders Måsøval er sagður eiga per­sónu­legan, skatt­skyldan auð upp á 380 millj­ónir norskra króna eða sem nemur tæp­lega 5,4 millj­örðum íslenskra króna. Fyr­ir­tæki Anders er annar stærsti hags­muna­að­il­inn í íslensku lax­eldi á eftir eig­anda Arnarlax, Salmar AS, sem einnig er norskt lax­eld­is­fyr­ir­tæki. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Gráðuga hyski!
    4
  • Sigurveig Eysteins skrifaði
    Um leið og þeir þurfa að borga í sameiginlega sjóði .... þá taka þeir til fótanna... þetta kallast aumingjar....
    5
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    https://www.visir.is/g/202070305d

    Helvítis þvottur … vegbrefið ætti að vera tekið af þessu helvítis lið!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár