Mynd: Óskar Hallgrímsson

Líf í myrkri

Mis­heimskar eld­flaugar hafa dunið á úkra­ínskum borgum og almenn­ingi í 270 daga. 17 eld­flauga­árásir hvern ein­asta dag að með­al­tali. Loft­varnir hafa gert mikið en inn­viðir í stóru landi eru ekki svipur hjá sjón. Rafmagni er skammtað. Stjórn­völd biðla til fólks sem á þess kost að fara utan að gera það. En á meðan læra börnin í tón­list­ar­skól­anum í Irpin að spila og syngja í myrkri.

Ómur tón­list­ar­innar heyr­ist vel í myrkr­inu fyrir utan tón­list­ar­skóla barn­anna í Irpin. Ofan við inn­gang­inn blasir við stórt skotsár á bygg­ing­unni, eftir stór­skota­hríð her­sveita Rússa og Úkra­ínu­manna sem börð­ust um borg­ina í upp­hafi inn­rás­ar­innar í mars.

Þá voru borg­irnar Irpin og Butcha frels­aðar undan Rússum ásamt reyndar öllu svæð­inu norður af Kyiv. Fáeinum dögum síðar fékk ég tæki­færi á að fara inn fyrir borg­ar­mörkin. Við blasti borg­ar­lands­lag sem nú var rústir einar, lík hund­raða íbúa í fjölda­gröfum. Fólk sem hafði verið tekið af lífi og skilið eftir liggj­andi á göt­unni, oft með hendur bundnar fyrir aftan bak.

Umbreyting Irpin

Irpin hafði orðið sér­stak­lega illa úti. Nánast lögð í rúst, enda var hún síð­asta vígi Rússa á leið þeirra til Kyiv. Það tók rúman mánuð fyrir úkra­ínskar her­sveitir að brjóta á bak aftur inn­rás­ar­her Rússa og hrekja aftur norður yfir landa­mærin. Núna, 7 mán­uðum seinna, er Irpin aftur …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár